Með Davíð á heilanum


   Þetta er að verða ansi pirrandi. Ekki opnað fyrir einhvern
viðtalsþátt þá skuli Davíð Oddsson nýráðinn ritstjóri vera
helsta  umræðuefnið. Og það á mjög  neikvæðum  nótum.
Einkum vinstrimanna, og þeirra sem virðast hafa Davíð svo 
á heilanum, að það er orðið nánast sjúklegt.

  Að sjálfsögðu er Davíð umdeildur, enda fyrrverandi stjórn-
málamaður. En hvaða stjórnmálamaður er það ekki?  Hvað
með Jóhönnu Sig  og  Steingrím J ? Í hverju  standa  þau
skötuhjú í dag?  Að skuldsetja íslenzka þjóð hátt í ÞÚSUND
MILLJARÐA, sem þjóðin BER ALLS EKKI AÐ GREIÐA ? EKKI
KRÓNU!  Með hrikalegum efnahagslegum afleiðingum til
næstu áratuga. OG ÞAÐ FYRIR SKULDIR ÚTRÁSARMAFÍÓSA
að annars glæpahýskis, sem þjóðinni er ALGJÖRLEGA óvið-
komandi. Hefur Davíð Oddsson framið slíkan STÓRGLÆP
gagnvart þjóð sinni? Og í hvaða  þjóðríki  myndi  slíkum
stjórnmálamönnum og Jóhönnu og Steingrími verða liðið
slík þjóðarsvik? Fyrir svo utan það að vilja  troða  Íslandi
inn  í erlent ríkjabandalag með tilheyrandi fullveldisafsali
og afsali  helstu auðlinda til yfirþjóðlegs valds. Einmitt til
þeirra sem nú ganga hvað harðast í því að kúga okkur í
icesave-þjóðsvikasamningum.  Hvers vegna lokar vinstra
augað fyrir  glæpum þessara stjórnmálamanna, og segir
ekki upp áskriftinni af   icesace-stjórninni, en einblínir á
einhvern ritstjórnarstól upp í Hádegismóum?

  Allt er þetta með hreinum eindæmum.!

    www.zumann.blog.is
    www.fullvalda.is

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Heill og sæll; Guðmundur Jónas, æfinlega !

Jah; maðurinn (Davíð Oddsson), er svona álíka trúverðugur, og plágur okkar hinar, Jóhanna og Steingrímur, þér að segja, gamli vinur.

Ég get ekki; með nokkru móti, skilið viðurkenningu þeirra Hádegis móa manna (Mbl. manna), á honum, og að lyfta honum, á þennan sess, sem mörgum öðrum hæfari, hefði átt að skipa, fremur.

Og; hér tala ég - hver; telst víst vera, lengst úti á hægri brún, sem kunnugt er.

En; dekri sumra Íslendinga, við núverandi stjórnmálamenn, sem aðra afdankaða, eru víst engin takmörk sett.

Því; er svo komið - sem komið er, Guðmundur minn.

Væri; bændum - sjómönnum - verkamönnum og iðnaðarmönnum, hossað jafn hátt, þá teldist nú siðmenningin einhvers virði hér, á Fróni.

En; svo er nú ekki, því miður.

Með beztu kveðjum; sem jafnan og ætíð, úr Árnesþingi /

Óskar Helgi Helgason 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 27.9.2009 kl. 16:31

2 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Óskar minn. Ekki að búast við að við getum verið sammála í öllu, þótt oftar
en ekki séum við það.  Með bestu kveðjum!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 27.9.2009 kl. 21:05

3 identicon

Komdu sæll; að nýju, Guðmundur Jónas !

Viltu þá; að við stöndum í stað ?

Eru hvítflibbarnir; sem og blúndu kerlingarnar, ekki búin að sanna gagnsleysi sitt ?

Treystir þú ekki; vinnandi stéttum framleiðslu - sem verðmæta sköpunar til, að taka við valdataumunum hér ?

Mér þætti akkur í; að fá svör þín, við þessum spurningum, fullveldis sinni góður.

Með beztu kveðjum; sem áður og fyrri, jafnan /

Óskar Helgi Helgason 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 28.9.2009 kl. 00:33

4 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Jú Óskar minn. Er einn af almúga þessa lands vinnandi stétta, og hef lugann úr ævinni starfað sem bókari í framleiðslugeiranum anti-kvítflibbum.
Þurfum að fara hittast yfir kaffibolla fullveldis sinni góður. Mínar bestu kveður! 

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 28.9.2009 kl. 01:19

5 identicon

Heill og sæll; sem oftar, Guðmundur Jónas !

Þakka þér; einurð alla, sem drenglyndi svara þinna, sem oftar.

Jú; ég mun hafa samband við þig, við tækifæri, þá ég er að erinda - vestan Sýslumarkanna, á haustdögum komandi.

Með beztu kveðjum; sem áður og fyrri /

Óskar Helgi Helgason

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 28.9.2009 kl. 01:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband