Bretar kunna ekki að skammast sín!


  Bretar kunna ekki að  skammast sín, enda haga sér eins
og versta nýlendukúgunarþjóð þegar því er að skipta. Sbr.
hryðjuverkalögin er þeir beittu Íslendingum, og nú varðandi
Icesave-kúgunina. Þess vegna hefði breski varnarmálaráð-
herrann betur mátt þegja en að tjá sig um með þessum
ódýra hætti varðandi hryðuverkaárás Breta á Ísland fyrir
rúmum 2 árum.

  Alverst var þó aumingjaskapur íslenzkra stjórnvalda í þessu
máli, og það til dagsins í dag. Hvers vegna  í ósköpunum var
árásin ekki kærð til NATO á sínum tíma, og stjórnmálasambandi
við Breta slitið? Og hvers vegna var ekki farið fram á stórfeldar
skaðabætur, í stað þess að flatmaga gjörsamlega í Icesave,
samþykkja vaxtalausa ávöxtun icesave-inneignanna í breskum
banka til dagsins í dag, en himinháar vaxtakröfur Breta á móti
átti svo að samþykkja með hinum alræmdi Icesave-þjóðsvika-
samningi, sem tókst af afstýra á síðustu stundu, með atbeina
forseta. 

   Hinn andþjóðlegi sósíaldemókrataíski flatmagaháttur með
stuðningi hérlendra kommúnista er orðin þjóðinni dýr. Von-
andi að styttist í opinberlega rannsókn á þeim!

   ÁFRAM ÍSLAND! EKKI ESB né SCHENGEN! EKKERT ICESAVE  né ICESAVE!
mbl.is Heitir því að beita ekki hryðjuverkalögum á NATO þjóð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

ESB heillar Guðmundur, því má ekki styggja neinn sem staðið gæti í vegi fyrir hinum gullnu geislum frá Brussel.

Gunnar Heiðarsson, 12.11.2010 kl. 11:27

2 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Nákvæmlega Gunnar!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 12.11.2010 kl. 14:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband