En Ólafur forseti. Hvað með okkar eigin glæpamenn í Icesave ?


   Það er hárrétt hjá Ólafi Ragnari Grímssyni forseta  að það
væri rannsóknarefni fyrir ESB hvernig ríki þess gátu stutt
fáránlegar kröfur Breta og Hollendinga í Icesave um  að
íslenzka þjóðin gengist í ábyrgð fyrir Icesave-skuldinni.
Og það er líka hárrétt hjá forsetanum að íslenzk stjórn-
völd hafi látið undan þrýstingi og beygt sig undir ofbeldi
Breta og Hollendinga í Icesave.

   Allt þetta er satt og rétt hjá forsetanum.  En hvað  með
þá sem Icesave-glæpinn frömdu?  Hvers vegna hefur Ice-
save-glæpurinn ekki enn verið rannsakaður? Og þeir sóttir
til saka sem ábyrgð báru!  Já hvað með okkar eigin glæpa-
menn í þessu? Og hvað með stjórnmála- og embættismenn-
ina sem beygðu sig fyrir þessu ofbeldi af hálfu ESB-þjóðanna
og samþykktu fyrst samning  sem hefði leitt strax til þjóðar-
gjaldþrots, og síðan annan litlu skárri, en sem betur fer voru 
svo feldir í þjóðaratkvæðagreiðslum.  

   Það er grafalvarlegt mál þegar stjórnmála-og embættis-
menn láta erlent ofríki kúga sig og beygja, og það  svo að
tilvera þjóðarinnar var í veði. Og það út á einhverri ólögvar-
inni kröfu, sem var og er íslenzkri þjóð GJÖRSAMLEGA ÓVIÐ-
KOMANDI!

   Í næstu þingkosningum verður klárlega m.a kosið um Ice-
save. Um það að það verði rannsakað og viðkomendur látnir
sæta ábyrgð. EKKI SÍST stjórnmálamennirnir sem hvað mest
börðust fyrir Icesave-þjóðsvikunum og embættismenn þeirra!   
mbl.is Beygðu sig undir ofbeldi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Elle_

Já, hvað með okkar glæpamenn, Guðmundur?  Já, hvenær hefst rannsóknin?   Og hvenær verða þau dæmd fyrir bæði fáráðsumsóknina gegn stjórnarskrá og ólöglegan ICESAVE-samning: Jóhanna, Gylfarnir allir, Steingrímur og co., etc fyrir kúgun eftir kúgun gegn eigin þjóð. 

Elle_, 4.9.2011 kl. 22:48

2 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Í næstu forsetakosningum verður líka kosið um IceSave. Það er að segja óbeint, í þeim skilningi að sá mun verða líklegur til að ná kjöri sem fólk treystir best til að nýta málskotsréttinn þegar svo ber undir í framtíðinni.

Guðmundur Ásgeirsson, 5.9.2011 kl. 11:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband