Jóhanna þessi á að segja af sér TAFARLAUST !!!


   Jóhanna Sigurðardóttir ,,forsætisráðherra" á að segja af sér
TAFARLAUST  vegna  ÞJÓÐARHAGSMUNA. Sá stjórnmálamaður
sem svo BERLEGA vinnur gegn hagsmunum íslenzku þjóðarinnar
eins og Jóhanna Sigurðardóttir gerir leynt og ljóst, á að hverfa
úr íslenzkum stjórnmálum þegar í stað.

   Jóhanna Sigurðardóttir BER FULLA ÁBYRGÐ á ÖLLU bankahrun-
inu í haust sitjandi í þáverandi ríkisstjórn. Gerði EKKERT í því
eins og Samfylkingin að halda uppi málsvörn fyrir  íslenzku þjóð-
ina  gagnvart  erlendum  kröfuhöfum. Heldur þvert  á  móti gekk
þeim á  hönd, og  samþykkti allar órökstuddar kröfu þeirra. Kröfur
sem hafa ekki einu sinni  neina lagastoð innan sjálfs ESB  eða
Evrópurétti.  Bætir svo gráu ofan á svart að krefst þess að íslenzka
þjóðin greiði allar þessar óreiðuskuldir mafíuósanna sem hún BER
ENGA ábyrgð á. Meira að segja öryrkjar og gamalmenni skulu herða
enn súltarólina til að borga brúsann að kröfu Jóhönnu.  Á meðan 
mafíuósanir  ganga enn  lausum hala  og hafa í engu svarað fyrir
stórglæpi sína. Nauðungarsamningur sá sem Jóhanna ætlar svo að
láta þjóð sína undirgangast er ígildi Versalasamningi í fimmta veldi.
ALLT til að þóknast fyrrum erlendum nýlenduherrum  til  að  fá  gott
veður inn í Evrópusamband Jóhönnu. En með ESB-aðild  gerir þessi
sama Jóhanna GRÓFLEGA aðför að íslenzku fullveldi og sjálfstæði og
forræði þjóðarinnar yfir sínum helstu auðlindum.

   Og ALLT þetta gerist í boði vinstristjórnar sem Vinstri grænir styðja
og BERA FULLA ÁBYRGÐ Á.  Mesta aðför að íslenzkum hagsmunum og
íslenzkri þjóðartilveru er gerð einmitt í stjórnartíð vinstrimanna og það
af þeirra EIGIN TILSTUÐLAN. And-þjóðlegt hugarfar þeirra kristallast nú
ALGJÖRLEGA, þjóðinni víti til varnaðar vonandi síðar meir.

    Jóhanna !  Þjóðin hefur fengið nóg af undirferli þínu og svikráðum !! 
Farðu frá áður en þjóðin rís endanlega upp og tekur völdin í sínar
hendur, sér og ÍSLANDI  til heilla !!!!!!!!!!!

  
mbl.is Tortryggni í samfélaginu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Heill og sæll; Guðmundur Jónas, æfinlega !

Því miður; eiga þín þungu orð, við nokkur rök að styðjast.

Það er; engan veginn einleikið, hversu þjóðlífið gengur, á afturfótunum - þessi misserin, og,....... eins og undirheima öfl, leitist við, að grafa okkur, dýpri gröf, en við hefðum, getað látið hvarfla, að okkur, hér áður fyrri.

Verst er þó; að þau Jóhanna og Steingrímur, eru ekki þar, ein í sök. Við þurfum; að fara aftur á 9. áratug liðinnar aldar; hvar kvótakerfið, til lands og sjávar, átti upptök sín.

Ofurgræðgi; nokkurra samlanda okkar, hefir gert að verkum, að nýliðun búskapar, hins yngra fólks, til sveita - líka sem; útgerð og fiskvinnzla, til sjávar, eru yngra fólki, með öllu ókleyft, að hefja, eins og við vitum báðir.

ESB/AGS samsteypan; hefir komist á bragið, með auðlindir okkar, og,, hvers við erum megnug, bærum við Íslendingar gæfu til, að standa saman. 

Ömurlegast alls; er, hversu, þau Jóhanna og Steingrímur, eru fylgis spök þeim öflum, sem granda vilja, okkar samfélagi.

Það eitt; og sér, er alvarlegast alls, Guðmundur Jónas.

Því; ber okkur öllum - hvar í flokki, eða utan flokka, að standa saman, gegn vá þeirri, sem að okkur steðjar - innan lands frá, sem utan !!!

Með beztu kveðjum; sem oftar og fyrri, úr Árnesþingi /

Óskar Helgi Helgason 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 24.6.2009 kl. 00:49

2 Smámynd: Júlíus Björnsson

Við ES-sinnanna er það segja ef þetta er undirlægjuhátturinn sem þið að ætlið að sýna gamla alþjóðasamfélaginu þá bíð ég guð að hjálpa ykkur þegar inn er komið og mútum lýkur. Níðast á börnum og gamalmennum eigin þjóðar.

Júlíus Björnsson, 24.6.2009 kl. 04:28

3 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

 Aldrei séð Steingrím brosa í viðtölum fyrr en nú,hvað gleður hann svona mikið?Þennan gamla vandlætara.

Helga Kristjánsdóttir, 25.6.2009 kl. 01:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband