Forseti Litháens á að skammast sín ! Og RÚV líka!


   Forseti Litháens á að skammast sín að vera með grófa
íhlutun í íslenzk innanríkismál. Með því að segjast vonast
til að Ísland gangi í hið sökkvandi Evrópusamband árið
2013.  Þvílík móðgun við sjálfstæða þjóð sem var fyrst
þjóða til að viðurkenna sjálfstæði og fullveldi Litháens.

   Athygli vekur að það var  Þóra Arnórsdóttir sjónvarps-
kona er dró þessa yfirlýsingu út úr forsetanum. Frænka
fyrrv.utanríkisráðherra er dró illu heilli Ísland inn í EES,
og sem berst nú fyrir því að Ísland innlimist inn í hið
deyjandi gjörspillta ESB, HVAÐ SEM ÞAÐ KOSTAR! (SBR.
Svavars-icsave-þjóðsvikasamningurinn illræmdi) - Svo
toppar  þessi  ESB- sinnaða  Þóra sjónvarpskona  ESB-
trúboð sitt með drottningaviðtali við forsetan í Kastljósinu
í kvöld. Þar sem forsetinn er látinn dásama dyrðina  í hinu
deyjandi spillta Evrópusambandi.

   En forseti Litháens á ekki bara að skammast sín. Heldur
ekki síst RÚV fyrir yfirgengilegan pólitískan hlutlægan áróður
í hverju stórpólitíska málinu á fætur öðru. Fyrst í Icesave og
nú með ESB-aðildina. Sem segir að innan RÚV þarf að fara
fram allsherjar hreinsun að afloknum kosningum í haust!
mbl.is Ísland gangi í ESB árið 2013
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Sammála.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 29.8.2011 kl. 21:57

2 identicon

Mjög sammála. Áróðurin fyrir inngöngu inn í ESB er rétt að byrja.

Það er næstan óhuggulegt hvað hægt er að kaupa fyri stöðu völd og perninga.  Jafnvel sjálfstæði lítillar þjóðar. er söluvara. Hef til gamans kannað stöðu þeirra sem eru áfjáðir um að koma okkur inn í ESB. Flestir eiga von um stöðu innan ESB eða eru áhagendur. Hvað segir það okkur um þá stjórnmálamenn sem eru við völd? Þeir eru  eiginhagsmunaseggir. 

Guðrún Norberg (IP-tala skráð) 29.8.2011 kl. 22:22

3 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Stundum svíður sannleikurinn...

Forsetinn er enfaldlega að deila reynslu sinni með Íslendingum.

Það þýðir ekkert að fara í kerfi þó maður vill vera einangraður og vesæll.

Þetta sýnir best sú staðreynd að þeir sem hafa verið að líkja ESB við Sovíet vita ekkert í sinn haus.

Eystrasaltslöndin voru ekki lengi að snúa sér að ESB. Þar sáu þeir sjálfstæðið sitt. í samtarfi við líðræðissinnaðar þjóðir.

Sleggjan og Hvellurinn, 29.8.2011 kl. 22:24

4 Smámynd: Elle_

Kemur nú einn einangrunarsinninn sem vill loka landið inni í yfirráðum gamalla heimsvelda og FYRIR UTAN 92% HEIMSINS með sinn fáviskulega skæting.  Hann getur farið aftur ofan í sína einangruðu holu með sitt gjörtapaða mál.  Við erum nefnilega í miklum meirihluta. 

Elle_, 29.8.2011 kl. 22:39

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Sem fer stækkandi sem betur fer.  Þrátt fyrir gríðarlega áróður næstum allra fjölmiðla og ríkisins.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 29.8.2011 kl. 22:41

6 Smámynd: Elle_

Nákvæmlega.  Nógu er það slæmt að RUV OKKAR skuli vera með endalausan Jóhönnuáróður, og EU-bleðlarnir líka, en að verða að hlusta á skæting eins og næst fyrir ofan mig að ofanverðu við Guðmund er yfirdrifið.  Guðmundur, þú heldur bara þínu heilsteypta striki.  Við förum ekkert inn í miðstýringarveldið og borgum ekkert ICESAVE fyrir það heldur.  Við sigruðum þá og munum gera það aftur næst. 

Elle_, 29.8.2011 kl. 22:48

7 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já með samtakamætti og heilbrigðri skynsemi.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 29.8.2011 kl. 22:56

8 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

ella

smá fróðleiksmoli.

ESB ríki eru að stunda viðskipti útum allan heim.

Riki innan esb geta gert sína egin samninga

http://www.visir.is/kina-og-thyskaland-undirrita-1.700-milljarda-vidskiptasamninga/article/2011110628911

Sleggjan og Hvellurinn, 29.8.2011 kl. 23:37

9 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

  Ég slökkti á he,,,, áróðrinum, spyr ekki um framhaldið,sé það hér svart á hvítu. Mikið höfum við þurft að ganga í gegnum en munum eitt,nú dugar ekkert nema máttur samstöðunnar,eins og Ásthildur segir. Ef svokölluð ríkisstjórn hangir saman á einabeittum niðingsvilja,hversu miklu frekar ættum við að gera það með réttmætum kröfum um fullveldi Íslands. Styðjum nú þá þingflokka á þingi sem berjast fyrir Ísland,spyrjum ekki um bókstaf,H. D.eða B. Fólk spyr hvað tekur við,segjum þeim það,sýnum þeim það, með einlægum ásetningi, um samstöðu.

Helga Kristjánsdóttir, 30.8.2011 kl. 00:15

10 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Takk innkomuna hér. Helga! Einn nýr stjórnmálflokkur berst gegn ESB-aðild, Icesave, AGS og Schengen!  Þú gleymir honum! Toppar hann einhver?  www.afram-island.is

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 30.8.2011 kl. 00:35

11 Smámynd: Elle_

Ekki geturðu nú miðað öll litlu sambandsríkin við Þýskaland, þú - veit ekki hvað þú heitir.  Þýskaland er nánast allsráðandi þarna í miðstýringarveldinu, með langmesta vægið af öllum ríkjunum. 

Elle_, 30.8.2011 kl. 00:37

12 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

H er bara mislukkað RUGL!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 30.8.2011 kl. 00:37

13 identicon

Komið þið sæl; Guðmundur Jónas - og aðrir gestir, þínir !

Sleggja og Hvellur !

Er það einangrunarhyggja og vesöld; að vilja halda óbreyttum sam skiptum, við ALLA veröldina ?

Eða; er Evrópusambands hluti nágranna álfu okkar, í austri, ALLUR HEIMURINN ?

Ég hygg; að þið ættuð að loka síðu ykkar, blessaðir slöttólfarnir - fá einhvern röskan landfræðing; eða þá annan kennara, til þess að segja ykkur betur til í landafræðinni, áður en þið opnuðuð síðu ykkar, á ný.

Meiri vitsmuni; er að finna í nokkurra mánaða korna börnum, en ykkur, VESÖLU drengir !

Svo mikið, er þó víst.

Evrópa; hvað !?!

Með beztu kveðjum; sem jafnan - meðaumkun mikilli, til Sleggju og Hvells sálna kirnanna, aftur á móti /

Óskar Helgi Helgason   

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 30.8.2011 kl. 00:44

14 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Öll merki eru um að þýzka þjóðin sé að gefast upp á ESB-ruglinu, enda ætlast til að hún borgi fyrir brúsann, ESB-ruglið. Meiriháttar krísa er í uppsiglingu í þýzkum stjórnmálum útaf upplausninni á evrusvæðinu...

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 30.8.2011 kl. 00:45

15 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Takk Óskar. Svo gleyma menn alveg stærsta Evrópuríkinu, hinu áhugaverða Rússlandi, þegar Evrópumál eru rædd. Hvers vegna það?

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 30.8.2011 kl. 00:50

16 identicon

Og; þökk sömuleiðis, Guðmundur Jónas !

Þakka þér fyrir; að minna á Rússland, en það skiptir ekki öllu máli, í sjálfu sér, þar sem langstærsti hluti þess, er í Asíu; reyndar.

En; það liggur við, að maður hafi samúð, með þessum vesalings Sleggju/Hvells fyrirbrigðum, sé mið tekið, af gáfulegheitum þeirra.

Meira að segja; svartklæddu Gyðingarnir, við Grátmúrinn austur í Jerú salem; þyljandi Torah fræðin, dægrin löng, eru frjálslyndari í öllum viðhorfum sínum, en stækasta ESB liðið, hér heima á Ísafoldu, gott fólk.

ÓHH   

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 30.8.2011 kl. 01:04

17 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

  Já sæll!       Það fer á syndaregustur mitt,ætti ekki að reyna að muna hvaða bókstaf stjórnmálaflokkar hafa (það kemur).Þeir gömlu sem sumir kalla fjórflokk,eru rækilega kalkeraðir í vitundina. Á þessari stundu er ég að hugsa um baráttuna á þingi,þar sem vonin um að fella ríkisstjórnina ,áður en hún veldur meiri skaða,er allt að því yfirþyrmandi ósk,von og þrá. Hef ekki áhyggjur af kosningum eftir að örlögin láta þetta eftir mér og svo ótal fleirum. M.b.Kv.

Helga Kristjánsdóttir, 30.8.2011 kl. 02:31

18 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Þegar maður lítur inná þessa síðu þá líður mér einsog ég er kominn inn í einhverja ormagrifju.

Sleggjan og Hvellurinn, 30.8.2011 kl. 09:26

19 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Skil þig þannig líður mér þegar ég fer inn á Evrópuvaktina eða Eyjuna. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 30.8.2011 kl. 12:04

20 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Satt Áshildur. En svona birtast nafnlausar pólitískar raggeitur ESB-trúboðsins. 

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 30.8.2011 kl. 13:55

21 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

ásthildur

Evrópuvaktin er síða fyrir andstæðinga ESB í ritjórn Styrmirs og Björns Bjarna.

Fínt að fá það á hreint að þér finnst þessir NEI-sinnar eintómir ormar.

Sleggjan og Hvellurinn, 30.8.2011 kl. 15:56

22 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Hahaha ég meinti auðvitað Evrópusamtökin eða hvað þau nú heita þau ágætu samtök.  Sem hafa hér vefsíðu með tvo stjörnuskrifara, Jón Frímann og Steina Briem.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 30.8.2011 kl. 16:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband