Verður íslenzkur málstaður nú loks ræddur og varinn?


   Ferð formanna Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks með
fjármálaráðherra til Bretlands og Hollands til að ræða um
Icesave við þarlenda ráðamenn, vekur athygli og ýmsar
spurningar. Óneitanlega vekur hún ekki síður tortryggni
örfáum vikum fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna. - En sé hún
einungis farin í þeim tilgangi að koma íslenzkum málstað
á framfæri og verja hann, sem algjörlega hefur skort af
hendi ríkisstjórnarinnar, þá er það vel. Ekki síst komist
það skýrt til skila, að ríkissjóður Íslands mun ekki greiða
krónu varðandi Icesave-ruglið, og því síður að veitt verði
ríkisábyrgð. Enda hvort tveggja brot á tilskipunum ESB.

  Það að fulltrúi Samfylkingarinnar skuli ekki vera með í
för er hins vegar skiljanlegt. Enda um flokk að ræða sem
varla getur talist íslenzkur. Fulltrúi Hreyfingarinnar hefði
þó mátt vera með í för.

  ÁFRAM ÍSLAND! EKKI ESB né SCHENGEN! EKKERT ICESAVE né AGS!

  www.fullvalda.is
  www.frjalstisland.is
 

   


mbl.is Utan til funda vegna Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rauða Ljónið

Vonum að við fáum leiðréttingu hvorki Indriði eða Svavar eru með í för.

Rauða Ljónið, 28.1.2010 kl. 21:37

2 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Alla vega Sigurjón að ÍSLENZK sjónarmið komist til skila. Eigum ekki að
borga krónu og því síður að veita ríkisábyrgð.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 28.1.2010 kl. 21:46

3 Smámynd: Halla Rut

Ég er fegin að engin frá Samfylkingunni fór með. Ég hef ekki áhuga á að Jóhanna eða hennar fólk tali mínu máli sem Íslendingur.

Ég hefði viljað að einhver frá Hreyfingunni hefði farið með. 

Halla Rut , 29.1.2010 kl. 13:33

4 Smámynd: Elle_

Það hefði verið skemmdarverk ef Jóhanna og co. færu með.  Til hvers nema tala fyrir Breta og Hollendinga eins og vanalega?

Elle_, 31.1.2010 kl. 00:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband