Aðförin að Jónínu Bjartmarz mistókst.


     Það er alveg ljóst eftir Kastljósið í kvöld að
pólitísk aðför Helga Seljans að Jónínu Bjart-
marz  umhverfisráðherra mistókst herfilega.
Helgi var í vörn allan tímann og er ljóst að
hans fréttamannsferill hefur orðið fyrir miklum
álítshnekki eftir þetta frumhlaup.

   Mestu mistök Helga var að kynna sér ekki
báðar hliðar málsins þegar hann í gærkvöldi
þrumaði allskyns dylgjum og ósannindum
framan í sjónvarpsáhorfendur. Nú er komið
á daginn að ráðherra kom þarna hvergi
nærri og Allsherjarnefnd vissi ekkert  af
tengslum ráðherra við einn umsækjandan
um íslenzkan ríkisborgararétt. Þá kom fram
að nefndin veitir árlega margar undanþágur
þótt umsækendur hafi dvalið innan við
20 mánuði á Íslandi.  Helgi reyndi hér að
hengja bakara fyrir smið en mistókst það
gjörsamlega.  Jónina Bjartmarz fór með
sigur af hólmi  og ástæða til að óska henni
til hamingju. Því hér var svo sannarlega
reynt að vega að mannorði hennar og 
orðstír, og sem meira var, stöðu hennar
sem ráðherra og þátttöku í stjórnmálum.

   Þori að fullyrða að engin karlkynsráðherra
hefði þurft að reyna slíkt.

   Aðförin að Jónínu Bjartmars er hneisa fyrir
Ríkissjónvarpið, og alvarlegt nú í aðdraganda
kosninga, þegar hlutleysi RÚV er svo mikilvægt.
 



« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

jamm, þetta var sorgleg aðför og maður spyr sig hvort Helgi hafi farið á baráttufund hjá vinstri grænum fyrir viðtalið og fengið heilaþvottinn a la zero framsókn.

Svavar Friðriksson (IP-tala skráð) 27.4.2007 kl. 22:26

2 Smámynd: Gestur Guðjónsson

Ætli hann hafi ekki frekar hitt Robert Marshall til að læra taktana síðan í tölvusíðuklukkumálinu mikla

Gestur Guðjónsson, 27.4.2007 kl. 22:41

3 Smámynd: Sveinn Hjörtur

Það er í raun sama hvar Helgi hefur fengið ,,leiðsögn" í þessu. Þetta var allt sorglegt. Það litla sem ég hafði álit á honum er endanlega farið.

Ég verð reyndar hugsi, hvert Kastljós ætlar að stefna? Það held ég að sé mikilvægt að velta fyrir sér því það er ekki góð þróun ef þeir ætla að fara í þessa drullukeppni.

Sveinn Hjörtur , 27.4.2007 kl. 23:37

4 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Bendi á grein í dag eftir Falasteen Abu Libdeh
 sem segir m.a. „Eftir að hafa verið hluti af íslensku samfélagi í þrjú ár, verið við nám, eignast barn og starfað á íslenskum vinnumarkaði fannst mér tímabært að sækja um að öðlast í fyrsta sinn á ævinni þann rétt sem fylgir því að tilheyra sjálfstæðu ríki – að fá raunverulegt ríkisfang.

Þrátt fyrir að það væri fullljóst að ég væri komin hingað til að vera, þrátt fyrir að hafa lært tungumálið, þrátt fyrir að ég væri farin að gefa íslenska ríkinu hlutdeild í tekjum mínum og þrátt fyrir að ég væri orðin móðir, þá sá allsherjarnefnd ástæðu til að hafna ósk minni um að gerast íslenskur ríkisborgari. Einu rökin sem lögð voru til grundvallar ákvörðun nefndarinnar voru þau að ég væri ekki búin að búa hér í full sjö ár."

Ef þetta er rétt að kollegar Jónínu á þingi hafi ekki verið að gera henni greiða þá er þetta fólk með öllu ófært í sínu starfi og ætti ekki að kjósa á þing. Héðan hefur fólk verið sent í burtu jafnvel þó það sé gift íslending og ætti með honum barn. Og látið bíða eftir ríkisborgararétti í 7 ár. Þannig að þar til maður veit hvaða ástæður Alherjarnefnd notar til að synja eða veita ríkisborgararétt verður hér fullkomin óvissa og fólk getur vitnað í þetta fordæmi.

Magnús Helgi Björgvinsson, 28.4.2007 kl. 09:28

5 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Bendi þér á Magnús að ræða t.d þessi mál við flokkssystur þína
Guðrúnu Ögmundsdóttir sem á sæti í Allsherjarnefnd og afgreiddi
málið. Það sem fauk í mig var þessi ofstopi og klárlega pólitísk
aðför Helga Seljans að Jónínu Bjartmarz sem HVERGI kom að þessu máli. Auðvitað átti Helgi að hella sig yfir fulltrúa Allsherjarnefndar og fá skýr svör þar, en það gerði hann ekki, heldur gerði úr þessu pólitíska aðför að Jónínu. Þorði það m.a
af því hún var kona. Hefði aldrei ráðist svona  úr návígi að
karlmannsráðherra. Það gerði mig virkilega reiðan.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 28.4.2007 kl. 10:45

6 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Jónína Bjartmarz hljóp á sig í þessu máli.  Svo einfallt er það.

Jakob Falur Kristinsson, 30.4.2007 kl. 08:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband