Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2009

Flokksforysta Sjálfstæðisflokksins í pólitísku rugli


   Er gjörsamlega hættur að skilja pólitík flokksforystu Sjálfstæðis
flokksins. Í tveim stærstu pólitisku hitamálum lýðveldisins, ESB-
umsókninni, og icesave, sat vara-formaður Sjálfstæðisflokksins
hjá. SKILAÐI AUÐU!!! - Og í isesave-málinu skilaði formaðurinn
líka AUÐU, en bætti um betur og  hvatti  forsetann til að hafna
sjálfsagðri kröfu kjósenda að fá að kjósa um þetta stórpólitíska
hitamál. Treystir hvorki sjálfum sér eða kjósendum til að taka af-
stöðu til þessa stórmáls, sem snertir hvert mannsbarn í landinu 
til næstu áratuga. Þá yfirlýsti formaðurinn í gær jákværi afstöðu
sinni til að taka virkan þátt í vinnu Alþingis varðandi umsóknina
að ESB. Umsóknina sem hann fyrr í sumar hafði sjálfur hafnað.

   Formaður Vinstri grænna hefur verið sakaður um stefnufestu
á borð við Ragnar Reykás. Flokksforysta Sjálfstæðisflokksins
má vel skipa slíka stefnufestupólitík, eða stefnuleysispólitík.
Því það að sitja hjá í jafn miklu stórmáli og icesaave hlýtur að
vekja stórar efasemdir um setu viðkomandi á Alþingi Íslendinga.

   Flokksforysta Sjálfstæðisflokksins er í algjöru pólitísku RUGLI,
eins og hún raunar hefur  verið síðustu ár. Enda sæti  þjóðin
ekki  uppi í dag með afdánkaða vinstristjórn kommúnista  og
krata hefði flokksforysta Sjálfstæðisflokksins verðið eðlileg,
normal. - Alvarlegast er þó  að engin teikn eru á lofti um að á
þessu verði breyting á næstunni. Stefnuleysið og aulahátturinn
virðist hafa tekið öll völd þar á bæ.

   Þetta ástand er stórhættulegt. Því á mið/hægri kannti íslenzkra
stjórnmála, þar sem þjóðleg borgaraleg viðhorf og gildi  eru til
staðar, ríkir nú algjört pólitískt tómarúm, vinstriöflunum  til mik-
illar gleði og ánægju. - Það tómarúm þarf því að fylla hið snarasta.
Þjóðarhagsmunir Íslands kalla á það!

    Því verða allir þjóðhollir Íslendingar að hugleiða nú stofnun
borgaralegs flokks er hafi þjóðleg viðhorf og gildi og sjálfstæði
þjóðarinnar að leiðarljósi.

     www.zumann.blog.is 

Róttækur Þjóðlegur frelsisflokkur eina svarið !


   Með icesave-afgreiðslunni á Alþingi og ESB-umsókninni hefur
sannast í eitt skipti fyrir öll, að Fjórflokkurinn er gjörspilltur og
handónýtur fyrir íslenzka þjóð.  Situr gjörsamlega á svikráðum
við almenning í landinu. Lætur hann súpa seyðið af öllum póli-
tísku  afglöpunum, sem Fjórflokkurinn hefur gert, og hyggst nú 
fangelsa almenning inní í hrikalegu skuldafangelsi til næstu ára-
tuga. Vegna hrikalegra afglapa Fjórflokksins, sem hinn íslenzki
almenningur hefur HVERGI komið nærri. Afglöpum sem meir að
segja voru að miklum hluta framin í útlöndum, utan íslenzkrar
lögsögu,  af mafíósum einkaframtaka, og því þjóðinni og ríkis-
sjóði hennar GJÖRSAMLEGA ÓVIÐKOMANDI!!!!!

   Sósíaldemókratisminn og hin óhefta frjálshyggjuhugsjón bera
hér höfuð ábyrgð á, hvernig komið er fyrir hinni fámennu íslenzkri
þjóð. Sósíaldemókratisminn á Íslandi hefur ekki bara aldrei viljað
bera þjóðarhagsmuni fyrir brjósti, heldur hefur hann aldrei horfst
í augu við fámenni hennar og sérstöðu. Þröngvaði t.d heilum EES-
samingi upp á hana,  sem kom svo á daginn að passaði engan
veginn fyrir hennar örsmáa og  fábrotna  hagkerfi, með skelfilegum
afleiðingum.  En hinn öfgafulli alþjóðlegi sósíaldemókratismi lætur
sig aldrei segjast. Hefur nú þröngvað fram ESB-umsókn með ennþá 
hriklalegum afleiðingum verði sú umsókn að veruleika. Því allir vita
að ÖRRÍKI eins og Ísland hefur NÁKVÆMLEGA EKKERT inn í slíkt
ofurríkjabandalag stórþjóða að gera, nema þá til að tortímast endan-
lega. En það samrýmist einmitt hugmyndafræði sósóialdemókrata,
að tortíma því flestu sem höfðar til þjóðlegra viðhorfa og gilda, og
sem viðheldur þjóðfrelsi og fullveldi þjóða.  Og nú með aðstoð hér-
lendra sósíalista og kommúnista.

   Íslenzk þjóð þarf því í dag að hefja nýja sjálfstæðisbaráttu. Af-
rugla hið gjörspillta þjóðfélag sem Fjórflokkurinn hefur meir  og
minna skapað. Afturkalla  ESB-umsóknina  og þar með að koma í
veg fyrir stórkostlegt fullveldisafsal með tilheyrandi afsali mikil-
vægra auðlinda. Og síðast og ekki  síst,  kasta icesave út í hafs-
auga! - Því ÍSLENZK ÞJÓÐ er STOLT ÞJÓÐ, sem lætur ekki kúga
sig. Hvorki af erlendum kúgunaröflum eða innlendum þjóðsvika-
ölflum.

    Uppstokkun í íslenzkum stjórnmálum hlýtur því að eiga sér
stað á næstunni. Einkum á hinum þjóðlega borgaralega kannti
íslenzkra stjórnmála, eftir að Sjálfstæðisflokkurinn hefur  nú
GJÖRSAMLEGA  brugðist hlutverki sínu þar. - Einskonar Þjóð-
legur frelsisflokkur á borgaralegum grunni yrði þar áhugavert
svar. Flokkur róttækra hugmynda til uppbyggingar íslenzks
samfélags, með hagsmuni íslenzks  almennings og framtíðar
sjálfstæðrar íslenzkrar þjóðar fyrst og fremst í huga............. 

     www.zumann.blog.is
mbl.is Víki verði fyrirvörum hafnað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvaða fyrirbæri er þessi Sjálfstæðisflokkur ? Nýtt þjóðlegt afl blasir við!


    Hvaða fyrirbæri er þessi Sjálfstæðisflokkur eiginlega? Alla
vega ALLS EKKI málsvari hinna þjóðlegu borgaralegu afla í
íslenzkum stjórnmálum í dag! Það eitt er ljóst! Að sitja hjá
í stærstu skuldsetningu íslenzka  ríkisins  sem gæti  numið
fleiri  hundruðum milljarða, með  óútfylltum  ríkistékka  til
næstu áratuga, vegna  vítavers  samningsafglapa  vinstri-
stjórnar krata og kommúnista, er með ÖLLU ÓSKILJANLEGT!
Þessi makalausa hjáseta Sjálfstæðisflokksins kemur í kjöl-
far klofnings hans til annars stórmáls sem Alþingi samþykkti
fyrr í sumar. Umsóknina að ESB. En þar klofnaði flokkurinn,
og vara-formaðurinn sat þá líka hjá eins og nú í icesavemál-
inu. Hjásetur í jafn risastórum málum og þessum, þar sem
tekist er á um örlög heillar þjóðar, hvort sem um er að ræða
flokka eða þingmenn, setur stórt spurningarmerki við setu
og tilgang  þeirra á Alþingi Íslendinga. - Svo mikill og aug-
ljós er aulahátturinn og pólitíski aumingjaskapurinn í slíkum
hjásetum

  Ljóst er að Sjálfstæðisflokkurinn hefur nú misst allt traust
sem málsvari hinna þjóðlegu borgarasinnuðu afla í íslenzkum
stjórnmálum í dag. Sjálfstæðisflokkurinn virðist bera allt önnur
merki en merki stjórnmálaflokks. - Því hefur skapast algjört
tómarúm meðal þeirra tugþúsunda kjósenda sem aðhyllast
þjóðleg borgaraleg viðhorf. Það tómarúm VERÐUR að fylla
sem ALLRA FYRST. Sjálfstæði Íslands og íslenzkir þjóðarhags-
munir eru í húfi. - Ekki síst nú, þegar við völd er and-þjóðleg
vinstristjórn kommúnista og krata. Sem segir meir en orð fá
lýst um aulahátt og aumingjaskkap flokksforystu Sjálfstæðis-
flokksins á undanförnum árum.

   Hér með eru allir borgarasinnaðir þjóðlegir Íslendingar
hvattir til að íhuga þessi alvarlegu mál. Stofnun nýs stjórn-
málaflokks með borgaraleg og þjóðleg viðhorf og gildi  í
fyrirrúmi blasir við. Hef oft ákallað Þjóðlega frelsisflokkinn
í því sambandi. Að slíkri flokksstofnun gætu komið  allir
einstaklingar og samtök sem aðhyllast slík grunngildis-
viðhorf. - Því ÍSLAND HRÓPAR á slíkan flokk í dag.  Ekki
síst eftir hina sorglegu atburði gærdagsins!!

    www.zumann.blog.is

    M.a gætu www.fullvalda.is átt þátt í slíkri flokksstofnun
    breiðfylkingar þjóðlegra stjórnmálasamtaka.
mbl.is Icesave-frumvarp samþykkt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hafa þjóðsvikaöflin betur á Alþingi í dag ?


   Í dag kemur í ljós hvaða þjóðsvikaþingmenn og þjóðsvikaflokkar
styðja þjóðsvikaríkisstjórn vinstrimanna í icesave-deilunni. Verður
óútfylltur svikavixill óreiðumanna úr einkageiranum látin falla á
íslenzka þjóð, sem hún ber alls ekki að samþykkja, og þannig
látin draga skuldadrápsklyfjar útrásarmafíósa næstu áratugi ?
Með tilheyrandi eymd, fátækt og volæði. Eða munu þingmenn
standa MEÐ ÞJÓÐ SINNI og fella þennan landráðasamning,
sem er margfaldur hins illræmda Versalasamnings frá 1919?
Standa þingmenn MEÐ ÍSLENZKRI ÞJÓÐ, eða standa þeir Á
MÓTI íslenzkri þjóð á ögurstundu?  Um það  verður spurt á
Alþingi Íslendinga í dag.  Einfaldar getur það ekki verið!

   Ógæfa þjóðarinnar er að í kjölfar efnahagshrunsins af manna-
völdum tók við HANDÓNÝT og ÓÞJÓÐHOLL vinstristjórn kommú-
nista og krata. Sem gjörsamlega brást í því að STANDA  VÖRÐ
um íslenzka þjóðarhagsmuni. Heldur þvert á móti lagðist á sveif
með útrásarmafíuósum og erlendu kúgunarvaldi. Sem er alveg
dæmigert fyrir hina einu sönnu VINSTRIMENNSKU. Vinstrisinnar
hafa nefnilega  ALDREI VILJAÐ VITA um sínar þjóðlegu skyldur
og trúnað gagnvart þjóð sinni, sbr. ESB-umsóknin og nú icesave-
þjóðsvikasamningurinn.

   Afstaða stjórnarandstöðu er mikilvæg. Hver verður hún?  Mun
Sjálfstæðisflokkurinn enn og aftur bregðast sinni þjóðlegri borg-
aralegu skyldu? Hann gerði það  í ESB-umsókninni, og alveg sér-
staklega vara-formaður hans. Hvað gerir hann í icesave-afkvæða-
greiðslunni? Mun hann virkilega styðja þjóðsvikasamninginn sem
vinstriöflin ætla að knýa í gegn ? Taka þátt í aðför vinstriaflanna
að efnahagslegu sjálfstæði þjóðarinnar?  Bara til að þóknast
Evró-krötunum í ríkisstjórninni. Geri hann það, hefur Sjálfstæðis-
flokkurinn og forysta hans  ENDANLEGA fyrirgert ÖLLU er varðar 
tilkall til að vera brjóstvörn fyrir hin þjóðlegu borgaralegu öfl á
Íslandi.  - NÝTT ÞJÓÐLEGT stjórnmálaafl á ÞJÓÐLEGUM grunni
mun þá rísa upp. Sterkt og öflugt sem þjóðlegur vegvísir inn í
hina íslenzku framtíð...

    www.zumann.blog.is
  
mbl.is Icesave-umræðu að ljúka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÖSKRUM á málsvara útrásarmafíuósanna !!!!!!!


   Útrásarmafíuósar skópu hið efnahagslega  hrun  í  skjóli
stórgallaðra ESB-regluverka, sem hinir vinstrisinnuðu sósíal-
demókratar nauðguðu upp á þjóðina. Vinstrimenn meðtaka
nú  hrunið,  og gerast  nú sérstakir  málsvarar glæps þeirra,
og ætla almenning á Íslandi að taka á sig sökina, og borga
brúsann. Ætla þar með að innleiða á Íslandi eymd, fátækt
og volæði til næstu áratuga, með því að þröngva icesave
útrásarmafíósanna upp á blásaklausa þjóðina.  ÓSVIFNI
VINSTRIMENNSKUNAR GAGNVART ÍSLENSKRI ÞJÓР ER
ALGJÖR, því samfara þessu vill ríkisstjórn krata og komm-
únista svifta þjóðina sjálfstæðinu og yfirráðum yfir sínum
helstu auðlindum með því að ganga í hið sovétska ESB.

   Hafi einhvern tími verið tilefni til að hópast niður á Austur-
völl og ÖSKRA á  þessa  HANDÓNÝTU  og  AND-ÞJÓÐLEGU
stjórnmálaelitíu sem nú situr við völd, þá er það NÚNA!!!

   MÆTUM Á AUSTURVÖLL OG ÖSKRUM OG ÖSKRUM OG ÖSKRUM!
mbl.is Greiðsluviljinn að hverfa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÖSKRUM á icesave-þingmennina í dag !!!!!!!!!!


   Allt bendir til að icesave-samningurinn verði afgreiddur  á
Alþingi í dag. Þá kemur í ljós hverjir icesave-þingmennirnir
og icesave-flokkarnir verða. Hverjir munu samþykkja einn
mesta þjóðsvikasamning Íslandssögunar. Hverjir munu
gefast upp gegn erlendu kúgunarvaldi. Já, hverjir verða
mestu  þingræflarnir  í sögu  Alþingis. Aumingjar og  and-
þjóðlegir aular (m.a drukknir) sem þjóðin mun refsa mak-
lega í næstu þingkosningum. Aula-aumingjar  er  tilheyra 
handónýti hérlendri stjórnmálaelitíu, sem kominn er tími
til að þjóðin hendi út og úthýsi úr íslenzkum stjórnmálaum
fyrir fullt og allt.  Því það er þessi gjörspillta og handónýta
stjórnmálaelitía sem hefur leitt  efnahagshrunið yfir þjóðina
í dag. Og skellir svo ALLRI skuldinni og sökinni á blásak-
lausan almenning á Íslandi.   Mig og þig !!!!!!

   Það liggur við að maður gubbi af hinni pólitískri  spillingu
og aulahætti á Íslandi í dag. Verðug ástæða til að mæta á
Austurvöll í dag OG  Ö S K R A  OG   Ö S K R A   OG
  Ö S K R A !!!!!!! 

  www.zumann.blog.is

  p.s var að koma úr 5 daga fríi úr mínum vestfirskum
Ölpum.  Sbr. mín facebook........

   

  
mbl.is Tryggja að lánveitendur séu bundnir af fyrirvörum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Versalasamingurinn samþykktur / Þjóðin mun rísa upp !


   Allt bendir nú til þess að icesave, Versalasamingur vorra tíma
í tíunda veldi, verði samþykktur á Alþingi Íslendinga. Þrátt fyrir
að yfirgnæfandi meirihluti þjóðarinnar sé honum andvígur skv.
skoðanakönnunum. Þannig  verður þjóðin ekki  bara  kúguð í
áratuga skuldaklafa, eymd  og  fátækt af erlendum nýlendu-
fyrirbærum  21  aldar, heldur eru allar  líkur á  að  þjóðin verði
gert skylt að lúta þeirri kúgun af hennar eigin Alþingi og ríkis-
stjórn. Þjóðin verði þannig bæði kúguð og beitt ofbeldi og ofríki
bæði utanfrá og innan frá. - Hafi einhvern tíman þótt við hæfi að
tala um að einni þjóð hafi verið NAUÐGAÐ í orðsins fyllstri merk-
ingu þá er það í þessum hrikalega icesave-samningi. Því þjóðin
sem slík KOM HVERGI NÁLÆGT GLÆPNUM og á ÞVÍ ALLS EKKI
AÐ GJALDA Á NEINN HÁTT FYRIR HANN! 

   Íslenska stjórnmálamannaelítían hefur GJÖRSAMLEGA brugð-
ist. Icesave og útrásarmafían er afsprengi hennar. Frá upphafi
til enda. Fjórflokkurinn er pólitískt gjaldþrota. Hefur leitt þjóð-
ina í þá ömurlegu stöðu sem hún er í dag. Og til að fullkomna
glæpin og nauðgunina skal icesave-drápsklýfjarnar samþykkt-
ar í ALGJÖRRI  ANDSTÖÐU  VIР YFIRGNÆFANDI  MEIRIHLUTA
ÞJÓÐARINNAR! Allt í þágu  GJÖRSPILLTRAR og VANHÆFRAR
stjórnmálaelítíu.

   Þjóðin á bara eina leið til að komast frá skuldaklafanum og
öðlast FRELSI Á NÝ!  Gera UPPREISN gegn fjórflokknum. Mynda
og stofna nýjan pólitískan vettvangt, þar sem HAGSMUNIR
almennings á Íslandi verði settir í  ÖNDVEGI á grundvelli ÞJÓÐ-
LEGRA VIÐHORFA OG GILDA! Þar sem Versalasamningnum og
álíka þjóðasvikum  verði  hent langt út  í hafsauga, sbr. öllum
áformum um valdaafsal þjóðréttinda, sbr. ESB-aðild, samfara
nýju endurmati á stöðu Íslands í hinu alþjóðlega samfélagi.

   Já, þú Þjóðlegi frelsisflokkur. Hvenær kemur þú?

   MEÐ NÝTT og FRJÁLST ÍSLAND!!!

   www.zumann.blog.is
 
mbl.is Þingmenn í úlfakreppu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjálfstæðisflokkurinn hjálparsveit vinstristjórnar - Svikur hin þjóðlegu öfl!


   Björn Bjarnason fyrrv. ráðherra segir réttilega á heimasíðu
sinni að stjórnarandstaðan sé hjálparsveit ríkisstjórnarinnar 
í icesave deilunni. Þarna hlýtur Björn  fyrst  og  fremst  að eiga 
við Sjálfstæðisflokkinn og Borgarahreytinguna, því Framsókn
segist greiða atkvæði gegn icesave-samkomulaginu.

   Greinilegt er að mikill titringur er nú innan Sjálfstæðisflokksins
vegna kúvendingar hans varðandi icesave. Því hér er flokkurinn 
að svíkja þjóðina, bjarga pólitísku lífi vinstristjórnar kommúnista
og krata, og að ganga ÞVERT á sína grundvallarstefnu varðandi
ríkisábyrgðir og skuldavæðingu ríkisins. ÞEGAR ENGIN LAGALEG
RÖK EÐA SKYLDUR knýa á um það.  Hér er flokksforysta Sjálf-
stæðisflokksins ENN OG AFTUR að fremja pólitísk afglöp. Eftir
þessi stóru  afglöp hljóta  nú  hin ábyrgu  þjóðlegu öfl innan
flokksins að yfirgefa hann. Flokkurinn hlýtur nú endanlega að
klofna! Þjóðhollir menn þar á bæ geta ekki látið misbjóða sér
endalaust í aulahætti og pólitískum aumingjaskap.

   Hér með er skorað á alla þjóðholla sjálfstæðismenn að yfir-
gefa flokkinn, og koma til liðs við  þá  tugþúsunda  íslenzkra
kjósenda, sem  aðhyllast ÞJÓÐLEG  BORGARALEG  VIÐHORF.
Kjósenda sem  fyrir  löngu eru búnir  að  missa allt traust á
núverandi stjórnmálastett. Kjósenda sem vilja stokka upp
íslenzk stjórnmál á mið/hægri kannti þeirra. Með tilkomu nýs
pólitísks vettvangar og vegvísis.  ÞJÓÐLEGS BORGARALEGS
FLOKKS, ÍSLENZKRI þjóð og ÍSLANDI  til heilla og farsældar.

    www.zumann.blog.is


 
mbl.is Bjarni friðar „skrímsladeild“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Já. Framsókn á hrós skilið í icesave-málinu !


     Vert er að allir njóti sannmælis þegar vel er að málum staðið.
Því á Framsóknarflokkurinn hrós skilið hvernig hann hefur unnið
fyrir íslenzka þjóðarhagsmuni í svokölluðu icesave-máli.  Ekki
síst ef hann EINN FLOKKA stendur í lappirnar á Alþingi Íslend-
inga og greiðir EINN FLOKKA atkvæði gegn hinum ALVERSTA
þjóðsvikasamningi sem nokkur þjóð hefur verið kúguð til að
samþykkja. Og eru þá hinir illræmdu Versalasamningar  sem
þýzka þjóðin var kúguð til að undirrita ekki undanskildir. Já,
ætla bara að hrósa mínum gamla flokki, þótt leiðir okkar hafi
skilið fyrir nokkrum árum, m.a vegna ESB-daðurs hans, sem
hann er þó  hvergi nærri laus við í dag.

    Icesave-flokkarnir verða því fjórir talsins, ef Sjálfstæðis-
flokkur og Borgarahreyfing  ætla að samþykkja icesave-sam-
ningana, sbr. niðurstaða fjárlaganefndar á dögunum. ÖMUR-
LEGAST verður að horfa upp á Sjálfstæðisflokkinn SAMÞYKKJA
ícesave með STÓRGÖLLUÐUM fyrirvörum á ríkisábyrgð, sem
munu ekki halda vatni þegar á reynir. Annað hvort er icesave
samþykktur eða ekki.  Málamyndafyrirvarar skipta þar ENGU
um. Skuldaklafinn blasir við þjóðinni næstu áratugi, með til-
heyrandi eymd, fátækt og volæði. Og þetta  ætlar  svo Sjálf-
stæðisflokkurinn að samþykkjja. Taka þátt í ÖREIGAVÆÐINGU
vinstriflokkanna. - Með hreinum ÓLÍKINDUM!

   Icesaveflokkarnir munu grafa sínar grafir þegar þjóðin fer
að taka afleiðingum misgjörða þeirra. Hún mun rísa þá upp
gegn þeim, og berjast undan oki þjóðsvikasamninganna,
eins og þýska þjóðin gerði gagnvart hinum illrömdu Versala-
samningum. 

   www.zumann.blog.is
   www.fullvalda.is

Icesavesinnar í meirihluta á Alþingi Íslendinga ?


    Það er hörmulegt fyrir land og þjóð ef icesave-hryllingurinn
verður samþykktur á Alþingi Íslendinga næstu daga.  Eftir að
Sjálfstæðisflokkurinn  og  Borgarahreyfingin  svikust undan
merkjum, og samþykktu icesave með málamyndafyrirvörum,
í fjárlaganefnd, er ljóst að útlit er fyrir að  mikill meirihluti er
fyrir  þjóðsvikasamningnum  á Alþingi. Með tilheyrandi  efna-
hagslegum þrengingum fyrir hina íslenzka þjóð næstu áratugi.

   Alveg SÉRSTAKLEGA ber að gagnrýna Sjálfstæðisflokkinn í
þessu máli. Hann er ekki bara að svíka þjóðina, heldur að
bjarga ömurlegustu ríkisstjórn ALLRA TÍMA úr snörunni. Og
það vinstristjórn  kommúnista og krata!  Sem samþykktu
þennan þjóðsvikasamning, ígildi Versalasamnings í tíunda
veldi,  og  er auk þess  búin  að sækja  um  aðild  Íslands að
Evrópusambandinu. Þar sem  stórkostleg  fullveldisskerðing
og afsal auðlinda á að bætis við icesave-fáttæktina, skv. ráða-
bruggi Samfylkingarinnar.  Allt þetta virðist Sjálfstæðisflokk-
urinn horfa framhjá um leið og hann sker vinstristjórnina úr
icesave-snörunni. - Svo þýkist þessi flokkur á tyllidögum vera
málsvari þjóðlegra borgaralegra afl!  Þvílíkt bull og öfugmæli!

    Stórhluti íslenzkra kjósenda sem aðhyllast ÞJÓÐLEG og
BORGARALEG VIÐHORF hafa verið illilega svikin, í hverju
stórmálinu á fætur öðru. - Er nema að furða að sá stóri
kjósendahópur fari nú að  hugsa  sér  nýjan  málsvara í
íslenzkum  stjórnmálum?  Aulahátturinn á mið/hægri kanti
íslenzkra stjórnmála er algjör, enda afdönkuð vinstristjórn
komma og krata við völd nú í byrjun 21 aldar á Íslandi.

    SKANDALL!!!!!
  
     www.zumann.blog.is
mbl.is Býst ekki við gagntilboði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband