Þörf á nýjum þjóðhollum borgaraflokki !


  Það blandast engum hugur um að íslensk stjórnmál
eru í mikilli krísu. Ekki síst á hægri kantinum þar
sem hættulegt tómarúm virðist hafa myndast. Sem er
bein ávísun á upplausn og jafnvel glundroða í okkar
ágæta þjóðfélagi,sbr.uppgangur öfgasinnaða anarkísta
sem hvergi fyrirfinnst nema á Íslandi í dag.

  Sjálfstæðisflokkurinn sem í upphafi átti að vera
brjóstvörn borgaralega gilda og þjóðhollra viðhorfa
er það ekki lengur. Svo virðist sem hin sósíaldemó-
kratíska deild sem löngum hefur lifað góðu lífi
innan flokksins, hafi aldrei verið þar sterkari en
í dag. Nægir þar að benda á ömurlegt ástand flokk-
sins í borgarstjórn Reykjavíkur, fyrr og nú. 
  

  Fjölmargt þjóðholt borgarasinnað fólk sem einnig 
lætur kristin gildi sig varða hefur eðlilega miklar
áhyggjur af þessari þróun. Þjóðfélagsleg upplausn
í boði vinstrimennsku og anarkisma virðist fá að
grassera í íslensku samfélagi nánast mótstöðulaust.

 Sem betur fer eru nú nokkrir hópar sem aðhyllast
einmitt hin þjóðhollu borgaralegu gildi, og hafa
áhyggjur af tómarúminu á hægri kanti íslenskra
stjórnmála, að ræða málin.  

  Sú umræða má hins vegar ekki taka of langan tíma!
Því verkefnið er knýjandi og að menn og hópar sam-
stilli sig og verkefnið á einum vettvangi.

  Þörfin á sterkum þjóðhollum borgaralegum flokki 
hefur aldrei verið eins brýn og einmitt nú !  
Látum þá þörf verða að veruleika sem fyrst!

 Íslandi og þjóðinni til heilla !


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband