Silfur Egils úti á túni! HÆTTU EGILL!
21.5.2012 | 00:18
Sem betur fer fáum við nú hlé á drottningarviðtölunum
í Silfri Egils. En í gær toppaði Egill öll drottningarviðtöl sín
er hann talaði við Steingrím J og er þá mikið sagt. Var
gjörsamlega úti á túni! Vankaður!
Egill vakti athygli á hversu Steingrímur J væri orðinn
svo eftirsóttur til að bjarga efnahagsmálum heimsins. Og
tók það til að AGS hefði grátbeðið Steingrím J að fara á
vegum AGS til Grikklands til bjargar hörmungunum þar.
Steingrímur J fór hálf partinn hjá sér við þetta mikla hrós
þáttarstjórnandans og við þá miklu alþjóðlegu viðurkenningu
sem þarna bar á góma.
Er Egill Helga með algjört gullfiskaminni? Eða var hann að
gera meiriháttar at í ráðherranum? Eða man Egill kannski
ekki lengur eftir Icesave? Þegar fjármálaséníið Steingrímur
J ætlaða að kokgleypa Svavars- samninginn illræmda? Sem
ALLIR játa nú að hafi leitt til þjóðargjaldþrots Íslendinga í dag.
Og það með hvatningu frá AGS! Nema vegna inngripa forseta
vors og þjóðar tókst af afstýra þeim Íslandshörmungum.
Og talandi um Evrópumálin við Steingrím J steingleymdi svo
þessi Egill að spyrja fjármálaséní sitt út í aðal ESB-málið í
dag. IPA-styrki ESB upp á 5 milljarða til aðlögunar Íslands að
stjórnkerfi ESB. JÁ hvers vegna Egill var Steingrímur J ekki
einmitt spurður út í þetta og hvernig IPA-styrkirnir samrýmdust
stefnu VG í ESB-málum? Var það kannski of óþægileg spurning
fyrir fjármálaséníið?
Helt að maður yrði laus við Silfur Egils á RÚV í haust. En Egill
gaf til kynna að svo yrði ekki! Endurskoðaðu þá afstöðu og
HÆTTU Egill! Það yrði einn liður af mörgum í því að hreinsa
ÆRLEGA til á RÚV!
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:24 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.