Frjálslyndum ekki treystandi í Evrópumálum !


   Á heimasíðu Jóns Magnússonar FORMANNS ÞINGFLOKKS
Frjálslyndaflokksins hrósar hann Friðriki Sophussyni fyrrv.
varaformanni Sjálfstæðisflokksins fyrir að vilja aðildarvið-
ræður að ESB. Yfirlýsing Jóns vekur miklu meiri athygli en
yfirlýsing Friðriks. Friðrik er bara óbreyttur flokksmaður út
í bæ en Jón er ÞINGFLOKKSFORMAÐUR.  Hann talar því í
nafni flokksins eða hvað? Ef svo er, þá er það ekki í sam-
ræmi við núverandi stefnu flokksins. Eða er að vænta
stefnubreytingar Frjálslyndra í Evrópumálum á næstunni?

  Það er alltaf að koma betur og betur í ljós hversu flokk-
arnir á mið/hægri kanti  íslenzkra stjórnmála eru orðnir
alvarlega klofnir í Evrópumálum. Frá sjónarhóli þeirra
sem eru andvígir aðild Íslands að ESB eru þeim ekki
treystandi lengur. - Þjóðlegt borgaralegt afl er því eina
svarið!
mbl.is Þjóðin fái að kjósa um ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ja Guðmundur það er farið að þrengja að þer. Endilega stofnaðu flokk það þyðir ekkert annað.

Hörður Mar Karlsson (IP-tala skráð) 29.11.2008 kl. 21:06

2 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Nei það er alls ekkert farið að þrengja að mér Hörður. Friðrik og Jón hafa
ætíð haft ESB-genið í sér. Misjaft bara hvenær menn þora út úr skápnum.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 29.11.2008 kl. 21:24

3 Smámynd: Jón Valur Jensson

Góð grein, Guðmundur. Sjálfur er ég búinn að setja athugasemd á þessa dæmalaust vitlausu vefsíðu Jóns Magnússonar.

Sjáumst í Salnum í Kópavogi 1. des.! – Með baráttukveðju,

Jón Valur Jensson, 29.11.2008 kl. 21:24

4 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Tak fyrir Jón og sömuleiðis!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 29.11.2008 kl. 21:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband