Þýski AFD þegar farinn að rugga ESB-bátnum.


   Einn af ánægjulegum sigrum þjóðhollra hægriflokka til
Evrópuþingsins í vor var sigur þýskra íhaldsmanna, AFD,
eða, Alternative fúr Deutschland,  sem útleggst ,,annar
kostur fyrir Þýskaland. En flokkurinn komst vel yfir 5% 
,,múrinn" og hlaut þingmenn á Evrópuþingið. Flokkurinn
er eins og sannur hægriflokkur andstæður ESB-Sovét-
bákninu í Brussel og vill taka aftur upp gamla góða 
þýska markið í stað evru. - Og er þegar farinn að rugga
ESB bátnum!

   Nú hefur það gerst að AFD hefur verið samþykktur að
verða félagi í þingflokki með breskum Íhaldsmönnum á
ESB-þinginu ECR. Fréttaskýrendur telja að þetta muni 
verða Angelu Merkel kanslara Þýskalands til litillar
gleði og muni auka enn á spennu í samskiptum hennar
við Davids Camerons forsætisráðherra Breta. Því Merkel
lítur AFD miklu hornauga, sem augljóslega er í mikilli sókn
í Þýskalandi á hægri kantinum, og ógnar veldi Merkel í
samstarfi við þýska sósíaldemókrata. -  Þannig  að hér
getur enn sannast að oft veltir smá þúfa þungu hlassi!

   Augljóslega er þetta aðeins byrjunin á  miklu umróti  og
upplausn innan ESB eftir stórsigur íhaldssamra þjóðhyggju-
flokka til ESB þingsins í vor. Sem allir eiga það sammerkt
að vera á móti hinni GJÖRSPILLTU OFURMIÐSTÝRINGU í
BRUSSEL og YFIRÞJÓÐLEGUM VALDAHROKA ESB!

   Stóri brandarinn er hins vegar sá að á Íslandi virðist  öll
þessi ánægjulega hægriþróun þjóðfrelsissinna í Evrópu
sigla framhjá íslenskum stjórnmálum. Í bili a.m.k.! Þegar
furðufyrirbæri eins og Píratar fá vængi og ESB-sinnuð
sósíaldemókrataísk öfl endurnýjast í nýjum og nýjum
kennitölum  og  nöfnum,  sbr. nú  síðast  i svokallaðri
 ,,Viðreisn".  

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rafn Guðmundsson

jájá - esb er 'bráðum' búið

Rafn Guðmundsson, 13.6.2014 kl. 01:03

2 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Sjá það ekki flestir Rafn?

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 13.6.2014 kl. 01:06

3 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

“Viðreisn” eða “Björt fortíð” eins og Kolbrún Hilmars kallaði hana svo skemmtilega í bloggi Páls Vill.

Helga Kristjánsdóttir, 13.6.2014 kl. 02:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband