VG ennþá ESB-sinnar. Og enn þjóðvarnarleysisinnar!.


   Landsfundur Vinstri grænna leggur blessun sína yfir áframhaldandi
umsókn Íslands að ESB. Styður aðlögunarferlið þar með. Enda styðjandi
ríkisstjórn sem vinnur dag og nótt að innlimun Íslands í ESB með fjár-
stuðningi frá Brussel.  En ENGINN sannur ESB-andstæðingur getur lagt
blessun sína við slík. -  Það gera Vinstri grænir, enda í hjarta sínu ESB-
sinnar í verki sem hljómar meiriháttar vel við þeirra öfgasinnuðu alþjóða-
hyggju. Annars væri ekki Ísland statt í hraðlestinni til Brussel.

  Þá eru Vinstri grænir galopnir fyrir fjárfestingum erlendra aðila í einni
mikilvægustu auðlind Íslendinga, fiskimiðunum, við inngönguna í ESB.
Ályktun þeirra um auðlindir í þjóðareign eru því brandari!

  Þjóðfjandsamleg stefna Vinstri grænna kristallast svo enn og aftur  í 
þjóðvarnarleysisstefnu þeirra.  Vilja  Ísland berskjaldað og varnarlaust,
eins  og  sönnum  andþjóðlegum  kommúnistum  sæmir.  Enda forverar 
hérlenda kommúnista   í íslezkum stjórnálum í dag.

    Icesave-VG-þjóðsvikaflokkurinn  hefur  enn  afhjúpað  sig  gagnvart
þjóðinni sem varhugavert stjórnmálaafl, sem bað þjóðina ekki einu sinni
afsökunar á Icesave-svikunum. Sem hefði leitt til þjóðargjaldþrots í dag
ef þjóð og forseti hefðu ekki afstýrt því. Þjóðsvikaflokkur  sem mun  verða
úthýsað  úr  íslenzkum  stjórnmálum  til  frambúðar  ásamt vinum  þeirra
sósíaldemókrötum  eftir næstu kosningar.

  
mbl.is Ályktun um utanríkismál samþykkt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband