Jóhanna hættir. Prosit! Prosit! Prosit! En.....


    Þau gleðitíðindi bárust í gær að leiðtogi hérlendra sósíaldemókrata,
Jóhanna Sigurðardóttir, ætli að hætta í stjórnmálum. Fyrir okkur  sem
m.a höldum upp á Októberfest þessar vikunar, er þetta enn kærkomin
ástæða til að segja og syngja PROSIT!  PROSIT!  PROSIT!

   En þótt Jóhanna hættir og hverfi af hinu pólitíska sviði kemur leiðtogi
sósíaldemókrata í hennar stað.  Baráttan gegn hinum óþjóðholla sósíal-
demókratisma hérlendis mun því halda áfram og er hvergi nærri lokið!

   Hrunráðherrann Jóhanna Sigurðardóttir verður ekki minnst með
virðingu í söguskoðun framtíðarinnar. Stjórnmálamanneskjan í embætti
forsætisráðherra sem vogaði sér eftir eitt mesta efnahagshrun Íslands,
að nota veikleika  þjóðarinnar  og  upplaust  til  að koma þjóðinni undir
erlent vald á ný. Sundra þjóðinni í herðar niður í stað að SAMEINA!
Draga úr þjóðinni allan kjark og íslenzka framtíðarvon, með  umsókn 
Íslands  að  ESB,  með  dyggum  stuðningi   hérlendra kommúnista.
Sem er ein ljótasta aðför að fullveldi og sjálfstæði Íslands fyrr og síðar,
og sem Jóhönnu verður mest minnst fyrir. 

   Þá má ekki gleyma Icesave-þætti Jóhönnu. Þegar hún beitti sér fyrir
ásamt hérlendum kommúnistum að þröngva skuldadrápsklyfjum útrásar
mafíuósa yfir á þjóðinni, alþýðuna,  til að þóknast valdhöfunum í Brussel.
Er hefði gert hina íslenzku þjóð endanlega gjaldþrota í dag hefði forseti
og þjóðin ekki gripið inn í og sagt ÞVERT NEI JÓHANNA!  HINGAÐ OG
EKKI LENGRA! 

   Já saga Jóhönnu Sigurðardóttir í íslenzkum stjórnmálum, og ekki síst
hin síðustu ár er dapurlegur! Það dapurlegur gagnvart fullveldi Íslands
og íslenzkum þjóðarhagsmunum, að slíkur stjórnmálamaður hlýtur að
þurfa að svara fyrir gerðir sínar að afloknum kosningum.  Fordæmið,
hefur þegar verið gefið!

    www.afram-island.is

mbl.is Jóhanna ætlar að hætta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband