Andstaða við íslamista í Evrópu.


    Í frétt á Mbl.is í dag segir að múslimar í Evrópu mæti nú
aukinni andspyrnu við byggingu moska. M.a hafa áform um
byggingu moska í Marseille í Frakklandi og London í Bret-
landi verið kærð. Í Colonna á Ítalíu kom til fjöldamótmæla
vegna áforma um byggingu mosku þar. Þá hefur einnig
komið til átaka í Berlín í Þýzkalandi út af byggingu moska.
Í júlí s.l varðaði einkaritari Benedikts sextánda páfa við
útbreiðslu íslamista í Evrópu. Og í Kárntern í Austurríki
hefur héraðsstjórinn þar sagst vilja banna moskubyggingar.
,, Við viljum ekki árekstra á milli menningarheima og við
viljum ekki stofnanir sem eru framandi menningu okkar
verði byggðar í Vestur-Evrópu" sagði héraðsstjórinn.

   Í Reykjavík liggur fyrir borgarstjórn umsókn um byggingu
mosku..............

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Heill og sæll, Guðmundur !

Íslands óhamingju yrði allt að vopni, næðu þessi áform Múhameðskra; hér, fram að ganga.

Það er ánægjulegt, að þjóðir meginlands Evrópu, skuli teknar, að rumska við, hvers lags háski þeim steðjar að; með þessum byggingum. Ógrynni ''klerka'' og annarra ''uppfræðara'' streyma inn í þau lönd, hver veikust eru fyrir, og flestir sjá uppskeru og afleiðingar þess.

Vonum, að Vilhjálmur; borgmeistari Reykjavíkur, beri þá gæfu til, að hafna; alfarið, þessum umleitunum.

Mbk. / Óskar Helgi Helgason     

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 27.8.2007 kl. 21:41

2 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Sæll Óskar. Til upplýsinga hafa Vinstri Grænir og  ríkisistjórnarflokkurinn Samfylkingin í borgarstjórn KRAFIST þess
að leyfið um byggingu mosku í Reykjavík verði leyft............

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 28.8.2007 kl. 00:57

3 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Fyrirgefið prentvilla. ,,að UMSÓKN um byggingu mosku verði leyft"
p.s Vinstri Grænir og Samfylkingin óska sem sagt eftir mosku í
Reykjavík...........

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 28.8.2007 kl. 01:09

4 identicon

Sæll, að nýju Guðmundur !

Færi svo, sem þú hyggur; að Samfylking og Vinstri hreyfingin - Grænt framboð vildu láta kné fylgja kviði, i þessum efnum, gæti það orðið undanfari borgarastríðs, í landinu. Kannski, þeim þætti það ekki verri kostur, en hver annar, eins óþjóðlegir, og þessir flokkar eru, í flestum greinum.

Hygg, að þú hafir; líkt og aðrir góðir spjallsíðuhafar, litið inn, hjá þeim Skúla Skúlasyni, í Kópavogi og Lofti Altice Þorsteinssyni verkfr. , sem og hjá Halldóri Jónssyni verkfr. Allir koma þeir, út frá ýmsum flötum; inn á þessi mál. Glöggir og skilvísir, í sinni uppfræðslu og skemmtilegir aflestrar, þeirra þættir. Minni einnig á skýrleiks síður, þeirra Jóns Vals guðfr. og ættfr.; sem og Vilhjálms Arnar Vilhjálmssonar fornleifafr.

Vinstri menn hefðu gott, af að kynna sér ''menningu'' Múhameðskra, og sjá, í hverju hún er fólgin; helzt.

Með beztu kveðjum / Óskar Helgi Helgason 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 28.8.2007 kl. 01:29

5 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Það eru tveir litlir skrattar á sinni hvorri öxl minni sem hvísla í eyrað á mér. Annar segir nei, nei, nei, engar moskur hér. Hinn er eitthvað umburðalyndari en er svo hjáróma að ég heyri lítið í honum.

Gunnar Th. Gunnarsson, 28.8.2007 kl. 04:02

6 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Auðvita mega múhameðstrúar fólk byggja sér hús til að iðka sín trúarbrögð, skárra væri það nú. Mér finnst þetta jaðra við ofsóknarkend. Við höfum leyft Kaþólikum, Krossinum, Veginum, Ásatrúarfélaginu og hvað þetta heitir nú allt saman að starfa hér. Og þrátt fyrir að margir af þessum söfuðum berjist gegn réttindum fólks eins og samkynhneigðum þá förum við ekki og lokum hjá þeim. Minni á að hryðjuverkamenn eru ofstækismenn sem eru í algjörum minnihluta og alls ekki starfandi í flestum löndum. Mér finnst þetta eins og að banna þjóðverjum að koma hingað af því að þar starfa nýnazistar eða Bader Meinhoff eða hvað sem þau kölluðu sig.

Ömurlegt þegar að menn brennimerkja um það bil 40% af öllu mannkyni út frá gjörðum nokkurra manna. Hvers eiga þeir sem fylgja Allah hér á landi og ekki hafa gert neitt af sér að gjalda að menn leyfi sér að tala svona um þeu.

Magnús Helgi Björgvinsson, 28.8.2007 kl. 15:01

7 identicon

Sæll, Guðmundur og aðrir skrifarar !

Magnús Helgi ! Ekki reyna, að bera í bætifláka, fyrir trúarbrögð; hver hafa að margyfirlýstu markmiði; allsherjaryfirráð, og að eyða öðrum kennisetningum, með öllu, á jarðarkringlunni.

Ekkert, ekkert; réttlætir slíka frekju, og yfirgang Múhameðstrúar, og fylgjenda hennar. Hugði þig, framan af, sæmilega upplýstan. Sé þetta þín meining, þá skjátlast mér hrapalega, um áður meintan góðan tilgang þinn.

Mbk. / Óskar Helgi Helgason       

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 28.8.2007 kl. 20:30

8 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Magnús minn. Var hér einungis að endursegja fréttir utan úr
heimi og ekki bara af  ótta fólks, heldur Páfagarðs líka.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 28.8.2007 kl. 20:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband