Gnarr-isminn í landsmálin yrði eftir öðru! Skandall!


   Það að Jón Gnarr borgarstjóri íhugi í alvöru að fara í landsmálin,
segir allt um íslenzk stjórnmál í dag. Upplausnin í íslenzkum stjórn-
málum virðist engan endi ætla að taka. Ekki nóg með að fyrirbæri
sem  kallar sig geimveru og trúða
 setjist í stól borgarstjóra, heldur
er hinn sami farinn í alvöru að trúa að sjálfur stóll forsætisráðherra
standi honum til boða eftir næstu kosningar.  Og það eins og ekkert
sé sjálfsagðara.

   Efnahagslegt hrun fylgir upplausn og pólitískur glundroði. Sem
komið  er  á  daginn á Íslandi í dag. Alþingi er rúið öllu trausti  og
vegið er skipulega að  sjálfum  grunnstoðum samfélagsins, sjálfri
stjórnarskránni. Þar sem vinstrisinnaðir róttæklingar og anarkistar
virðast ráða för í boði sósíaldemókrataískra afla. Sem leynt og ljóst 
vinna  að  eyðingu  þjóðvitundar, þjóðhyggju  og  þjóðhollra íhalds-
samra  gilda og viðhorfa. Þannig að sjálft fullveldi Íslands er nú í
bráðri hættu!!!!!!!!

   Allt þetta gat gerst og gerist enn vegna tómarúms og staðfestu-
leysis á hægri kanti íslenzkra stjórnmála. Hefði sterkt borgaralegt
og íhaldssamt þjóðhyggjuafl til hægri stjórnað Íslandi af FESTU og
EINURРhefði aldrei komið til hrunsins mikla hausið 2008. Svo mikið
er víst!!

    Gamla góða Íhaldsflokksins á fyrri hluta síðustu aldar er því sárt
saknað. Spurning hvort nýtt framboð til hægri geti fyllt hans tóma-
rúm. Eitt er þó ljóst. Meðan vinstriöflin og stjórnleysingjar fá að
leika lausum hala er voðinn vís fyrir land og þjóð!  Og Gnarr-isminn
í landsmálin  yrði eftir öðru! 

   ÁFRAM ÍSLAND!!!!!  

     


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

þetta er fínt, þjóðin er búin að fá algeran viðbjóð á "Borgarstjóranum", hann mun ekki trekkja að í kosningum.

Kristján B Kristinsson (IP-tala skráð) 13.12.2012 kl. 11:43

2 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Vonandi Kristján. En bara furðufuglarnir eru svo margir sem hafa kosningarétt
í dag...

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 13.12.2012 kl. 21:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband