Steingrímur J. mun meiri ESB-sinni en Halldór Ásgríms !


    Sem kunnugt er var Halldór Ásgrímsson fyrrv. formaður
Framsóknarflokksins  mjög  hallur  undir ESB-aðild Íslands.
Sem átti þátt í  því  að  stór hluti  kjósenda yfirgaf flokkinn.
Einn var sá þingmaður  sem  notaði hvert tækifærið að ráð-
ast á  Halldór  fyrir  ESB-daður  hans. En sem nú er orðinn
mun mun meiri ESB-sinni en  nokkurn  tímann Halldór.  Sá 
þingmaður  er enginn  annar  en  Steingrímur J. Sigfússon.
Formaður Vinstri grænna. Þingmaðurinn og ráðherrann sem
nú situr í ríkisstjórn sem sótt hefur um aðild Íslands að ESB.
Maðurinn sem lagt hefur blessun sína yfir ESB-umsókn Íslands.
Maðurinn og flokkur hans  sem  bera  FULLA ÁBYRGÐ á ESB-
hraðlestinni, og að ESB-aðildarferlið sé nú  hafið.  Eitthvað
sem  Halldór  Ásgrímsson  bara dreymdi um en gat  aldrei
framkvæmt. -   Og fékk VG-skömm fyrir!

   Óskammfeilni  Vinstri  grænna  er  takmarkalaus. -  Enda for-
verar hérlendra kommúnista. Sem einskis láta ófreistað í sinni
andþjóðlegri pólitík......

   ÁFRAM ÍSLAND! EKKI ESB né SCHENGEN! EKKERT ICESAVE né AGS!

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Valur Jensson

Já, Steingrímur getur ekki þvegið hendur sínar af þessari svívirðilegu umsókn um innlimun í erlent stórveldi.

Jón Valur Jensson, 10.4.2010 kl. 01:21

2 identicon

Sæll Guðmundur.

Að kalla Steingrím J. Sigfússon ESB-sinna, þykir mér meira en langt gengið. Stjórnarmyndun tveggja flokka hlýtur alltaf að vera málmiðlun. Vinstri græn sættu sig við eina þjóðaratkvæðagreiðslu. Og Steingrímur treystir væntanlega á þjóðina, sem að lokum tekur ákvörðun í þjóðaratkvæðagreiðslu.

En þú vilt kannski ekki neina þjóðaratkvæðagreiðslu. Finnst þér kannski bara sjálfsagt að þú og þínir skoðanabræður fái að ráða?

Og þú virðist líka í þeim hópi sem telur sig geta afgreitt alla andstæðinga með gömlu gömlu góðu aðferðinni. Þú bendir á andstæðinginn og hrópar hástöfum: Kommúnisti!

Ég ætla að leyfa mér að vitna í Jóhannes úr Kötlum: "Meiri trúmann ei veröldinn veit."

Jón Daníelsson (IP-tala skráð) 10.4.2010 kl. 02:27

3 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Tak fyrir Jón Valur.

Jón Daníelsson. Enginn semur um hvað sem er í stjórnarmyndunum. Og
allra síst í stærsta sjálfstæðismáli þjóðarinnar er varðar sjálft fullveldið og
sjálfstæðiið. Það gera hns vegar öll ÓÞJÓÐLEG öfl eins og forverar hérlendra kommúnista, Vinstri grænir. Þeir samþykktu umsókn að ESB og
eru þar með heldur betur ESB-sinnaðir. ÞVÍ ENGINN SÆKIR UM ÞAÐ SEM
VIÐKOMANDI ER Á MÓTI. Og vill í hjarta sínu EKKI HELDUR KJÓSA UM ÞAÐ
jafn fráleitt sem innganga Íslands í ESB er í huga ÞJÓÐHOLLRA Íslendinga.
Þannig að athugasemd þín hér er út í hött hvað þetta varðar!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 10.4.2010 kl. 15:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband