Ekkert að marka Icesave-Bjarna í Evrópumálum



   Hversu mikið er að marka formann Sjálfstæðisflokksins Bjarna
Benediktsson sem segist nú vilja gera hlé á viðræðunum um aðild
Íslands að ESB NÆSTA VOR  komist hann til valda? Formaðurinn
sem með sínu fræga ískalda mati sínu samþykkti síðustu Icesave
þjóðsvikasamning hinnar alræmdu vinstristjórnar, til að liðka fyrir
ESB-ferlinu. Þvert á Landsfundarsamþykktir flokksins. Og hefði nú
kostað íslenzka skattgreiðendur milli 60-70 milljarða, OG ÞAÐ Í
ERLENDUM GJALDEYRI  sem við eigum ekki  til! 

   NÆSTA VOR Bjarni?  Hvers vegna ekki að KREFJAST viðræðu-
slíta STRAX  Í DAG og draga umsóknina þar með til baka?  Eins og
t.d HÆGRI GRÆNIR vilja gera! Hvers vega að bíða til vors? Hvers
vegna ekki að hafa frumkvæði að því meðal ALLRA  sannra  ESB-
andstæðinga á Alþingi NÚNA?

  Fyrir síðustu kosningar var formaðurinn hálfvolgur fyrir  ESB-
umsókn í frægri blaðagrein. Eftir kosningar samþykkti  sami
formaðurinn síðustu Icesave-svikin í ísköldu mati, þvert  á
flokkssamþykktir. Kemur nú korter fyrir kosningar og segist
vilja  stöðva viðræðurnar. Trúverðugt?  N E I !

   www.afram-island.is  www.xg.is

mbl.is Fyrsta verk að stöðva viðræðurnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Guðmundur er einhver annar sem er á móti ESB aðild (eða minstakosti segist vera á móti ESB núna) en BB sem á einhvern sjens á að verða forsetisráðherra?

Ekki er það Jóhanna.

Ekki er það Steingrímur.

Hver þá?

Þór Saari, hann kemst kanski ekkert á þing.

Lilja Mósesdóttir, segjum að hún komist á þing, en varla verður hú forsætisráðherra.

Sigmundur Davíð jú hann er á móti ESB en ekki líklegt að hann verði forsetisráðherra.

Batnandi manni er bezt að lifa, og kanski að hann sjái ljósið núna sem hann sá ekki áður, semsagt ESB er ekkert fyrir Ísland, sérstaklega eftir allar þær breitingar sem hafa komið í Lisabon sáttmálanum og síðar.

Þess vegna spyr ég; er nokkuð annað í spilunum?

Að vísu hefur þjóðin sem betur fer varadekk, forsetan ÓRG, ef það púnkterar hjá BB og hann ættlar að nauðga þessu ESB upp á þjóðina án þess að láta umsóknina í þjóðaratkvæði, þá held ég að ÓRG komi ESB umsóknini í þjóðaratkvæði.

Þess vegna voru síðustu forsetakosningar mjög mikilvægar, ef Þóra hefði verið kjörin þá hefði þjóðin mjög líklega ekkert varadekk.

Kveðja frá Las Vegas

Jóhann Kristinsson, 17.9.2012 kl. 02:19

2 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Trúverðugt? Nei þessi maður getur aldrei talist trúverðugur aftur, ekki eftir lygina, heimskuna, og svikin sem hann hefur þegar orðið uppvís að.

Guðmundur Ásgeirsson, 17.9.2012 kl. 03:30

3 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Guðmundur Ásgeirsson mikið ert þú harður í dómum þínum.

Hefur þú aldrei haft skoðun á einhverju og þegar þú sást breitingar á kjarna málsins þá breittir þú um skoðun? Annað væri bara heimska, en Jóhanna og Steingrímur gera það ekki en BB segir að svo sé.

Ég er nú þannig að ég tek menn trúanlega þar til annað sannast.

Kveðja frá Las Vegas

Jóhann Kristinsson, 17.9.2012 kl. 03:54

4 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Jóhann. Eini flokksforingi og flokkur hans Guðm.Franklín Jónssonar HÆGRI
GRÆNIR www.xg.is eru þeir einu sem hafa skýra og klára stefnu í Eveópumálum, sbr. grein mín í Mogganum á laugardaginn.  Erum á móti
ESB-aðild af pólitískum ást´æðum, viljum draga umsókn að ESB til baka STRAXm segja STRAX upp Shengen-ruglinu, og endurskoða EES með
tvíhliða viðskiptasamning við ESB í huga sbr Sviss.  Höfum ætíð verið á
móti Icesave.  Já skýrara getur þetta ekki verið!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 17.9.2012 kl. 10:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband