Svikur stjórnarandstaðan í Icesave ?


   Hvers konar leynimakk er varðandi Icesave-drauginn? Var
hann ekki kveðinn niður af þjóðinni 6 mars s.l?  Hver  er að
reyna að vekja hann upp aftur? Og í hvaða umboði?  Var
það ekki ÞJÓÐIN sem átti síðasta orðið um niðurkvaðningu
hans? Er dómur hennar ekki lokadómur?

   Og hvaða  leynimakk  er  í stjórnarandstöðunni varðandi
þennan uppvakning? Tekur hún þátt í honum?  Hvers vegna
þegir hún?

   Já, hvað er að gerast með Icesave-drauginn? Er verið  að
kalla á blóðug átök til að kveða hann niður í annað sinn og
við þá sem að uppvakningnum standa?

   Þjóðin sagði NEI! Og NEI þýðir NEI! Borgum ekki skulda-
drápsklyfjar útrásarmafíuósa að kröfu erlendra nýlendu-
velda. Kröfu án neinna lagastoða.

   Þjóðin er fullsödd af þjóðsvikurum! Hefur fengið nóg!

  Hin kröftugu mótmæli n.k fimmtudag munu leiða það í ljós!

  ÁFRAM ÍSLAND!  EKKERT ICESAVE!

   tilvís. HÆGRI GRÆNIR á facebook!
mbl.is Lausn Icesave fyrir lok árs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Aðalsteinn Agnarsson

Ég mæti þarna til að minna á loforðið, frjálsar handfæra veiðar,

sem leysa fátæktar og atvinnu vanda Íslendinga!

Það þarf ekki að borga ICESAVE, það þarf ekki að taka ERLEND LÁN,

það kostar ekki KRÓNU, að efna þetta loforð, FRJÁLSAR HANDFÆRA VEIÐAR!

Mætum á Austurvöll, minnum á þetta LOFORÐ sem bjargar þjóðinni,

ef efnt verður!

Aðalsteinn Agnarsson, 2.11.2010 kl. 21:20

2 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Sælir lifi byltingin! Látum ekki þessa landráðamenn komast upp með neitt múður mælirinn er fullur!

Sigurður Haraldsson, 2.11.2010 kl. 23:36

3 Smámynd: Elle_

Og ekkert ICESAVE, EVER.

Elle_, 5.11.2010 kl. 00:42

4 Smámynd: Björn Emilsson

Ekkert ESB heldur

Björn Emilsson, 15.11.2010 kl. 21:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband