Sósíaliskur Icesave-sinni formaður Heimssýnar!


   Auðvitað er kjör Jóns Bjarnasonar formanns Heimssýnar 
skandall og brandari! 

  Þingmaður flokks sem sótti um aðild Íslands að ESB.

  Ráðherra sem sat í ríkisstjórn sem sótti um aðild að
ESB, og kom ásamt félögum sínum öllu ESB-aðildarferlinu
af stað.

  Ráðherrann og þingmaðurinn sem samþykkti ALLA Icesave
samninganna til að styggja ekki ESB-ferlið í Brussel.  

  Sat sem fastast í hinni ESB-sinnuðu vinstristjórn með ESB-
aðildarferli á fullu þar til honum var hent út!

  Sósíalisti og róttækur vinstrisinni sem barist hefur fyrir 
varnarlausu Íslandi og syngur internationalinn á tyllidögum
veifandi rauðum fána!

   Hvaða sannur ESB-andstæðingur styður flokk sem sækir 
um aðild að ESB?

   Hvaða sannur ESB-andstæðingur situr í ríkisstjórn sem 
ráðherra sem vinnur dag og nótt að koma Íslandi í ESB?

   Já hvað er eiginlega að gerast hjá Heimssýn ?

   Verðlaunar mann sem kom ESB-ferlinu af stað!

   Hvers konar aula-rugl er þetta?

   Skandall!

mbl.is Jón Bjarnason kjörinn formaður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónatan Karlsson

Ja satt segirðu Guðmundur, svo ekki sé nú minnst á svikin varðandi 5% árlegra kvóta endurheimtu til þjóðarinnar - Allt bara lygi.

Jónatan Karlsson, 11.10.2014 kl. 13:18

2 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Við ættum að þakka fyrir að Jón Bjarnason var í ríkisstjórn Jóhönnu, Það var hann sem hélt aftur af áframhaldi viræðnanna,þegar hann uppgötvaði að ESb.krafðist hlutdeildar í landhelgi íslendinga frá fyrsta degi.Sem sagt engar undanþágur og jón var farinn að sjá blekkingar hjúanna,Jóhönnu og Steingríms.- Gleðin yfir að eiga einn okkar í Jóhönnustjórn var ósvikin,við fundum hann ekki, hann fann okkur og formennsku tel ég hann inna af hendi af einskærri þjónustulund samtaka gegn ESB. aðild.

Helga Kristjánsdóttir, 13.10.2014 kl. 04:36

3 Smámynd: Elle_

Seint koma sumir, en ég verð að taka undir með Helgu, Guðmundur, þó ég hafi enn ekki getað fyrirgefið Jóni ICESAVE frekar en Lilju og Ögmundi.  Jón er ómissandi fullveldissinni þrátt fyrir það. 

Elle_, 19.10.2014 kl. 21:08

4 Smámynd: Elle_

Guðmundur, en ég skil þig alveg samt.  Það er óþolandi að hann og hin hafi sagt já við þessari ógeðslegu kúgun.  Það þarf enginn að fyrirgefa eða líða það, þó seint verði.

Elle_, 20.10.2014 kl. 12:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband