Brussel farið að skipa ríkisstjórn Íslands !


    Alræðisstjórnin í Brussel er ekki einungis  farin  að  skipta út heilum 
ríkisstjórnum  innan  ESB sem  ekki   eru  henni þóknanlegar, eins og
dæmin  sanna  að undanförnu.  - Heldur er hún  farin að íhlutast með 
gróflegum hætti inn í innanríkismál ríkja sem standa í aðildarviðræðum
að ESB. Ísland er ljósasta  dæmið  þess  í dag. Dagsskipun frá Brussel 
til forsætisráðherra gegnum utanríkisráðherra er að henda út ráðherra
sjávarútvegs-og landbúnaðarráðherra og að ráðuneytin bæði verði lögð
niður í kjölfarið. Þannig yrði allri fyrirstöðunni  í  ríkisstjórn  Íslands um
aðlögun að ESB og innlimun Íslands í sambandið endanlega rutt úr vegi.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarmál sem helst þóttu koma til greina sem
helstu deilumálin heyrðu sögunni til. Og ekki sakar að sá ráðherra sem
hefur sýnt örlitla iðrun í Icesave-svikunum fengi líka reisupassann.
Leikfléttan frá Brussel yrði þar með fullkomnuð! Eftirleikurinn yrði leikur
einn!

   Sósíaldemókratinn Jóhanna Sig og kommúnistinn Steingrímur J. eru
ein andþjóðlegustu og hættulegustu  stjórnmálamenn lýðveldisins, sbr.
Icesave-þjóðarsvik þeirra og aðför þeirra nú að fullveldi og  sjálfstæði
Íslands með  ESB-aðlöguninni og allsherjar undirgefni gagvart hinni 
yfirþjóðlegri stjórn og valdi ESB í Brussel. 

   Frjáls þjóð hefur rétt til að rísa upp og verja sjálfstæði sitt og full-
veldi verði á hana ráðist. Hvort sem árásin er gerð utanfrá eða innan
frá. Í þessu tilfelli er árásin augljóslega gerð innan frá, með dyggum
stuðningi erlendra afla, sem bregðast verður við með viðeigandi hætti.  
STRÍÐSHANSKANUM HEFUR VERIÐ KASTAÐ! Baráttan og stríð ESB um
Ísland er að ná hamarki!

   ÁFRAM ÍSLAND!  ENGIN ESB AÐILD né SCHENGEN!
mbl.is Segir Árna Pál og Jón á útleið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hver er þessi alræðisstjórn í Brussel?

Það væri gott að þekkja óvininn:)

Stefán (IP-tala skráð) 29.12.2011 kl. 22:01

2 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Fylgist þú ekki með fréttum Stefán? Ef þú gerðir það, þyrftirðu ekki að spyrja svona barnalega!

Góður pistill Guðmundur.

Gunnar Heiðarsson, 29.12.2011 kl. 23:19

3 Smámynd: Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir

Já Guðmundur góður pistill og svo sannur. Það verður að koma þessari Ríkisstjórn frá hið fyrsta.

Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir, 30.12.2011 kl. 01:12

4 identicon

Ég barasta veit ekki hvaða alræðisstjórn þetta er og hver er í þessari stjórn.

Ég tel mig vera að spyrja einfalda spurningu.

Stefán (IP-tala skráð) 30.12.2011 kl. 06:36

5 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Hvað færðu fyrir að koma hér inn undir nafnleynd Stefán úr áróðussjóði
ESB á Íslandi?  Einn af þessum ESB-leigupennum sem ætti að hendast hér
út!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 30.12.2011 kl. 17:10

6 identicon

Guðmundur, ég er enginn leigupenni frekar en þú.

Ég vil bara fá að vita hverjir eru í alræðisstjórninni í Brussel.

Er það ekki gott svo hægt sé að vita hvað óvinurinn heitir og gefa honum mynd.

Stefán (IP-tala skráð) 31.12.2011 kl. 09:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband