Gjaldþrot fjórflokksins ! Við skóflupakkið borgum!


   Það að ein besta mjólkurkú Reykjavíkur til áratuga,
Orkuveitan, skulu  nánast  gjaldþrota, er hrópandi
merki um gjaldþrot fjórflokksins. Stjórnleysið, aga-
leysið, og yfirgengilegur AULAHÁTTUR hefur verið
aðalsmerki fjórflokksins í borgar- og ríkisstjórn und-
anfarin ár og misseri. Og er enn! Á fullum krafti!
Gjaldþrot orkuveitunnar er hrópandi dæmi um það.

  Samtrygging Fjórflokksins í núverandi borgarstjórn
skýrir ALLT!!!!!!!!

  Hvenær ætlar þessi YFIRGENGILEGI AULAHÁTTUR,
STJÓRN- og AGALEYSI að enda í íslenzku samfélagi?

  Hvenær ætlum við skóflupakkið og sauðsvartur almúg-
inn að rísa ærlega upp og segja. HINGAÐ EN EKKI
LENGRA? Því nú sem fyrr eigum við að borga fyrir allt
sukkið og svínaríið. EINA FERÐINA ENN!

   Við krefjumst opinberrar rannsóknar á gjaldþroti
orkuveitunnar!!!!!!!!!!
mbl.is 28,5% hækkun á gjaldskrá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Krafa almennings er einnig meiri niðurskurður og sparnaður. Við þurfum að borga og það er ljóst. Við gerum hins vegar kröfu um meiri spranað og það strax.

Lára (IP-tala skráð) 27.8.2010 kl. 20:07

2 Smámynd: Rauða Ljónið

Borgarsjóður á að endurgreiða þá milljarðatugi, sem R-listinn og sporgöngu-menn hans hafa tekið út úr OR og nefnt arð. Hitaveitan og síðan Orkuveitan var fjármögnuð af borgarbúum með það markmið að útvega þeim orku á lágu verði. R-listinn hóf að millifæra fjármuni í heimildarleysi, til bitlinga og gæluverkefna.

Rauða Ljónið, 27.8.2010 kl. 20:53

3 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Satt Sigurjón. En gleymdi ekki allri ábyrgð Sjálfstæðisflokksins í þessi öllu
saman!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 27.8.2010 kl. 21:03

4 Smámynd: Rauða Ljónið

Sæll. Guðmundur ég gleymdi víst henni fór víst of langt aftur í tíma.

Kv. Sigurjón

Rauða Ljónið, 27.8.2010 kl. 21:24

5 Smámynd: Árni Gunnarsson

Hárrétt Guðmundur. Og þó enn betra þegar þú verður búinn að breyta: "ein besta mjólkurkú Reykjavíkur..." í "ein besta mjólkurkýr Reykjavíkur..." 

Árni Gunnarsson, 27.8.2010 kl. 22:23

6 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Hvað varð um hið velrekna fyrirtæki sem Jóhannes Zoega stjórnaði um ára tuga skeið?   

Hvarf það bara í soppuna hjá hinum sjónpípuskakka kafbát  R. listans sem keypti alla útgerð, og þar með línur og net sem vinir hans þurftu að lostna við. 

Kafbátur þessi var eins og útsölu brjálæðingur og keypti allt sem til sölu var, meira að segja hitaveitu Grundarfjarðar sem ekki er en þá til.  

Hrólfur Þ Hraundal, 27.8.2010 kl. 22:47

7 Smámynd: Sævar Einarsson

Árið 1994 var OR skuldlaus, sjá hér http://www.mbl.is/mm/gagnasafn/grein.html?grein_id=126343 en svo tók við svokallaður Reykjavíkurlistinn eða R-listinn, sjá nánar hér http://is.wikipedia.org/wiki/Reykjav%C3%ADkurlistinn og á 3 kjörtímabilum (12 árum) með Alfreð Þorsteinsson sem þá var kosinn formaður veitustofnanna Reykjavíkur(heitir í dag Orkuveita Reykjavíkur) og hann fór frá 2006 en var þá búinn að skuldsetja OR til fjandans með sem dæmi: Byggingu höfuðstöðva Orkuveitunnar á Bæjarhálsi, stækkun Nesjavallavirkjunar og gerð virkjunar á Hellisheiði, tilraunarækjueldi og blanda sér í slaginn á fjarskiptamarkaði með lagningu ljósleiðara ofl svo það er alger fásinna að ætla að kenna Besta flokknum um stöðu OR eins og hún er í dag en flokurinn er þó að reyna að laga þetta botnlausa skuldasukk fyrrum R-listans, stundum þarf aðeins að hugsa til baka og hætta að hengja bakara fyrir smið.

Sævar Einarsson, 28.8.2010 kl. 04:36

8 Smámynd: Ólafur Ingi Hrólfsson

Guðmundur - farðu nú rétt með -

Orkuveitan skuldar 240 milljarða króna. Langstærstur hluti þeirra skulda er til kominn vegna fjárfestinga fyrirtækisins í virkjunum og veitum, sem ákvarðanir voru teknar um á síðasta kjörtímabili R-listans 2002-2006.

 

Þegar Sjálfstæðisflokkurinn komst í meirihluta árið 2006 hafði fráfarandi meirihluti R-listans mótað stefnu um gífurlegar virkjanaframkvæmdir á Hellisheiði, gert bindandi orkusölusamninga og hafið byggingu Hellisheiðarvirkjunar. Ekki var annað að gera en klára virkjunina og standa við skuldbindingarnar. Stærstur hluti lánanna var því tekinn á síðasta kjörtímabili en ákvarðanir voru að mestu leyti teknar á valdatíma R-listans og undir borgarstjórum Samfylkingarinnar.

 

Á árunum 2001-06 áttu sér stað mikil uppkaup OR á veitum og dreifikerfi á Suðurlandi og Vesturlandi. Lítil arðsemi hefur verið af þessum veitum og sumar beinlínis reknar með tapi.

 

OR var stofnuð 1999 af R-listanum

 

Þá var Landsvirkjun tekin út úr fyrirtækinu yfir í borgarsjóð til að fegra stöðu borgarsjóðs.

 

Aðrgreiðslurnar stórhækkaðar 1.5 milljarður á ári.

 

OR fékk í vöggugjöf frá R-listanum 4 milljarða skuldabréf til að fegra stöðu borgarsjóðs.

Grunnnet Símans

Þeir voru í samingaviðræðum  við Símann um kaup  á grunnneti Símans. Kaupverðið var áætlað yfir 20 milljarða. Sjálfstæðismenn stöðvuðu það.

Ólafur Ingi Hrólfsson, 28.8.2010 kl. 11:52

9 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Takk fyrir innlitin hér. En það breytir því ekki að Sjálfstæðisflokkurinn hefur
meir og minna komið að stjórnun Orkuveitunar gegnum árin og ber fulla ábyrgð á ástandinu.  Og GERIR ENN hafandi oddvita sinn í stóli FORSETJA BORGARSTJÓRNAR undir stjórn Jóns Gnarr og co. Sem mér sem hægrisinna
finnst algjör skandall og pólitískur aulaháttur hjá flokki sem vill láta taka
sig alvarlega sem forystuafl borgarasinnaðra afla. Enda ástandið á Íslandi
eftir því! 

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 28.8.2010 kl. 14:49

10 Smámynd: Sævar Einarsson

Hvernig getur þú fengið það út að frá 1994 - 2006 hafi Sjálfstæðisflokkurinn komið meira og minna að stjórnun og stefnu OR ?

Sævar Einarsson, 28.8.2010 kl. 15:49

11 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Sjálfstæðisflokkurinn kom nú heldur betur að REI hneykslinu öllu og ber
100% ábyrgð nú á   öllum skrípaleiknum kringum Jón Gnarr og
co sitjandi í SJÁLFUM FORSETASTÓLI borgarstjórnar. Reyndu ekki að
bera á nokkurn hátt hér í bætifláka fyrir Sjálfstæðisflokkinn Sævarinn.
Þessi flokkur hefur staðið fyrir því á s.l árum að rústa okkar samfélag.
Sem HÆGRISINNI skammast ég mín fyrir þennan flokk, enda innan hans
vebanda stór hópur sósíaldemókrata, sbr Hanna Birna nú, hafandi sig
nánast að fifli í FORSETASTÓLI hjá Jóni  Gnarr. Þar sem okkur vantar í
dag er STJÓRNLYNDAN, HEIÐARLEGAN HÆGRIFLOKK á ÞJÓÐLEGUM
GRUNNI til að takast á við vinstriöflin og landssölu lið þess. M.a þess
vegna hef ég gengið til liðs við HÆGRI GRÆNA sem vilja uppræta alla
þessa ofur-spillingu og aulahátt í dag í okkar samfélagi.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 28.8.2010 kl. 17:28

12 Smámynd: Sævar Einarsson

Ég er ekkert að spurja um REI, en bara þér til fróðleiks og yndisauka kom það mál upp eftir 2006, það hófst fljótlega eftir að Sjálfstæðisflokkurinn og Framsókn komust til valda og sprengdi REI málið svo það samstarf í loft upp og hóft þá mikill skrípaleikur í borginni eins og allir muna vonandi). Og ég skil ekki hvernig þú fáir það út að ég sé upphefja Sjálfstæðisflokkinn, flokk sem ég hata manna mest en sagan í kringum OR er engu að síður svona og því spyr ég góðfúslega aftur: Hvernig getur þú fengið það út að frá 1994 - 2006 hafi Sjálfstæðisflokkurinn komið meira og minna að stjórnun og stefnu OR ?

Viðbót, getur lesið um REI málið hér http://is.wikipedia.org/wiki/REI-m%C3%A1li%C3%B0

Sævar Einarsson, 28.8.2010 kl. 20:14

13 Smámynd: Árni Gunnarsson

Betur að menn með afdráttarlausar skoðanir til hægri eða vinstri hefðu þann þroska til að bera sem þú hefur.

Kannski er það sambland af þroska og kjarki sem hjálpar þér til að standa með sjálfum þér en ekki þeim flokki sem öðrum finnst að þú eigir að styðja.

Mesti vandinn við íslensk stjórnmál er sá að hinn almenni flokksmaður þorir ekki að ganga fram fyrir skjöldu og setja ofan í við forystuna og kveðja svo samkvæmið ef hann sér að hvolpahjörðin er ákveðin í að láta kyrrt liggja.

Leikaraskapur fulltrúa fyrri borgarstjórna er kominn með svo heimska ásýnd að atvinnuleikarinn Jón Gnarr er eins og amatör inni í því skelfilega samkvæmi þar sem enginn vill kannast við eigin ábyrgð.

Árni Gunnarsson, 28.8.2010 kl. 22:24

14 Smámynd: Ólafur Ingi Hrólfsson

Hanna Birna lýsti því yfir þegar hún tók við starfi forseta borgarstjórnar að Sjálfstæðisflokkur og VG bæru enga ábyrgð á ákvörðunum meirihlutans.

Það var klárt í upphafi og er enn hjá þeim sem vilja vita sannleikann -

gnarr er borgarstjóri - oddviti meirihlutanns og sá sem ræður för.

Sexmenningarnir í þáverandi borgarstjórnarflokki Sjálfstæðismanna stöðvuðu gerræði sem komið var í gang fyrir tilstuðlan R-listanns og og á hanns ábyrgð.

Farðu með rétt mál Guðmundur - skoðaðu reikninga OR frá upphafi R-listanns og til dagsins í dag - þá sérðu hver ber ábyrgð á hverju.

Lántökur síðasta kjörtímabils voru vegna ákvarðana sem teknar voru fyrir það kjörtímabil - ákvarðana m.a. um Hellisheiðarvirkjun.

Mörgu var OR bjargað frá af Sjálfstæðimönnum á síðasta kjörtímabili - t.d. 20 milljarða samningi við Símann - 2-300 sumarbústöðum o.fl.

Ólafur Ingi Hrólfsson, 29.8.2010 kl. 04:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband