Búskussi með dæmalausri jólakveðju-hroka


   Það getur ekki verið annar en afdankaður sósíalisti sem sendir
út jólakveðju til flokksmanna sinna með dæmalausum pólitískum
hroka og staðlausum ásökunum. Notar einmitt  sjálf  jólin til  að
útbreiða hið sósíalíska ,,fagnaðarerindi", því ekki mega sjálf jólin
og friðarboðskapur þeirra vera í friði þegar jafn róttækur sósíalisti
og Steingrímur J. á í hlut. Enda mikið í húfi.  Því  strax á milli jóla
og nýárs ætlar þessi sami Steingrímur að keyra í gegnum  Alþingi
Íslendinga   eitt  umdeildasta  mál  Íslandssögunar. -  Icesave-
þjóðsvikin. Móðuharðindi af mannavöldum. Sem koma til með að
rústa íslenzku velferðarkerfi a.m.k næstu áratuga, auk annarra
efnahagslegra stórtjóna fyrir land og þjóð. Gegn andstöðu yfir-
gnæfandi  meirihluta  landsmanna,  enda Steingrímur og  hin
and-þjóðlega  vinstristjórn hans og Jóhönnu handbendi erlendra
nýlenduvelda og sambandsríkis í máli þessu gegn Íslandi.

  Búskussinn Steingrímur J getur því trútt um talað, eða hitt þó
heldur. Búskussinn sem samdi af sér í Icesave með svo glæp-
samlegum hætti, að ekki kemst einu sinni  í hálfkvisti við Versala-
samninginn illræmda. Mokar svo út  flór útrásarmafíósanna á
kostnað saklausar íslenzkrar  þjóðar og án neinna lagaákvæða
þar um.

   Þvílíkur BÚSKUSSI! Og reynir svo að nota  sjálf JÓLIN til að moka
út FLÓRINN! Og það eftir sjálfan sig og hans afdönkuðu vinstristjórn.

   ÁFRAM ÍSLAND! EKKI ESB né SCHENGEN! EKKERT ICESAVE né AGS!

   www.fullvalda.is
   www.frjalstisland.is


mbl.is Tók við af „búskussa“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haraldur Baldursson

Móðuharðindi af mannavöldum er góð lýsing á fyrirætlan Steingríms.

Ég velti því fyrir mér hvort þessi sjálfhverfa nálgun Steingríms og Jóhönnu stafi af of mörgum speglum á veggjum ? Þau dásama erfið verkefni sín í hvívetna og við (ræflarnir) eigum, vænti ég, að standa með öndina í hálsinum og dáðst að þessu fórnfúsa fólki sem veit betur en þjóðin hvað er gott fyrir hana. Þau hljóta jú að meina vel með því að leyna okkur sannleikanum og plata okkur (verr meinandi menn en ég myndi etv. segja ljúga). Þau vita svo mikið betur en við, eins og tilnefning formanns samningarnefndar í Icesave bar vitni um. Þjóðin hefði aldrei látið sér dreyma um jafn glæsilega niðurstöðu og okkur var færð á silfurfati.

Jú Steingrímur er yfir allt og alla hafinn...hann svífur á æðra tilverustigi og við skulum bara fara að átta okkur á því að hann veit best, alveg eins og Stalín forðum, sem hreinsaði þjóðina af röflurum og þeim sem honum þóknaðist ekki.
Steingrímur minn haltu því bara áfram að vita betur fyrir okkur, en gerðu okkur samt þann greiða að nefna þig réttu nafni kæri Stalgrímur

Haraldur Baldursson, 25.12.2009 kl. 15:12

2 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Allt er þetta vinstrimennskan í hnotskurn Haraldur. Loks þegar HREINRÆKTUÐ vinstristjórn kemst til valda, er flatmagað gegn erlendri
kúgun, drápsklyfjar útrásarmafíuósa settar á saklausa þjóðina, og þar
með velferðarkerfinu rústað um ókomna tíð, og sjálfu fullveldi og
sjálfstæðinu ógnað með umsókn að ESB. 

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 25.12.2009 kl. 15:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband