Forsetaframboðsumræða sem skiptir ekki máli !


   Umræðan um hvort Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóðandi
fari í fæðingarorlof eða ekki skiptir ekki máli. Enda mun Alþingi
ekki starfa á þeim tíma.

   Það sem skiptir höfuðmáli er að kjósendur átti sig á fyrir hvað
þessi Þóra stendur og fyrir hvaða öfl hún er aðallega fulltrúi
fyrir.

   Þóra Arnórsdóttir er sósíaldemókrati og því litast öll hennar
viðhorf af því. Þess vegna er Þóra m.a ESB sinni og vill Ísland
í ESB. Enda var Þóra af fyrstu sofendum Evrópusamtakanna.
Þóra hefði því aldrei synjað Icesave-svikunum staðfestingu og
þar með væri Ísland gjaldþrota í dag. Þóra er því skv. þessu
einnig stuðningsmaður Schengen-ruglis.  Já verðugur fulltrúi
BRUSSEL-valdsins á Bessastöðum nái hún kosningu. Mikil-
vægt að kjósendur hafi einmitt  þetta á hreinu!

    

    Umræðan um fæðingarorlof Þóru er því út í hött!  En sýnir
kannski helst hégómann við þetta framboð.........

   M.a til að villa fólki sýn!


mbl.is Þóra og umræðan um fæðingarorlof
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Ég kaus Ólaf Ragnar Grímsson 1996 meðal annars vegna þess að hann lýsti því yfir að málskotsrétturinn væri að hans mati í gildi.

Á ferli hans kom fjórum sinnum til greina að beita þessum rétti. 1. Vegna Kárahjúkavirkjunar 2003. 2. Vegna fjölmiðlalaganna 2004 og síðan 3 og 4, tvívegis vegna Icesave-samninganna.

Ég skoraði á hann að nota málskotsréttinn vegna fyrri Icesave-samninganna en ekki vegna þeirra síðari.

Hvað snerti fyrri Icesave-samninginn snerti fannst mér það óréttlátt að íslenskir skattgreiðendur yrðu að greiða 25 sinnum hærri upphæð hver en hver hollenskur eða breskur og best að tefja málið, þótt ég gerði mér grein fyrir því að Íslendingar og samningamenn okkar voru í afleitri stöðu gegn þrýstingi annarra þjóða fyrst eftir Hrunið.

Hins vegar ynni tíminn með okkur og því gott að draga málið á langinn.

Ég var ánægður með það að Ólafur Ragnar skyldi skýra okkar málstað út á við. ´

Ég var í hjarta mínu samþykkur beitingu málskotsréttarins vegna fjölmiðlalaganna og hefði einnig í hjarta mínu verið samþykkur því að hann beitti honum vegna Kárahnjúkavirkjunar.

Það gerði hann ekki þótt að mínum dómi hefði verið langmest ástæða til þess af öllum þessum fjórum skiptum að hann beitti málskotsréttinum þá.

Vigdís Finnbogadóttir var afar varfærin gagnvart beitingu málskotsréttarins en lýsti því þó yfur að hún hefði beitt honum í Kárahnjúkamálinu á sama hátt og hún hefði beitt honum ef á borð hennar hefði komið lög um að taka upp dauðarefsingu.

Ástæðan var einföld: Í báðum tilfellum var um að ræða lagasetningu vegna  óafturkræfra aðgerða og hvað Kárahnjúkavirkjun snerti var um að ræða mestu óafturkræfu neikvæðu umhverfisáhrif í sögu landsins.

Nú veit ég hvernig Ólafur Ragnar brást við í slíku tilfelli og því höfðar sá hinna frambjóðendanna nú mest til mín hvað málskotsréttinn snertir, sem kemst næst því að gera svipað og Vigdís hefði gert.

En auðvitað skiptir líka máli hve mikla möguleika slíkur frambjóðandi á til að ná kjöri.

Ómar Ragnarsson, 22.4.2012 kl. 00:19

2 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Takk kærlega Ómar. Svara þér ýtarlega seinna í dag!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 22.4.2012 kl. 00:52

3 Smámynd: Hjörtur Herbertsson

Ég held að það sé engin svo vitlaus að taka mark á þessu bloggi þínu GJK.

Hjörtur Herbertsson, 22.4.2012 kl. 17:18

4 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Ómar!  Hef ætið virt þínar skoðanir í náttúruverndarmálum Íslands. En
hef þó ætið fundist ekki alveg samhljómur í henni. Þú stofnaðir Íslandshreyfinguna. Innlimaðir hana svo í Samfylkinguna. Sem vill fara
með Ísland inn í ESB. Þar með afhenda t.d okkar verðmætustu auðlind,
fiskimiðin hinu YFIRÞJÓÐLEGA VALDI Í BRUSSEL. Og ekki bara það. Þegar
Ísland hefur gengið í ESB VÍKUR íslenzka stjórnarskráin fyrir þeirri í Brussel.
Þannig að ákvæðið ,,auðlindir í þjóðareign" í íslenzkri stjórnarskrá verður MARKLUS   göngum við í ESB. Og í raun verða náttúruauðlindir okkar undir
göngum við í ESB.  Og þú Ómar sast í stjórnlagaráði og samþykktir þar
meiriháttar ákvæði um fullveldisframsal í stjórnarskrá svo Ísland gæti gerst
aðili að ESB.

Þannig Ómar. Er ekki alveg að fatta þína pólitík. Á sama tíma sem þú vilt
standa vörð um náttúru Íslands ertu tilbúin að fórna ÍSLENZKU  valdi yfir
þessari  sömu náttúru og auðlindum Íslands til yfirþjóðlegs valds í Brussel.

  Verndun FULLVELDIS  og SJÁLFSTÆÐI ÍSLANDS hlýtur ÆTIÐ að fara saman
við VERNDUN ÍSLENZKRAR NÁTTÚRU og auðlinda Íslands. Svo framanlega
sem við viljum vernda okkar fallega land á íslenzkum forsendum í samræmi
við íslenzkan þjóðarvilja á hverjum tíma.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 22.4.2012 kl. 17:40

5 Smámynd: Elle_

Ég verð að taka undir með Guðmundi og skil þig ekki alveg í fullveldismálinu eða ICESAVE, Ómar Ragnarsson.  Hef oft velt þessu fyrir mér.  Og ég vildi að ég skildi þig þar.

Geturðu skýrt fyrir okkur hví þú vilt vera í landsöluflokki og ICESAVE flokki Jóhönnu?  Þú varst með frábæran flokk í Íslandshreyfingunni.

Og ég bendi á að með ICESAVE3 hefðum við FÆRT LÖGSÖGUNA í málinu yfir til ensks dómstóls, til erkióvinar okkar í málinu.  Það hefði getað valdið gjaldþroti ríkisins.  Ríkissjóði barnanna okkar.  Vildirðu það eða vissirðu það ekki? 

Og hver er hinn ómarktæki Hjörtur H. að ofan?

Elle_, 23.4.2012 kl. 22:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband