Alþingi hafni 110 og 111 grein stjórnlagaráðs strax! Þjóðarsvik!


    Yfirgnæfandi meirihluti  Íslendinga  er andvígur aðild Íslands að
ESB. Ein aðal tæknilega hindrunin í því að  troða  Íslandi inn í ESB
er núverandi  stjórnarskrá. -  Hún  leyfir ekki hið  mikla framsal á
fullveldi Íslands  sem í  ESB-aðild felst. Með afar lævíslegum hætti
ESB-sinna undir forystu sósíaldemókratanna í Samfylkingunni var
því kallað til stjórnlagaþings sem síðar var breytt  í stjórnlagaráð.
Megintilgangur þess af hálfu ESB-sinna var að knýja fram leyfi til 
fullveldis- og ríkisframsals til  yfirþjóðlegs valds í stjórnarskrá. Það 
hefur  þeim tekist skv.110 og 111 grein tillagna stjórnlagaráðs að
nýrri stjórnarskrá sem afhent verður forseta Alþingis í dag. Sem er 
ALGJÖR SKANDALL! Ekki síst þar sem sú niðurstaða gengur í ber-
högg við alýktum þjóðfundar varðandi mikilvægis fullveldis fyrir land
og þjóð.

   Hugmyndir um að setja tillögur stjórnlagaráðs beint í þjóðarat-
kvæðagreiðslu framhjá Alþingi, er gjörsamlega út í hött, enda
brot á núverandi stjórnarskrá. - Þar sem meirihluti Alþingis  er
andvígur aðild Íslands að ESB hlýtur hann þegar í stað að hafna
strax grein 110 og 111 um fullveldisframsal. Annað væri svik við
land og þjóð.

   Vel verður fylgst með afstöðu þingflokka og þingmanna  til til-
lagna  stjórnlagaráðs að nýrri stjórnlagaskrá, sem í mörgum til-
fellum er hvorki fugl né fiskur.  Alveg sérstaklega hvað varðar
110 og 111 greinina. Sem má ekki undir neinum kringumstöðum
fara í gegn.  Ekki frekar en aðild Íslands að Evrópusambandinu!

  ÁFRAM ÍSLAND!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Sæll Guðmundur, það er fleira sem stingur í augu við lestur þessa plaggs frá óráðinu.

T.d. 34 gr. en þar segir að þær auðlindir sem ekki eru í einkaeigu skuli vera eigna þjóðarinnar og að ekki megi selja eða veðsetja auðlindir. Þetta vekur upp þá spurningu hvort sá sem á bújörð með námu, heitu eða köldu vatni eða einhverjum öðrum hlunnindum, geti ekki selt þessi gæði með jörðinni.

Og hvernig samræmist það þá 13. gr. í tillögum óráðsins, þar sem segir að eignarétturinn sé friðhelgur?!

Gunnar Heiðarsson, 29.7.2011 kl. 08:34

2 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Rétt hjá þér Gunnar. Enda er þetta sósíaldemókratiskt plagg, ekki bara
árás á einkaréttinn, heldur þjóðfrelsið líka.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 29.7.2011 kl. 09:28

3 Smámynd: Elle_

Ef VG-liðar samþykkja þetta, Guðmundur, er sá hinn sami eða þeir einu sinni enn búnir að sýna að þeir voru aldrei í alvöru andvígir yfirráðum EU yfir okkur og var það kannski lygi frá fyrsta degi.  

Elle_, 29.7.2011 kl. 23:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband