Bubbi kóngur boðar byltingu


    Skrif Bubba Morthens í Mbl. í dag eru makalaus. Segir
byltingu og blóðug átök í loftinu ef ekki verði gengið  að
hinum og þessum kröfum sem hann tilgreinir. Ein þeirra
og sú alvarlegasta er að Íslendingar afsali sér fullveldinu
og sjálfstæðinu og gangi Brusselvaldinu á hönd. Ef það
er sú bylting sem á að bjarga þjóðinni þá er Bubbi held-
ur betur á villugötum.  - Ætti að skammast sín fyrir svona
rakalaus æsingaskrif. - Því honum má ljóst vera að EF  á
að gera byltingu til að færa íslenzku þjóðina yfir erlent
vald, munu þjóðleg öfl koma í veg fyrir það.  Slíkt verður
ALDREI látið viðgangast!

  Æsingaskrif eins og bitust í Mbl í dag eftir Bubba er honum
til mikillar skammar. Og ekki til þess fallin að sameina þjóðina
á erfum tímum. -  Uppgangur vinstri/öfgamanna, anarkista
og þeirra sem vilja koma þjóðinni undir erlent vald er áhyggju-
efni. - En um leið áskorun til allra þjóðlegra  afla  að standa
vaktina. 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Guðmundur eru þessi skrif þín æsingarskrif líka. "Slíkt verður ALDREI látið viðgangast" segir þú. Frá minni hendi er þetta ekki neitt annað en illa dulbúinn hótun. En ef meirihluti þjóðarinnar vill það. Stendur þá þessi hótun.

Hörður Már Karlsson (IP-tala skráð) 29.11.2008 kl. 13:03

2 Smámynd: Guðbjörn Guðbjörnsson

Guðmundur:

Nú þykir mér týra að vera settur á bás með vinstri öfgamönnum og stjórnleysingjum - flokksbundinn sjálfstæðismaðurinn til yfir 30 ára!

Finnst þér nú líklegt, að stór hluti sjálfstæðismanna, allir kratar landsins og stærsti hluti frammara séu í liði með kommúnistum og stjórnleysingjum?

Bara til að leiðrétta allan misskilning, þá eru kommarnir með "Palestínuklútana" og stjórnleysingjahyskið, sem ætlaði að brjótast inn á lögreglustöðina um daginn og er með skrílslæti á Austurvelli um hverja helgi, ekki frammarar, sjálfstæðismenn eða kratar, heldur liðsmenn VG!

Það vill svo einkennilega til, að þær stjórnmálahreyfingar, sem mest hafa barist gegn tilvist ESB innan sambandsins  - og eru þá líklega samherjar þeirra þjóðlegu afla, sem þú segist tilheyra - fasistar og kommúnistar.

Þú ert frjáls að vali á samstarfsfólki. Hins vegar áskil ég mér rétt, sem Evrópusinni, að velja mér sjálfur samstarfsmenn - hvort sem það eru frammarar, kratar eða sjálfstæðismenn - til að koma mínum baráttumálum fram. Eitt geturðu verið öruggur með og það er að mitt samstarfsfólk verður alltaf lýðræðissinnað og þar af leiðandi ekki kommar, fasistar eða stjórnleysingjar!

Guðbjörn Guðbjörnsson, 29.11.2008 kl. 13:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband