Vinstrimenn! Skammist ykkar !


  Á sama tíma og vinstristjórn krata og komma ræðst á
þá sem minnst meiga sín í þjóðfélaginu, veikt fólk, ör-
yrkja  og  gamalmenni, með  stórfeldum  niðurskurði,
er kastað á ANNAN MILLJARР króna í umsóknina að
ESB, fyrir utan allar skuldadrápsklyfjarnar, sem þessi
sama vinstristjórn hyggst kúga þjóðina  að  yfirtaka,
með icesave-þjóðsvikunum. En með þeim þjóðsvika-
samningi  er verið  að  rústa  velferðarkerfið  og  stór-
skerða lifskjörin  á  Íslandi  til  frambúðar. Fólk sem
hingað til hefur talið sig til vinstri og kosið skv. því,
ætti því virkilega að endurskoða  sína  pólitík, eða að
skammst sín ella  fyrir þessa mestu aðför að íslenzku
velferðakerfi sem sögur fara af, og sem vinstristjórn
þeirra stendur að þessa daganna. - Og á sama tíma
er gerð ein mesta aðför að þjóðfrelsi Íslendinga  með
ESB-umsókninni. ALLT í boði vinstrimennskunar á Ís-
landi.

   Þvílíkur SKANDALL og smán! Þvílík mannfjandssamleg
og and-þjóðleg ríkisstjórn vinstrimanna!

   ÁFRAM ÍSLAND. EKKI ESB! EKKERT ICESAVE NÉ AGS!

  www.zumann.blog.is
mbl.is Hvetur til töku lífeyris
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Varðandi umrædda atlögu að þeim sem minna mega sín, þá er skaðinn löngu skeður. Manstu kanski ? Gerendur hrunsins (bissness- og bankamennirnir...), stjórnmálaelítan hér síðasta áratug eða svo, og loks "eftirlitsmennirnir".

Svo má ekki gleyma ötulu samstarfi fjórflokksins í dag, þannig að það er óþarfi að hrópa að "vinstrimönnum", sem svo í raun eru ekki vinstrimenn eftir allt saman.

Armurinn (IP-tala skráð) 31.10.2009 kl. 10:20

2 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Skil þig vel Armurinn að þú skammist þín fyrir vinstrimennskuna, enda
undir nafnleynd hér. Bendi á að það var Jafnaðarflokkur Íslands, sem
barðist mest fyrir ESB-regluverkingu með EES, sem er hér aðal orsökudólgurinn hvernig komið er. Svo ætlar þessi sami vinstriflokkur að
leiða Ísland endanlega til slátrunar með ESB-aðild. Þannig ófarirnar beinas
að vinstrinu sbr icesave-þjóðsvikin. 

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 31.10.2009 kl. 14:02

3 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Og hvað niðurskurður er það varðandi öryrka og ellilífeyrirþega sem þú ert sérstaklega að meina Guðmundur?

Magnús Helgi Björgvinsson, 31.10.2009 kl. 14:34

4 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Þessi frétt fjallaði nú aðallega um að forstjóri ríkisspítala var að hvetja fólk til að fara fyrr á eftirlaun til að rýmka um á spítölunum svo ekki þurfi að segja upp fólki

Magnús Helgi Björgvinsson, 31.10.2009 kl. 14:38

5 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Þú hefur ekki verið á Íslandi Magnús minn að undanförnu. Lestu t.d heilsíðu
auglýsingu í Fréttablaðinu í dag frá Öryrkjabandalaginu. Magnús. Öll þjóðin
stendur frammi fyrir stór versandi lífskjörum. Þess vegna er það glæpsamlegt að auka stórlega við þau versnandi lífskjör með icesave, og
þessari andskotans ESB-umsókn, sem alveg hefði mátt bíða hjá ykkur, til
að veita þessum ESB-umsóknarkostnaði hátt í 2 milljaraða í velferðarkerfið.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 31.10.2009 kl. 14:51

6 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Eftir því sem ég best veit er aðallega verið að horfa í að tekjutengingar á bótum eru að aukast aftur tímabundið. Þ.e. að aðrar tekjur sem fólk hefur t.d. vegna eigna og vinnu og var búið að slaka mikið á eru að aukast aftur tímabundið. Það eru jú allstaðar verið að skera niður Guðmundur. Og það er ekki vegna aðildarviðræðna við ESB. Það varð nefnilega óvart hurn hér á landi fyrir rúmlega ári ef þú hefur ekki tekið eftir því. Og svar allra annarra Evrópuríkja sem hafa lent í hruni hefur verið að sækja um aðild að ESB! t.d. Svíþjóð, Finnland og Noregur. Þó Norðmenn hafi siðan fellt samninginn.

Magnús Helgi Björgvinsson, 31.10.2009 kl. 21:31

7 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Magnús. ESB-umsóknin og hinn stórkostlegi kostnaður við hana (svo verður
samningurinn 100% felldur) auk icesave-drápsskuldaklyfjarnar sem þið ætlið að  setja á ríkið án neinna lagaskyldu , mun ævarandi verða notað gegn ykkur, þegar stórskerða þarf velferðarkerfið vegna þessa nú og langt inn í framtíðina. Enda hafa vinstrimenn ætíð þótt andskotans sama um okkur almúgann þegar þeirra pólitísku gæluverkefni eru í  veði sbr allt söguferli vinstrimanna frá upphafi, með öllum kommúnisku alþýðulýðveldunum meðtöldum.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 31.10.2009 kl. 21:48

8 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Fyrir Ísland að ganga í ESB eftir hrunið væri að fara úr öskunni í eldinn,
m.a með missi dýrmætra auðlinda eins og fiskimiðanna í gyn Brusselsvaldsins. Myndi stórauka enn á fáttækinna á Íslandi, enda í
100% samræmi við vinstrimennskuna, sem næsist á eymd og fátækt og
ósjálfstæði þjóða Magnús minn.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 31.10.2009 kl. 21:52

9 identicon

Ég er að spekulera !

Guðmundur !

Ef þú værir fugl  hvers konar fugl værir þú ?

Þú værir ekki farfugl eða hvað ?

JR (IP-tala skráð) 1.11.2009 kl. 00:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband