Hvað hefðu Össur og Steingrímur þá sagt ?


  ESB eys nú peningum og áróðri út og suður á Íslandi til að fá Ísland
inn í ESB, og til kynningar á ESB-dýrðinni, og til að aðlaga stofnanir og
stjórnkerfi Íslands að Brusselkerfinu. Sendiherra  ESB  á  Íslandi hikar
ekki við að  hafa gróf  afskipti  af íslenzkum  innanríkismálum, og fær
frjálsar hendur til að innræta Íslendingum ESB-boðskapinn, í kynningar-
ferðum um Island. Meir að segja heilum sveitarfélögunum er mútað.
ÖLLU er tilkostað til að innlima Ísland í Sambandsríkið ESB.

   Allt gerist þetta með mikilli velþóknun ráðheranna Össurar og Stein-
gríms J. Fyrrum kommúnistanna úr Alþýðubandalaginu. En hvað hefðu
þessir  sömu  sósíalistar  sagt  hér  fyrr á  árum hefði sendiherra USA
ferðast um landið með fullar hendur dollurum til að bera fé á fólk og
grunnstoðir samfélagsins, í þeim tilgangi að kaupa þjóðarviljann til
að gerast fylki í USA?  Og  haldið  uppi um það sterkum áróðri.  Hvað 
hefði  verið  hrópað þá Össur og Steingrímur?  Jú! Gróf og óþolandi 
afskipti  USA af íslenzkum innanríkismálum!  Brot á Vínarsáttmálanum
um  erlend  sendiráð!  Össur og Steingrímur  hefðu krafist tafarlausrar 
brottrekstrar sendiherra USA á Íslandi. Og froðufellt af reiði. Ekki satt?

  Verst er þó þáttur Sjálfstæðisflokksins í þessu máli. Lá hundflatur er
IPA-mútustyrkir ESB upp á 5 milljarða runnu gegnum Alþingi 18 júní s.l. 
En málið var þá runnið út á tíma.  Sem enn og aftur sýnir að Sjálfstæðis-
flokknum er alls ekki treystandi í Evrópumálum, ekki frekar en í Icesave.
Eða Steingrími & co!

    www.xg.is  www.afram-islands.is/magasin.pdf    

mbl.is Kynning á ESB efld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Elle_

Já, þetta er nefnilega svona, Guðmundur.  Steingrímur og Össur hefðu froðufellt af reiði.  Óþolandi að enginn skuli stoppa þetta og stjórnarandstaðan hleypt þessu í gegn, ef ég get orðað það þannig.

Elle_, 12.10.2012 kl. 23:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband