Þjóðin rísi upp gegn Icesave-helsinu!


    Skora hér með á þjóð mína að rísa nú í eitt skipti fyrir
öll upp sem frjáls þjóð og hafna  því alfarið að verða sett 
í Icesave-helsið næstu áratugi.  Við getum steingleymt
öllum  kjarabótum   og  búið  okkur  undir meiriháttar 
lífskjaraskerðingu  nánast út  öldina,  nái þetta Icesave-
helsi óvinveittra nýlenduvelda með aðstoð innlendra þjóð-
svikara fram að ganga.   

  ÍSLENDINGAR! RÍSIÐ UPP!  STANDIÐ Í LAPPIRNAR OG
MÓTMÆLIÐ ICESAVE-HELSINU í undirskriftinni  gegn
Icesave  á www.kjosum.is/

 
mbl.is Icesave afgreitt af fjárlaganefnd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Elle_

Núverandi ríkisstjórn og forysta Sjáfstæðisflokksins hafa ekki manndóm, Guðmundur.  Þau ætla ótrúlega að pína ICESAVE í gegn í 3ja sinn og þvert gegn okkar vilja.   Manni verður illt nánast.   Ætli þau noti ekki tækifærið nú þegar forsetinn er fjarverandi? 

Verður það ekki bara kært?  Við borgum engan ICESAVE skatt hvort sem þeim líkar betur eða verr.  

Elle_, 15.2.2011 kl. 00:00

2 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Forsetinn fjarverandi Elle. Við hvað áttu? Flúinn af hólmi?

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 15.2.2011 kl. 00:15

3 Smámynd: Elle_

Nei, Guðmundur, en er hann ekki utanlands?

Elle_, 15.2.2011 kl. 00:43

4 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Sé að forsetinn er erlendis, og kemur ekki heim fyrr en á fimmtudag.
Icesave verður því miður samþykkt á miðvikudag. Þannig að handhafar
forsetavalds með Jóhönnu Sig gætu þá sem slík samþykkt Icesave.
En þá yrði þetta meðvituð ákvörðun forseta  að vera fjarverandi  og þar með hans þjóðarsvik.
Sem ég vil alls ekki trúa á.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 15.2.2011 kl. 00:53

5 Smámynd: Elle_

Nei, ekki ég heldur.  Hinsvegar munu svikararnir í alþingi ekki bíða eftir honum.  Þau vilja ekki að lýðurinn skipti sér af því hvaða ólöglegu þrælaskuldir hann verður skattheimtur fyrir.

Elle_, 15.2.2011 kl. 01:00

6 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Nákvæmlega Elle! En forsetinn veit þetta allt, enda kom í hraðflugi til
Íslands þegar fjölmiðlafrumvarpið var í lokaafgreðslu á sínum tíma, til
að forða handhöfum forsetavalds inngríp í málið. Hvers vegna ekki nú

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 15.2.2011 kl. 01:07

7 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

???????????

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 15.2.2011 kl. 01:08

8 Smámynd: Elle_

Hann hlýtur að koma, Guðmundur, nema hann vilji þrælasamninginn.  

Elle_, 15.2.2011 kl. 01:13

9 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Nákvælega!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 15.2.2011 kl. 01:31

10 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Ég held að jafnvel Steingrímur geri sér grein fyrir að hann yrði settur af með einum eða öðrum hætti ef þau myndu reyna að fara á bak við forsetann.

Allra augu hvíla á þeim.

Guðmundur Ásgeirsson, 15.2.2011 kl. 03:01

11 Smámynd: Júlíus Björnsson

17206 Undirskriftir

Ráðstöfunar tekjur þjóðarinnar og þar með til skiptingar á einstaklinga hér hafa lækkað um 40% í samanburði við önnur lönd frá setningu hryðjuverka laga og verið staðfest af Brussel 2009, þegar Ísland var tryggð innganga eftir þjóðaratvæða greiðslu. Vafalaust að tryggja stjórnsýslunni yfirráð allar auðlinda. 

Eignaréttur væri í lagi ef hér byggi ein þjóð.

Alli ættu að geta séð ef Þjóðaráðstöfunar tekjur eiga að vera hér 40% lægri í framtíðinni. Þá þarf að fækka vinnuafli á mannsæmandi launum.

Skera alla geira niður um 40%.  AGS veit að Fjármálgeirinn kemur í kjölfarið sjálfkrafa.

Fjárfestingareignir gamla Landsbankans eru að öllum líkindum tengdar raunhagvexti í EU.  Sem verður neikvæður fram til 2041 eða lengur.

Asía er á leiðinni upp og þeir sem fjárfesta þar, græða frekar en hitt.

Economie: tengist í hugum yfirstéttarfólk EU þræla búskap forn Grikkja.

Samanber heimilisbúskap og þjóðarbúskap.   Búskaparfræði tengjast að  sjálfsögu rekstri búskaps. Hinsvegar ekki undantekningar laust einhverju sem er hagstætt.  Ríkisbúskapur er mismunandi eftir landsvæðum og menningu. Frjáls markaðsbúskapur er samt eins í grunni sem alfarið prime.

Ekki subPrime eins og hér.

Júlíus Björnsson, 15.2.2011 kl. 10:04

12 Smámynd: Elle_

Guðmundur, hvílíkt svekkelsi fyrir ICESAVE-STJÓRNINA og hollustumenn glæpsins: Forsetinn er enn í landinu eftir allt og ekki á förum.  Og svo er hann líka vitur maður sem gerir það enn meira svekkjandi.

Elle_, 15.2.2011 kl. 22:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband