Hægri grænir vilja burt með Schengen-ruglið !


    Þegar  sjálft  ESB  er  farið  að efast  um  Schengen ruglið, sbr.
frétt í gær, ætti Ísland  fyrir löngu að hafa sagt sig  úr þessu  rugli.
Eitt af mesta klúðri í íslenzkum utanríkismálum. Komið á undir stjórn
Sjálfstæðis- og  Framsóknarflokks  með  dyggum  stuðningi  hinna
sósíaldemókrataisku skoðanabræðra þeirra í Samfylkingunni.

   Schengen hefur stórskaðað allt landamæraeftirlit, enda glæpatíðni
erlendra glæpagengja eftir því. Fyrir utan þess mikla kostnaðar sem
fer í þetta stórgallaða eftirlitsleysi. Alvarlegast er þó sá augljósi
aula-og fávitaháttur  hérlendra stjórnvalda að láta glepjast af slíku
ofurrugli, vitandi það að Ísland er eyja úti á miðju Atlandshafi. Eyja
eins og Bretland og Írland sem tóku ekki í mál að gerast aðili að
að þessu rugli einmitt vegna stöðu þeirra sem eyþjóða.

   Enginn stjórnmálaflokkur á Alþingi stefnir að uppsögn á Schengen.
Það gera hins vegar HÆGRI GRÆNIR, sem boða komu sína í íslenzk
stjórnmál af fullum þunga í apríl n.k.  Flokkur sem vert er að líta til
í dag. Ekki síst fyrir m.a skýra stefnu í Evrópumálum. Í þágu aug-
ljósra þjóðarhagsmuna..........
mbl.is Ekki grænt ljós á stækkun Schengen
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband