Icesavesinnar í meirihluta á Alþingi Íslendinga ?


    Það er hörmulegt fyrir land og þjóð ef icesave-hryllingurinn
verður samþykktur á Alþingi Íslendinga næstu daga.  Eftir að
Sjálfstæðisflokkurinn  og  Borgarahreyfingin  svikust undan
merkjum, og samþykktu icesave með málamyndafyrirvörum,
í fjárlaganefnd, er ljóst að útlit er fyrir að  mikill meirihluti er
fyrir  þjóðsvikasamningnum  á Alþingi. Með tilheyrandi  efna-
hagslegum þrengingum fyrir hina íslenzka þjóð næstu áratugi.

   Alveg SÉRSTAKLEGA ber að gagnrýna Sjálfstæðisflokkinn í
þessu máli. Hann er ekki bara að svíka þjóðina, heldur að
bjarga ömurlegustu ríkisstjórn ALLRA TÍMA úr snörunni. Og
það vinstristjórn  kommúnista og krata!  Sem samþykktu
þennan þjóðsvikasamning, ígildi Versalasamnings í tíunda
veldi,  og  er auk þess  búin  að sækja  um  aðild  Íslands að
Evrópusambandinu. Þar sem  stórkostleg  fullveldisskerðing
og afsal auðlinda á að bætis við icesave-fáttæktina, skv. ráða-
bruggi Samfylkingarinnar.  Allt þetta virðist Sjálfstæðisflokk-
urinn horfa framhjá um leið og hann sker vinstristjórnina úr
icesave-snörunni. - Svo þýkist þessi flokkur á tyllidögum vera
málsvari þjóðlegra borgaralegra afl!  Þvílíkt bull og öfugmæli!

    Stórhluti íslenzkra kjósenda sem aðhyllast ÞJÓÐLEG og
BORGARALEG VIÐHORF hafa verið illilega svikin, í hverju
stórmálinu á fætur öðru. - Er nema að furða að sá stóri
kjósendahópur fari nú að  hugsa  sér  nýjan  málsvara í
íslenzkum  stjórnmálum?  Aulahátturinn á mið/hægri kanti
íslenzkra stjórnmála er algjör, enda afdönkuð vinstristjórn
komma og krata við völd nú í byrjun 21 aldar á Íslandi.

    SKANDALL!!!!!
  
     www.zumann.blog.is
mbl.is Býst ekki við gagntilboði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Heill og sæll; Guðmundur Jónas !

Jú; og þó eru þessir svika reikningar, langt í frá, það eina, sem dúkka skal upp, frá borðum ''gagnsæis'' og ''upplýstrar umræðu'' , Guðmundur Jónas.

Með beztu kveðjum; sem jafnan /

Óskar Helgi Helgason 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 18.8.2009 kl. 16:32

2 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Takk Óskar minn!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 19.8.2009 kl. 00:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband