Hönnu Birnu ekki treystandi!


   Þótt Hanna  Birna  Kristjánsdóttir  hafi  nú  loks komið út
úr hinum pólitíska skáp þjóðmálanna, og vilji NÚ  draga ESB-
umsóknina til baka, og segist NÚ loks ætið hafa verið á móti
Icesave, breytir það  engu  um  hennar  meiriháttar pólitísku
mistök um að láta Gnarr-anarkistaliðið og sósíaldemókratanna
í borgarstjórn kjósa sig sem  forseta  borgarstjórnar  undir
forystu sjálfs Gnarr og Co í upphafi kjörtímabils.  Og þar með
Í RAUN tekið pólitíska ábyrgð á Gnarr-ruglinu. Allt vegna rang-
hugmynda hennar að allir gætu orðið vinir í skóginum. Með enda-
lausu froðusnakki um allt og ekkert í þágu hiðs  pólitíska  sam-
krulls.  Enda  sprakk hún svo á límingunni þegar froðusnakkið 
og samkrullið  við Gnarr og Co gekk ekki upp.

   Samt virðist Hanna Birna ekkert hafa lært af mistökunum og
boðar áframhaldandi samkrull og froðusnakk í viðtali í þættinum
Sprengisandi í gærmorgun. Hvernig er hægt að treysta  slíkum
stjórnmálamanni? Og hún  sem á að teljast hægra-megin  við
miðju?  Því þjóðholl hægriöfl vinna ALDREI til vinstri, og því
síður með  anarkista-trúði!  Með slíkri manneskju sem formanni
Sjálfstæðisflokksins væri allt galopið á sósíaldemókrataískt ríkis-
stjórnarsamstarf að kosningum loknum. Með jafn skelfilegum
hrun-afleiðingum og síðast!  Því spor Hönnu Birnu hræða! Svo
sannarlega! 

   Það er eins og allt ætli að verða þessum Sjálfstæðisflokki að
falli!

   www.afram-island.is

 


mbl.is Óskýrt hlutverk borgarstjóra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband