Stórpólitísk átök framundan! HÆGRI GRÆNIR valkostur!


   Átökin innan Framsóknar endurspeglar þau miklu  og alvarlegu
pólitísku átök sem framundan eru í íslenzkum stjórnmálum. Átök
um grunngildi íslenzks samfélags  og tilveru fullvalda sjálfstæðrar
íslenzkar þjóðar.  Átök milli hófstilltar ÞJÓÐHYGGJU annars vegar 
og ÖFGASINNAÐRAR  ALÞJÓÐAHYGGJU  hins  vegar, er vílar  ekki
fyrir sér að koma Íslandi aftur undir erlent yfirþjóðlegt vald,  sbr.
ESB-umsóknin,  hvað sem það kostar.

   Fjórflokkurinn  svokallaður   er margklofinn  í  þessum  átökum.
Átökin í Framsókn eru einungis upphafið af stórpólitískum átökum
innan flokkanna. Vinstri grænir eru gleggsta dæmið, og átökin
innan Sjálfstæðisflokksins eiga eftir að magnast, ekki síst í ljósi
stórsvika flokksforystunnar í Icesave!

  Þá má alls ekki gleyma stórpólitískum afleiðingum hrunsins. Fjór-
flokkurinn brást þar þjóðinni GJÖRSAMLEGA fyrir og ekki síst eftir
hrun. Allsherjar uppstokkun í íslenzkum  stjórnmálum blasir því
við.  Uppstokkun og endurnýjun á flokkum, þingmönnum og  í
embættismannakerfi. Þar sem pólitískar línur verða SKÝRAR  og
AFDRÁTTARLAUSAR. - Ekki síst á hægri kanti íslenzkra stjórnmála!

  Sósíaldemókrataisminn er illkynja pólitískt mein sem verður að 
fjarlægja og úthýsa ásamt kommúnistum úr íslenzkum stjórnmálum.
Á þeirri vakt brást Sjálfstæðisflokkurinn illilega. Nýtt framfarasinnað
þjóðholt stjórnmálaafl til hægri  sem 100% er hægt að treysta  á
þeirri vakt, við endurreisn Íslands í þágu fólksins, þarf að koma til.
Í því sambandi er vert að líta til HÆGRI GRÆNNA, sem álitlegan
valkost. Flokk fólksins og landverndar, flokk sjálfstæðis og fullveldis
Íslands!

   www.afram-island.is

  


mbl.is Ekki skilyrðislaus stuðningur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband