Forseti vor Íslendingur ársins !


   Vert er að fagna vali vefritsins Pressunar  á Hr. Ólafi
Ragnari Grímssyni forseta Íslands sem Íslendings ársins
2010. Óhætt er að fullyrða að enginn stjórnmálamaður
hafi forðað íslenzkri þjóð  frá jafn miklum efnahagslegum 
stórskaða og forsetinn  gerði með því að koma í veg fyrir   
að Icesave-þjóðarsvikin næðu fram að ganga.

  Vonandi mun sagan endurtaka síg á næsta ári takist
hinum illræmdu þjóðsvíkaöflum að  þröngva öðrum Ice-
save-þjóðsvíkum gegnum Alþingi, eins og  því miður
margt bendir  til.  Og í kjölfar þess yrðu þau látin svara
til saka.

  Forsetinn vísaði Icasave til þjóðarinnar 6. mars s.l sem
alfarið hafnaði honum. Þjóðin á því að eiga síðasta orðið,
komi til Icesave-svikanna aftur. Tryggi forsetinn það, mun
hann verða endurkjörinn enn á ný, með yfirgnæfandi meiri-
hluta þjóðarinnar.

   EKKERT ICESAVE!  ÁFRAM ÍSLAND! 
  
    

 


mbl.is Völdu Ólaf Ragnar Íslending ársins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Júlíus Björnsson

Heyr! Heyr!

Júlíus Björnsson, 2.1.2011 kl. 02:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband