Hvaða þjóðflokkur eru þessir Icesave-sinnar eiginlega?


   Nú berast  þær  fréttir að utan  að stjórnvöld í Bretlandi og
Hollandi óttast hvað mest að Íslendingar hafni Icesave-kúgun
þeirra og málið fari fyrir dómsstóla. En einmitt dómsmálaleiðin
hefur verið helsta Grýla Icesave-sinna í þeirra þjóðfjandsama
málflutningi.

   Stöðugt fennir því nú í flest skjól þeirra sem kalla vilja yfir þjóð-
ina skuldadrápsklyfjar stórglæpamanna til næstu áratuga, sem
auk þess eru byggðar á ólögvarinni kröfu óvinveittra nýlendu-
velda, og eru því  þjóðinni algjörlega óviðkomandi.

   Þessi yfirgengilega þjóðfjandsamlega afstaða þessara Icesave-
sinna kalla eðlilega  fram  þá  spurningu, hvaða  þjóðflokki  þeir
eiginlega tilheyra? -   Eða tilheyra  þeir kannsi engum þjóðflokki?
Bara landlausu ístöðulausu liði sem nánast er tilbúið að liggja fyrir
hunda og mannafótum, hvar og hvenær  sem er? Ekki síst sé það
af erlendum toga innvinklað í einhverjan gjörspilltan alþjóðlegan
fjármálaheim, er telur sig geta haft almenning ætíð til þrautavara?
Að féþúfu!

   ÍSLENDINGAR!  KOLFELLUM ICESAVE HELSIР 9 apríl n.k! 

   ÁFRAM ÍSLAND!    
 
mbl.is Bretar og Hollendingar sagðir óttast dómstólaleiðina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Valur Jensson

Áfram Guðmundur, áfram Ísland, niður með Icesave og allt dinglumdanglið hér heima sem eltist við ólögvarðar Icesave-kröfur frekra stjórnvalda stórþjóða.

Jón Valur Jensson, 5.4.2011 kl. 04:25

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ég er fyrir löngu síðan búin að heyra frá vinum mínum í Þýskalandi og fleiri löndum að þau bíða og vona að við stoppum þessa vitleysu.  Það fólk segir að við séum jafnvel eina þjóðin sem getur stoppað þetta bankamonster af vegna þess að við erum svo rík og sjálfum okkur nóg með flest.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 5.4.2011 kl. 09:10

3 Smámynd: Sigurbjörn Sveinsson

Ég til að mynda.

Sigurbjörn Sveinsson, 5.4.2011 kl. 17:47

4 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Þetta eru í megin atriðum tvær ætir Guðmundur og er önnur af peningapúkaæt sem þarf að losna við gjaldeyrishöftin til að koma peningunum sínum undan og borða þeir helst ælur samkvæmt fréttum.

Og svo er það Evrópupúkaættin sem er það lífsins mál að komast á gull klósetið hjá Evrópusambandinu á meðan landinn borgar Icesave og borðar tros. 

En svo er þarna einhver slæðingur af afglöpum sem erfitt er að flokka, en sá flokkur étur allt sem honum er sagt að éta ofan í sig.

Hrólfur Þ Hraundal, 5.4.2011 kl. 23:25

5 Smámynd: Þórólfur Ingvarsson

Ég tek undir með ykkur og NEI á laugardaginn

Þórólfur Ingvarsson, 5.4.2011 kl. 23:30

6 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Bara takk KÆRLEGA fyrir innlegg ykkar hér kæru þjóðhollu samherjar,
Jón Valur, Ásthildur, Sigurbjörn, Hrólfur, og Þórólfur. Skulum bæta um
betur og BERJAST AF HÖRKU fyrir ÍSLENSKA ÞJÓР OG HENNAR FRAMTÍÐ
MEÐ STÓRSIGRI ÞANN 9 APRÍL N.K.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 6.4.2011 kl. 00:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband