Jóhanna vanhæfasti forsætisráðherra lýðveldisins! Burt með hana!
4.11.2010 | 00:32
Jóhanna Sigurðardóttir, gamli núverandi HRUNRÁÐHERRA,
er ein vanhæfasta manneskjan sem setið hefur í stóli
forsætisráðherra frá lýðveldisstofnun! Þegar mest á reyndi
um samstöðu og samhug þjóðarinnar eftir eitt mesta efna-
hagslegt hrun Íslandssögunar, gekk Jóhanna Sigurðardóttir
fram fyrir skjöldu, og sundraði þjóðinni í tvær hatrammar
fylkingar. MEÐ eða MÓTI innlimun Íslands í Stórríki Evrópu,
ESB.
Þar með var ÖLL þjóðarsamstaða rofin. Því í einu versta
efnahagslegu hruni Íslandssögunar, var það alversta sem
þjóðin gat fengið í fangið, atlagan að sjálfu fullveldi og sjálf-
stæði þjóðarinnar, og yfirráðum yfir sínum helstu auðlindum
Og það innanfrá!
Sjálfstraust og sjálfsvirðing þjóðarinnar var gjörsamlega
reynt að rústa. - Ekki síst þegar því fylgdi algjör uppgjöf og
flatmagaháttur gagnvart erlendum nýlenduveldum, er reyndu
og reyna enn að hneppa þjóðina í skuldadrápsklyfjar útrásar-
mafíuósa út öldina, SEM ÞJÓÐIN BER ALLS EKKI AÐ GREIÐA!
Icesave!
Allt allt fyrir atbeina Þessarar sömu Jóhönnu. Vitandi það að
þar með yrði íslenzku velferðarkerfi einnig rústað. Á sama tíma
og þúsundir Íslendinga eiga EKKI FYRIR MAT! - Á sama tíma
og ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttir ausir á annan tug milljarða
í erlenda ölmususjóði ESB og aðra mislukkaða þróunaraðstoð
erlendis sem aldrei mun skila sér sem skyldi, auk annarra fárán-
legra verkefna erlendis. Já á meðan eiga þúsundir Íslendinga
ekki fyrir mat, hvað þá öðru! SKANDALL!
Jóhanna Sigurðardóttir gamli HRUNRÁÐHERRANN á að viðurkenna
nú vanmátt sinn og segja af sér tafarlaust og hinnar handónýtu
vinstristjórnar sinnar! Manneskja sem ekki komst einu sinni hjá því
að skandalisera á sjálfum 17 júní s.l, með því að opinbera ALGJÖRA
fávisku sína um fæðingastað Jóns Sigurðssonar, þjóðfrelsishetju
okkar Íslendinga, er og verður ALDREI ALDREI þjóðarleiðtogi
Íslendinga. Svo mikið er víst! JÁ BURT BURT JÓHANNA! B U R T !
MÓTMÆLUM KRÖFUGLEGA Í DAG VIÐ ALÞINGISHÚSIÐ!
BURT MEÐ JÓHÖNNU OG ALLT HENNAR ANDÞJÓÐLEGA HAFURTASK!
tilvís. HÆGRI GRÆNIR á facebook........
Hafa fyrirvara á samráði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:33 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.