Icesave/ESB-vinstristjórnin ræðst á velferðarkerfið!!!


   Á sama tíma sem Steingrímu J ákallar Breta og Hollendinga
til að greiða Icesave, og Jóhanna hendir  milljörðum  í   ESB-
umsóknina, boða þessir tveir forystumenn vinstriaflanna á
Íslandi, stórkostlegan niðurskurð í velferðarkerfinu. Þarna
sýna vinstrimenn loksins sitt rétta andlit. Óvinir almennings,
og óvinir þjóðlegra hagsmuna og þjóðfrelsis númer eitt, tvö
og þrjú.

   Ef hér væri við völd þjóðleg borgaraleg ríkisstjórn,  sem
stæði vörð um íslenzka hagsmuni og almennings á Íslandi,
myndi ALDREI þurfa að koma til skerðingar  á  íslenzku  vel-
ferðarkerfi. Ekki hefði verið sótt um aðild að ESB. Þar myndu
sparast margir milljarðar. EKKI KRÓNA yrði greidd vegna Ice-
save, enda ólögvarin krafa á ferð sem  er  íslenzka  ríkinu
algjörlega óviðkomandi. Þarna gæti verið um hundruð mill-
jarða að ræða. Og að lokum myndi hin þjóðlega borgaralega
ríkisstjórn skattleggja inngreiðslur í lífeyrissjóði strax en
ekki eftirá, sem myndi  þýða milljarðar tugir í ríkissjóð.

   Af þessu má sjá að vinstrimenn eru höfuðóvinir íslenzkrar
þjóðar og fullveldis og sjálfstæðis hennar. Gegn slíkri andþjóð-
legri ríkisstjórn þarf nú þjóðin að rísa upp, og úthýsa slíkum
óþjóðhollum vinstriöflum úr íslenzkum stjórnmálum. Ásamt
því að lögsækja þá stjórnmálamenn sem ENN þverskallast,
og vilja kúga Icesave-drápsklyfjar útrásarmafíuósa upp á
þjóðina. Án lagastöðu og afgerandi höfnunar þjóðarinnar
á slíkum þjóðsvikum í þjóðaratkvæðagreiðslunni 6 mars.s.l.
En þar fara fremst Steingrímur J og Jóhanna Sig.

   BURT MEÐ VINSTRISJÓRN ÞJÓÐSVIKA OG ÞJÓÐARKÚGUNAR.

   ÁFRAM ÍSLAND! EKKI ESB né SCHENGEN! EKKERT ICESAVE né AGS!
mbl.is Velferðarþjónustan skorin niður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Eins og staðan er i dag þá er ríkið rekið með tæplega 100 milljarða halla, sem er fjármagnaður af AGS. Ég er alveg sammála þér að við eigum að sparka AGS í burtu, og þess vegna eigum við að reyna að reka ríkið með hagnaði. Þetta krefst annað hvort 25% niðurskurð á öll útgjöld ríkissins, eða um 33% aukna gjalda og skattlagningu. En já burt með AGS, og þess vegna þarf að reka ríkið með hagnaði sem fyrst!! Viljum við virkilega vera háð ölmusu frá AGS? Nei, við þurfum að endurheimta sjálfstæði landsins, og það verður aðeins gert með því að endurheimta fjárhagslegt sjálfstæði fyrst!

Bjarni (IP-tala skráð) 16.5.2010 kl. 09:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband