Utanþingsstjórn! Alls ekki vinstristjórn!


   Þess ber að fagna að ríkisstjórnin er fallin. Sérstaklega að hin
óábyrgða og and-þjóðlega Samfylking skuli nú áhrifalaus. Voru
mikil  pólitísk mistök  hjá Sjálfstæðisflokknum að  leiða  slíkan
Evrópusambandssinnaðan flokk til vegs og virðingar í íslenzkum
stjórnmálum. Flokk sem enga trú hefur á ÍSLENZKRI framtíð og
sjálfstæði þjóðarinnar.

  Þar sem algjört vantraust er í dag meðal þjóðarinnar á núver-
andi stjórnmálamenn ber forseta að rjúfa þing og skipa utan-
þingsstjórn hinna færustu manna.  Útilokað er að núverandi
stjórnmálaflokkar geti stjórnað landinu af viti kafi í kosninga-
baráttu, í því efnahagslegu neyðarástandi sem nú ríkir.  Og
allra síst að hér verði mynduð vinstristjórn. Það yrði það versta
sem yfir þjóðina gæti komið ofan á allt annað.  Sömuleiðis yrði
þjóðstjórn bein ávísun á stöðnun og stjórnleysi.

  Krafa þjóðarinnar til forseta er að hann myndi þegar í stað
utanþingsstjórn.  Það er það eina vitiborna í stöðinni í dag!
mbl.is Stjórnarsamstarfi lokið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þór Jóhannesson

Sammála - og þó er ég frekar vinstrisinnaður ef eitthvað er.

Hér er tillaga um Utanþingsstjórn:

http://thj41.blog.is/blog/thj41/entry/784671/

Þór Jóhannesson, 26.1.2009 kl. 14:42

2 identicon

Guðmundur, anda með nefinu. Hvað segir stjórnarskráin.

Hörður Már Karlsson (IP-tala skráð) 26.1.2009 kl. 14:43

3 identicon

ætlaru ekki að flytja rök fyrir þínu máli? eða ætlaru bara að Haardera?

Þórir (IP-tala skráð) 26.1.2009 kl. 14:52

4 Smámynd: Júlíus Björnsson

Guðmundur utanþingstjórn það er málið. Efnahagur íslenska ríkisins er stóra málið til framtíðar.  Staða efnahagsreiknings er ekki vonlaus ef um einkafyrirtæki að ræða. En það sem þarf að gera [þarf ekki að ræða] er augljóst það þarf að skera niður kostnað á öllum sviðum og forgangsraða með tilliti til Íslenskra sérhagsmuna Íslensku þjóðarinnar allrar til langframa.

Núverandi stjórnmálakerfi er eitt af þessum kostnaði, ásamt þeim stærsta ofurfjármálageiranum, og enginn sker niður sjálfan sig sem ekki skilur vandamálið á réttum forsemdum: það er hámarka arðinn til langframa á öllum tímum.  

Utanþingsstjórn er besti kosturinn í stöðunni. Það þarf að framkvæma sársauka miklar aðgerðir aðferðirnar eru augljósar þeim sem hafa reynslu og auðveldari þeim sem ætla sér að ekki eiga pólitíska framtíð. 

Þetta er ekki spurning um leiðir [eða umræður], þetta er spurning um framkvæma einu kostina í stöðunni. Hámarka arðinn á öllum sviðum og skera niður kostnað á öllum sviðum sem má missa sín.

Menntun og heilbrigði er oftast  að mínu mati  nauðsynleg forsenda til þess að hámarka arðinn frekar enn kostnaður til niðurskurðar, tölum um hagræðingu.     

Júlíus Björnsson, 26.1.2009 kl. 17:45

5 Smámynd: Fannar frá Rifi

nú á að fórna öllum hugsjónum og stefnumálum fyrir völdin.

Fannar frá Rifi, 26.1.2009 kl. 19:57

6 Smámynd: Júlíus Björnsson

Grasið er grænna hinum megin: vælið er byrjað. Tækifærisinnarnir eru samir við sig.   Seðlabankinn [330.000 íbúar] einn sér er brandari en ekki starfsmennirnir. Kauphöll: DeCode, Össur, Marel, Straumur Burðarás. Arðgreiðslur í verðbréfum.

Júlíus Björnsson, 26.1.2009 kl. 20:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband