Styður forysta Sjálfstæðisflokksins ESB-trúboð á Bessastöðum?


   Er það virkilega svo að forysta Sjálfstæðisflokksins ætli að
berjast gegn núverandi forseta og koma yfirlýstum ESB-sinna 
á forsetastól á Bessastöðum? En Fréttatíminn fullyrðir að fram-
kvæmdastjóri þingflokks Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi
aðstoðarmaður formanns sama flokks séu dyggir stuðnings-
menn Þóru Arnórsdóttir forsetaframbjóðenda sem er yfirlýst
ESB-sinni, enda sósíaldemókrati.

   Núverandi forystu Sjálfstæðisflokksins er trúandi til alls! Ekki
er gleymt þegar hún gekk til liðs við vinstristjórn Jóhönnu Sig-
urðardóttir í seinni hluta Icesave-svikanna. En þar sveik hún
ekki bara þjóðina, heldur ályktanir Landsfundar Sjálfstæðis-
flokksins um Icesave. Trúverðugleiki formannsins í Evrópumálum
hefur auk þess ekki verið upp á marga fiska, og virðist snúast
í þeim eftir því hvernig vindar blása hverju sinni...
   
  Þess vegna á sú spurning fyllilega rétt á sér, ekki síst  í ljósi
upplýsinga Fréttatímans, hvort Icesave-forysta Sjálfstæðisflokk-
sins sé kominn í enn eitt  meiriháttar leynimakkið  um enn eitt
ríkisstjórnarsamstarfið með sósíaldemókrötum sínum nú eftir
kosningar? - Ekki mun hin öflugi sísíaldemókrata-kjarni  innan
Sjálfstæðisflokksins súta það!

   Gott að kominn sé inn á hið pólitíska svið ALVÖRU þjóðhollur
hægriflokkur sem fólkið í landinu getur nú treyst! HÆGRI GRÆNIR!

   www.xg.is  www.afram-island-is

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Er enginn hér sem kemur þessari aumu hrun Icesave-forystu Sjálfstæðisflokksins til varnar?

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 29.4.2012 kl. 01:03

2 Smámynd: Jón Valur Jensson

Sannarlega deili ég með þér þessum áhyggjum þínum, Guðmundur Jónas, enda hefur mér sýnzt á ýmsu, að Sjálfstæðisflokkurinn og sumir hans menn amist við endurframboði forsetans, en hvað vilja þeir betra? Ekki er Þóra (óskaframbjóðandi Samfylkingar) betri kostur!

Meðal þess, sem kann að stuðla að því, að Sjálfstæðisflokkur geri hosur sínar grænar fyrir Samfylkingu, er (undarlegt nokk!) landsdómsmál Geirs Haarde, manns sem reynt var að fella með bolabrögðum. Þar er m.a. horft til óverjandi hörku og ósvífni Steingríms J. Sigfússonar í því máli, manns sem m.a. notaði tækifærið til að halda hálftíma pólitíska áróðursræðu í landsdómi (!), þannig að ljóst er af öllu, að ekki geta sjálfstæðismenn starfað með honum. Það sama á við um litla manninn Þór Saari og Hreyfingu hans vegna hörku hans í landsdómsmáli.

En Samfylkingarmenn áttu ýmsir þátt í sviksamlegri aðförinni að Geir, eru sjálfstæðismenn búnir að gleyma því?!

Mæla má með Hægri grænum í stað flokka með ótraustsverða forystusveit, eins og Sjálfstæðisflokkurinn er, -- jafnvel Framsóknarflokkurinn stendur sig ekki nógu vel í Esb-málum upp á síðkastið, þótt Guðni Ágústsson sé þar eins og klettur í hafinu.

Jón Valur Jensson, 29.4.2012 kl. 01:17

3 identicon

Heill og sæll Guðmundur Jónas; æfinlega - sem og aðrir gestir, þínir !

Jón Valur !

''klettur í hafinu''; Guðni Ágústsson, fargaði Lánasjóð Bænda, árið 2005, á altari Kaupþings frjálshyggjunnar- og græðginnar, þó, allt of hljótt hafi farið, um þann gjörning hans, sem þáverandi Landbúnaðar ráðherra.

Hygg; flest Brúnastaða systkina, heilli og ærlegri manneskjur, en Guðni hefir reynst vera, því miður.

Að minnsta kosti; þekki ég þá Ketil og Þorvald, að góðu einu. Gísli heitinn, var einnig valmenni, mikið.

Með beztu kveðjum; úr Árnesþingi / 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 29.4.2012 kl. 01:44

4 identicon

12 skýringar forsetans á atgjörvi útrásar-bófanna

 

Nr. 1. Óli um dugnað útrásar-bófanna. When we go home, these guys are still working.

First comes a strong work ethic. This is a heritage from the old society of farmers and fishermen, where necessity dictated that the fish catch had to be brought ashore and processed immediately when the boats came in to harbour and that hey had to be turned and collected when the weather was favourable. When Kaupthing Bank beat the other bidders for the Danish FIH Erhvervs Bank, the disappointed English representative returned to London and informed his boss that the Icelanders had won because, as he put it: “When we go home these guys are still working.”

Haukur Kristinsson (IP-tala skráð) 29.4.2012 kl. 08:30

5 identicon

Alltaf hvimleitt þegar fólk skrifar ekki á ísl. tungu.

T.d. Haukur Kristinsson hér að ofan. Hvað er í veginum? Ég og margir fleiri íslendingar skilja ekki erlend tungumál.

Erum við þá svona heimsk að mati Hauks að okkur séu ekki ætluð þessi skrif? Eða er þetta íslenskur menntahroki?

Jóhanna (IP-tala skráð) 29.4.2012 kl. 08:48

6 Smámynd: Óðinn Þórisson

Ef fólk styður ÞA þá er það að styja umsókn íslands að esb - það ætla ég ekki að gera.
Hef ekki heyrt BB eða ÓN segjast ætla að styðja ÞA

Óðinn Þórisson, 29.4.2012 kl. 08:53

7 identicon

Nei, Jóhanna. Þetta er ekki menntahroki. En ég á þessa ræðu Óla aðeins á ensku. Hann flutti hana í London, í maí 2005. En textinn er víst til á íslensku, ég þarf að finna hann.

Haukur Kristinsson (IP-tala skráð) 29.4.2012 kl. 09:09

8 Smámynd: Jón Valur Jensson

Ég held, að framkvæmdastjóri FLokksins sé Jónmundur Garðarsson, en hver er aftur fyrrverandi aðstoðarmaður Bjarna unga Ben.? Varla er átt við Illuga Gunnarsson. Og var Bjarni orðinn ráðherra, áður en bólustjórnin féll? Mikið er ég þá orðinn gleyminn, ég man helzt eftir honum sem formanni utanríkismálanefndar og allsherjarnefndar, en í þeirri síðarnefndu var hann duglegur við að liðka til fyrir vændi á Íslandi !

Jón Valur Jensson, 29.4.2012 kl. 10:15

9 identicon

Skýringar forsetans á atgjörvi útrásar-bófanna

 

Nr. 2. Óli um fókusinn. To go straight to the task.

 

Second, we tend to focus on the results rather than the process: to go straight to the task and do the job in the shortest time possible; to ask when it can be done rather than how.

Haukur Kristinsson (IP-tala skráð) 29.4.2012 kl. 11:00

10 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Skv Fréttatímanum er Svanhildur Hólm Valsdóttir framkvæmdastjóri þingflokks Sjálfstæðisflokksins og Friðjón Friðjónsson fyrrum aðstoðarmaður
Bjarna Ben mmeð dyggustu stuðningsmönnum Þóru.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 29.4.2012 kl. 11:13

11 Smámynd: Jón Valur Jensson

Alveg rétt, já, Svanhildur var tekin við, og Friðjón fv. Moggabloggari er það sem hefur stutt Esb-Þóru.

Jón Valur Jensson, 29.4.2012 kl. 12:54

12 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Nákvæmlega félagi Jón Valur.  Og þessu þarf að halda á lofti. Treysti ekki
Sjálfstæðisflokknum fyrir horn í Evrópumálum ekki frekar en í Icesave!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 29.4.2012 kl. 13:48

13 Smámynd: Skeggi Skaftason

Þetta er agalegt að heyra!

Flokkurinn á auðvitað að mynda sér skoðun og fylkja sér að baki traustum frambjóðanda með réttar skoðanir og svo eiga flokksmenn að fylgja þeirri skoðun!

Það hefur verið einn helsti styrkur Sjálfstæðisflokksins í gegnum tíðina að þar að hafa menn ekki hugsað sjálfstætt heldur fylgt línunni frá Valhöll. Þannig hefur verið komið í veg fyrir glundroða eins og vinstri vængnum og Sjálfstæðisflokkurinn hefur myndar sterka einróma heild. Gengið í takt!

Við Sjálfstæðismenn krefjumst þess í þessu máli sem og öðrum að FLOKKURINN segi okkur hvaða skoðun við eigum að hafa!

Skeggi Skaftason, 29.4.2012 kl. 20:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband