Forysta Vinstri grænna vill ESB aðild ! Með bros á vör!


   Enn eitt dæmið um ESB-daður Vinstri grænna. Nú hefur vara-
formaður VG upplýst að allir ráðherrar  VG vilji  leggja  niður
sjávarútvegs-og landbúnaðaráðuneytið, til að uðvelda ESB-
aðild.  Jón Bjarna ströglist hins vegar enn á móti. - En eins
og kunnugt er verður sjávarútvegs- og landbúnaðarmál helsti
ÞRÁNDUR í götu ESB-aðildar Íslands.

   Vonandi að  sem flestir sjái  nú að Vinstri grænir eru  ekki
orðnir minni ESB-flokkur og Samfylkingin. Enda vantaði bara
VG í ríkisstjórn svo að sótt yrði um aðild að ESB. Sem er mjög  
í takt  við  alþjóðahyggju Vinstri grænna, forvera hérlendra
sósíalista og  kommúnista.  Sem  ÆTIÐ voru mjög á móti
öllu er varðaði þjóðleg viðhorf. Nákvæmlega eins og sósíal-
demókratarnir í Samfylkingunni.

   Vinstri grænir eru sannarlega orðin ESB-flokkur í dag.  Með
bros á vör. Tilbúnir að fórna ÖLLU í því sambandi. Kominn tími
til að kjósendur fari að átta sig á því.

   ÁFRAM ÍSLAND! EKKI ESB né SCHENGEN! EKKERT ICESAVE né AGS!
mbl.is Jón eini ráðherrann á móti fækkun ráðuneyta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Árni Björn Guðjónsson

Skynsamir menn vilja ganga í ESB.Hinir eru óskynsamir.!

Árni Björn Guðjónsson, 15.5.2010 kl. 17:43

2 Smámynd: Sigurður M Grétarsson

Þó ekki væri annar ávinningur af þessum breytingum en það að losna við steingerfinginn Jón Bjarnason úr ríkisstjórn þá væri það þjóðþirfamál. Maður, sem er þeirrar skoðunar að samkeppnislög eigi ekki að gilda um landbúnaðinn hefur ekkert erindi í ríkisstjórn á Íslandi á 21 öldinni.

Hvað það að sameina öll atvinnuvegaráðuneytin í eitt ráðuneyti þá er það eðlileg og sjálfsjögð aðgerð til að tekið sé á atvinnuvegum hér, sem einni heild með hagsmuni þjóðarinnar í heild að leiðarljósi og komast út úr aðegðum til að gætia sjérhagsmuna tiltekinna atvinnugreina á kostnað heildarinnar.  Það að hafa þetta eins og það er er hins vegar engin fyrirstaða við það þjóðþrfiamál að ganga í ESB og getur því ekki talist skref í þá átt. Við getum alveg verið með sérstök sjávar- og landbúnaðarráðuneyti innanESB.

Hvað varðar það, sem Árni segir hér að ofan þá er staðreyndin sú að ef umræðan ér á landi um kosti og galla ESB aðildar fær að vera á málefnanlegu nótunum og laus við skotgrafahernað með fullyrðingum, sem ekkert eiga skylt við raunveruleikann þá eru yfirgnæfandi likur á því að þjóðin muni samþykkja ESB aðild. Ef þvættingur eins og þær fullyrðingar að ESB aðilk muni rústa sjávarútveg og landbúnað hér á landi og að skip frá öðrum ríkjum ESB geti ætt hér inn til veiða fær að tröllríða umræðunni þá geta kjósendur ekki tekið upplýsta ákvörðun um málið.

Það að kjósendur geti ekki tekið upplýsta ákvörðun um þetta mál er það, sem ESB anstæðingar eru að reyna að tryggja meðal annars með því að bera þvætting eins og þetta á borð  vegna þess að upplýst umræða byggð á staðreyndum er slæmt mál fyrir þá. Þeir geta ekki unnið þennan slag þannig og þess vegna eru þeir í skotgrafarhernaðinum berandi út þvætting ættaðan úr skrímsladeild LÍÚ.

Sigurður M Grétarsson, 15.5.2010 kl. 23:19

3 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Þetta er allt satt og rétt hjá þér Guðmundur.  En hann Árni Björn segist vera skinsamur og í því sambandi er rétt og ærlegt að benda á að það er matsatriði hvað er fallegt og hvað ekki. 

Á sama hátt er það matsatriði hvort er skinsamlegra að gæta að sínu sjálfur eða láta annan gera það.  Það er þers vegna ekki hans að dæma um það hvort hann er skinsamur eða ekki.

Hrólfur Þ Hraundal, 16.5.2010 kl. 01:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband