Dræm þátttaka hjá sósíaldemókrötum. En samt óljóst!


  Þótt þátttaka í prófkjöri Samfylkingarinnar um s.l helgi
hafi verið dræm, ber ekki að draga þá ályktun að fylgið
við hina alþjóðasinnuðu sósíaldemókrata sé að minnka
á Alþingi Íslendinga. Þvert á móti í ljósi þess að a.m.k
tvö flokksframboð hafa fram komið sem hrein og bein
útibú frá Samfylkingunni, er allt þetta mjög óljóst! Björt
framtíð og Dögun. Sem eiga eftir að sanna sig. En bæði
þessi framboð eru ESB-sinnuð og hlynnt vinstristjórninni. 

   Þá má ekki gleyma hinum sósíaldemókrataísku öflum
innan hinna Fjórflokkanna. Þannig unnu hin sósíaldemó-
krataísku öfl meiriháttar varnarsigur í prófkjöri Sjálf-
stæðisflokksins í Kraganum. Helsti talsmaður ESB-sinna
hlaut þar 2 sætið og ESB-viðræðusinni og verðtryggingar-
sinni að hætti ASÍ  hlaut 4 sætið.

   Um næstu helgi verða svo prófkjör sjálfstæðismanna í
Reykjavík. En klárlega sigla þar margir sósíaldemókratar
undir fölsku flaggi. Og fá leyfi til þess!

    HÆGRI GRÆNIR eru hins vegar alveg sér á báti, því
þar á bæ fá sósíaldemókratar einfaldlega ekki að starfa
eða taka  þátt!  Bara húrra fyrir þeim!

    www.xg.is  www.afram-island.is/magasin.pdf

 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband