Samfylkingin ætti að skammast sín í icesavemálinu


    Össur Sakarphéðinsson utanríkisráðherra og Samfylkingin ættu
að skammast  sín í icesavemálinu  svokallaða. Hefði  Samfylkingin
í upphafi með utanríkisráðuneytið á sinni könnu beitt sér af hörku
í málinu gagnvart breskum stjórnvöldum hefði málið verið löngu
leyst. Sanfylkingin hefur frá upphafi dregið lappirnar í máli þessu
í von um gott veður varðandi aðild Íslands að ESB. Hefur meir  að
segja gengið svo langt í flatmagahætti að líða Bretum enn að beita
hryðjuverkalögum gagnvart íslenzkri þjóð. Viðbrögð Össurar nú við
ummælum Gordons Browns varðandi icesaveskuldirnar og Alþjóða-
gjaldeyrissjóðinn er því ekkert annað en syndamennska að hætti
vindhana.

   Enn eitt dæmið um handónýtan flokk þegar íslenzkir hagsmunir
eru annars vegar. Enda situr Össur, Jóhanna og Samfylkingin öll
nú á svikráðum við íslenzka þjóð og vélar um það með Vinstri græn-
um hvernig best yrði staðið að því að innlima Ísland inn í Stórríki
Evrópu, með tilheyrandi fullveldisafsali og þjóðfrelsissviftingu.
mbl.is Mótmæli vegna Gordons Brown
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Júlíus Björnsson

Segðu bara gegn ES: Evrópu Sameiningunni eins og hún leggur sig. Stólarnir í ES bíða eftir k-rötum enda stutt í eftir innlimun að EFTA verði lagt af. 

Er það ekki rétt að erlendu fjárfestarnir eru aðallega þýskar lánastofnanir?

Ef svo þó þá hljóta þessi gengisstyrkjandi gæði að túlkast fórnarkostnaður í framtíðinni.

Annars hef ég séð betri leikrit um ævina. Vonda löggan og góða löggan.

Tvö höfuð á sama búk Sameiningarinnar.

Við áttum að fella þá á eigin bragði og aldrei greiða skuldir einframtakisins en í stað þess að færa Íslensku glæpamennina í fangelsi. Sýna umheiminum utan ES að við séum ekki aumingjar.

Júlíus Björnsson, 9.5.2009 kl. 02:00

2 Smámynd: Guðmundur St Ragnarsson

Algjörlega sammála nafni. Svo grettir Össur sig í fjölmiðlum. Eintóm sýndarmennska og leikrit!

Guðmundur St Ragnarsson, 9.5.2009 kl. 02:22

3 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Takk fyrir innlegg ykkar hér piltar!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 9.5.2009 kl. 13:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband