Áhugavert framboð fullveldissinna !!!

Nýtt framboð gegn aðild Íslands að Evrópusambandinu  og
flokksræði er að sjá dagsins ljós. Þetta kom fram í fréttum í gær,
og ber að fagna því. Fyrir framboðinu fara þeir Bjarni Harðarson
fyrrverandi þingmaður Framsóknarflokksins, og séra Þórhallur
Heimisson sbr. Vísir.is. Stefnt er að framboði á landsvísu, og
vinnur um hundrað manna hópur að því að setja saman lista
í öllum kjördæmum landsins fyrir komandi kosningar. Skv.Vísir.
is eru m.a  Helga Thorberg leikkona og Páll Vilhjálmsson blaða-
maður sem hafa komið að undirbúningi framboðsins.

   Ljóst er að í komandi kosningum og árum verður tekist  á um
sjálfstæði og fullveldi þjóðarinnar. Hið stórpólitiska hitamál, aðild
Íslands  að  Evrópusambandinu, verður þar efst á  blaði. Því  er
afar mikilvægt  fyrir einlæga fullveldissinna að geta stutt og kosið
framboð sem hægt er 100% að treysta í Evrópumálum. Í dag eru
núverandi flokkar meir og minna klofnir í þessu stórpólitíska hita-
máli. ENGUM er þar lengur treystandi. - Þarna gæti myndast kjör-
inn pólitiskur vettvangur íslenzkra fullveldissinna. Allra frjálslyndra
þjóðlegra afla.

   Hið nýja framboð höfðar til hófsamra borgaralegra gilda, og hafnar
því öllum öfgum hvort sem þau koma frá hægri eða vinstri.

   Það skyldi þó ekki vera að þetta framboð fullveldissinna kæmi og
sigraði í komandi þingkosningum. Íslandi og íslenzkri þjóð til heilla!  

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband