Hægri grænir/Vinstri grænir. Tveir pólar í Evrópumálum.


   Skv. frétt í Mbl.í dag er sagt frá uppreisn í flokkskerfi Vinstri
grænna í Evrópumálum. Sem kemur á óvart í raun. Því það
voru einmitt Vinstri grænir sem komu allri ESB-hraðlestinni
af stað. Með myndun ríkisstjórnar með sósíaldemókrötum
sem hefur það ákveðna markmið að koma Íslandi inn í ESB.
Að vakna svo nú upp við vondan draum meðal sumra  sem
álpuðust að kjósa  og styðja VG er hins vegar seinbúinn
illur draumur. Því alltaf var vitað að kommúnistakjarninn í
VG var alltaf hallur undir ESB-aðild, enda grunn alþjóða-
hyggja þeirra sú sama og hin sósíaldemókratiska


     HÆGRI GRÆNIR, nýr stjórnmálaflokkur, með  á  annað
þúsund flokksmenn, og sem hyggst bjóða fram í öllum kjör-
dæmum í næstu kosningum, er hins vegar gjörsamlega á
allt annarri línu en t.d  VG í Evrópumálum. Og raunar má
segja þetta eina flokkinn sem allir sannir þjóðfrelsissinnar
geta í dag 100% treyst í Evrópumálum. Því HÆGRI GRÆNIR 
eru á móti ESB- aðild af PÓLITÍSKUM ástæðum. Þá hafna
HÆGRI GRÆNIR ÖLLU er varðar Icesave-þjóðsvikin, inn-
göngumiðann að ESB.

    ÁFRAM ÍSLAND! EKKI ESB né SCHENGEN! EKKERT ICESAVE né AGS!


mbl.is Vilja endurskoða stöðuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rafn Gíslason

Félagsmenn Vg eru einnig á móti ESB það hefur hinsvegar gengið illa að koma því inn í hausinn á sumum þingmönnum flokksins sem hafa sýnt félögum sínum ótrúlegan hroka.

Rafn Gíslason, 26.8.2010 kl. 16:01

2 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Rafn minn. Veit að þú ert einlægur ESB-andstæðingur. Þar er Steingrímur J
og kommúnistakjarninn í kringum hann alls ekki. Enda samþykktu þeir umsóknina að ESB.  En ENGINN sækir um það sem viðkomandi er á móti.
Og alls ekki í jafn stórpólitísku máli og þessu. Þess vegna bjóðum við ALLA ÞJÓÐFRELSISSINNA að koma til liðs við Hægri græna. Þú ert sérstaklega
velkominn. Þekki þig persónulega af öllu góðu. Varst bara í röngum flokki,
eins og ég var í Framsókn í denn.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 26.8.2010 kl. 17:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband