Ásmundur Einar enn formaður Heimssýnar


   Meðan í formannssæti Heimssýnar situr maður sem styður bæði
flokk og ríkisstjórn, sem  vinnur  hörðum höndum að koma Íslandi
inn í Evrópusambandið, er Heimssýn ekki trúverðug í Evrópumálum
svo ekki sé meira sagt. En sem kunnugt er gegnir Ásmundur Einar
Daðason þingmaður Vinstri grænna enn formennsku í Heimssýn,
samtökum sem segjast berjast gegn aðild Íslands að ESB.  Sem
er gjörsamlega út í hött og skandall fyrir málstaðinn. Þá sitja enn
fleiri Vinstri grænir í stjórn samtakanna, menn sem líka styðja flokk
og ríkisstjórn sem berst fyrir aðild  Íslands að ESB, og inngöngumið-
anum sjálfum, Icesave.  Sem er líka  skömm og skandall.

   Samtök eins og Heimssýn verða að byggjast á trúverðugleika,
eiga þau að höfða til baráttunnar gegn ESB. Þau gera það ekki
með þessum tvískinnungshætti í forystu samtakanna.  Á því verður
að verða breyting!

   ÁFRAM ÍSLAND! EKKI ESB né SCHENGEN. EKKERT ICESAVE né AGS!

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Elle_

Enn og aftur, sammála Guðmundur.   VG menn verða að gera það upp við sig hvort þeir berjast í Heimssýn gegn yfirtöku Evrópuríkisins á sjálfstæði okkar eða hvort þeir ætla að styðja Evrópubandalags- og Icesave-stjórnina.  Þeir geta ekki stutt hvort tveggja,  það hlýtur hver maður að sjá.  

Elle_, 31.5.2010 kl. 22:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband