Kommúnistastjórnin ætti að skammast sín !


    Á sama tíma og  kommúnistastjórn  Jóhönnu  Sigurðardóttir
hyggst ausa hátt á annan milljarð í eitthvað stjórnlagaþingsrugl,
er Landhelgisgæslan fjársvelt. Og nú er svo komið að rætt er um
að hið  nýja varðskip verði leigt Norðmönnum, þar sem Landhelgis-
gæslan skortir allt rekstrarfé til að reka það. Hér er ósvifni vinstr-
mennskunar best lýst hvað varðar öryggis-og varnarmál þjóðar-
innan. Hér er komin til valda mjög vinstrisinnuð ríkisstjórn, já hrein-
ræktuð kommúnistastjórn,  sem lætur öryggismál þjóðarinnar lönd
og leið.  Enda hennar helsta framtíðarmarkmið eftir kosningar að
koma þjóðinni undir erlent vald, og þá væntanlega með það í huga
að láta erlenda aðila sjá um t.d landhelgisgæsluna, þegar okkar
dýrmætu fiskimið eru komin undir  Brussel-valdið, eins og Samfylk-
ingin og Vinstri grænir stefna að með  ESB-umsókn eftir kosningar.
 
   Þvílíkur aumingjaskapur og þjóðarskömm Jóhanna Sigurðardóttir!
mbl.is Nýtt varðskip LHG gæti farið í útleigu til Noregs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Væri nú ekki nær að helvítis Sjálfstæðisflokkurinn myndi skamma sér fyrir að koma okkur í þessa stöðu.

Frekar vill ég leigja norðmönnum skipið heldur en að draga úr þeirri þjónustu sem við erum nú þegar með í gangi.

Málið er ósköp einfalt alveg eins og er á öðru hverju heimili á íslandi í dag, þetta snýst bara um að ná endum saman.

Þú sem bókhaldari hlýtur að skilja það að ný stjórn fyrirtækis(ríkisins) getur ekki hlupist undan skuldum gömlu stjórnarinnar. Og þegar þú átt að borga meira en þú átt þá er bara hægt að gera annað en að spara.

Og hvað varðar stjórnlagaþing þá er það alveg eins og í fyrirtækjum þegar þú ert með drulluna upp á bak og ræður bara engann veginn við það sem þú ert með í gangi þá þarftu bara stundum að fá þér bleiju sem ver þig.

Frekar vill ég eyða smá pening í þetta núna undir stjórn vinstri stjórnar heldur en að lenda í annari Sjálfstæðiskreppu næst þegar þeir komast í stjórn.

Lífið er ekki dans á rósum í kreppu, sorrý.... 

Ingvar Örn Ingólfsson (IP-tala skráð) 30.3.2009 kl. 10:41

2 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Ingvar. Alveg ´dæmigert með ykkur róttæklinganna. Stjórnarskráin hefur
EKKERT með kreppu og efnahagshrun að gera. NÁKVÆMLEGA EKKERT.
Samt á að henda á annan milljarð í einhverja kjaftasamkundu en niðurstaða hennar hver sem hún  verður  þarf hvort sem er að leggja fyrir
Alþingi. ALGJÖRT ´VÍTAVERT bruðl með almennafé meðan ríkiskasinnin er
galtómur, og varðskipin okkar bundin í höfn vegna peningaleysis.
Alveg dæmigert fyrir ykkur vinstrisinna undir stjórn manneskju sem ber
FULLA ábyrgð á efnahagshruninu verandi í fyrri ríkisstjórn. Manneskju sem
ætlar að toppa svínaríið og glæpinn gagnvart þjóðinni með því að reyna
að koma henni undir erlent vald.  Þvílík óþjóðhollusta!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 30.3.2009 kl. 10:56

3 identicon

Stjórnlagaþing er eitt mikilvægasta málið í dag.
Það verður að tryggja að valdasjúkir og spilltir stjórnmálamenn geti ekki haldið þjóðinni í gíslingu eins og gerst hefur síðustu ár.
Stjórnmálaflokkarnir hafa ekkert með stjórnarskrána að gera.
Stjórnmálaflokkur er eins og hvert annað félag sem berst fyrir ákveðnum hagsmunum eins og t.d. íþróttafélög, skákklúbbar, hundavinafélög etc. 


Stjórnlagaþing á að tryggja að hagsmunir þjóðarinnar séu settir í öndvegi en á ekki að vera hagsmunagæsla fyrir spillt stjórnmálaöfl.

Jón (IP-tala skráð) 30.3.2009 kl. 11:23

4 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Jón. Mikill er misskilningurinn  hjá þér. Hvergi á byggðu bóli í heiminum
kemur stjórnarskrá ríkis sem slík í veg fyrir spillingu. Svo skaltu hafa í huga
að  ALLT sem kæmi út úr þessu stjórnlagaþingi þurfa alþingismennirnir,
ALÞINGI, að samþykkja að lokum. Þannig að þó svo að stjórnlagaþing kæmist að niðurstöðu er þar með ALÆLS EKKI tryggt að Alþingi samþykki
það. Þess vegna á stjórnarskrárnefnd  Alþingis að fjalla um stjórnarskrárbreytingar, margfallt ódýrara, og þá kæmi strax í ljós
hvort tilskilinn meirihluti væri á alþingi að breyta þessu eða hinu í
stjórnarskránni. Því Alþingi hefur ALLTAF síðasta orðið. Þess vegna er
það út í hött og brjálæðislegt að fara NÚNA í miðri krepunni að fara
henda hátt í 2 milljarða í það sem enginn veit hvað eða hvort nokkuð kemur
útúr.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 30.3.2009 kl. 12:58

5 identicon


Alþingi hefur ekkert með stjórnlagaþingið að gera.
Stjórnlagaþing semur nýja stjórnarskrá og hún verður lögð beint undir þjóðaratkvæði.
79 gr. í  "gömlu" stjórnarskránni um samþykki Alþingis verður afnumin. Aðeins þjóðaratkvæðagreiðsla gildir.

Gæta verður þess að stjórnmálaflokkarnir og klíkur þeirra komi hvergi nærri Stjórnlagaþingi.
Þar á eingöngu að vera óháð fagfólk og fulltrúar fólksins.
(Fulltrúa almennings væri hægt að velja  með handahófsúrtaki úr þjóðskrá)
Markmiðið er að semja stjórnarskrá sem tryggir lýðræði og jafnræði í þjóðfélaginu.

Stjórnarskrá lýðveldisins Íslands:
http://www.althingi.is/lagas/nuna/1944033.html

Jón (IP-tala skráð) 30.3.2009 kl. 14:18

6 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Jón. Stjórnlagaþingið er kosið af þjóðinna þar sem enginn stjórnmálamaður
er í kjöri. Allar niðurstöður þess þurfa svo samþykis Alþingis, sem er æðsti
löggjafinn, ekki síst varðandi allar stjórnarskrárbreytinggar. Alþingi þarf líka
að samþykkja breytingu á 79 gr eins og öllum greinum stjórnarskráirinnar.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 30.3.2009 kl. 15:15

7 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Guðmundur þjóðin getur vel sett sér reglur þar sem að samþykki Alþingis er ekki krafist. Bendi t.d. á að ef Forseti neitar að undirrita lög frá Alþingi þá á að bera það undir þjóðaratkvæði.

Magnús Helgi Björgvinsson, 30.3.2009 kl. 15:38

8 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Magnús. En þær reglur eru ekki í dag! Alþingi hefur síðasta orðið ÁÐUR en
lagabreytingar á stjórnarskránni fara fyrir þjóðina.  Stjórnlagaþingið er því
rándýrt prump upp á 2 milljarða takk.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 30.3.2009 kl. 20:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband