Staksteinar: Geir verður að gæta að sér !


     Nú  þegar hveitibrauðsdagar ríkisstjórnarinnar eru
liðnir, virðast margar grímur vera farnar að renna á
sjálfstæðismenn. Í Staksteinum í dag segir: ,,Það má
finna í ýmsum hornum Sjálfstæðisflokksins, að nú þegar
nýjabrumið er farið af samstarfinu við Samfylkinguna
þýkir sjálfstæðismönnum það samstarf ekki sérlega
skemmtilegt".

    Það var og, því ekki vantaði nú allt kossaflensið á
Þingvöllum í vor þegar brúðkaupið fór fram. Og breiðu
brosin blíðu.

   Og Staksteinar halda áfram. ,,Sumir þeirra telja að
talsmáti bæði formanns Samfylkingar og ýmissa annara
forystumanna flokksins sé ögrandi gagnvart Sjálfstæðis-
flokknum. Sjálfstæðismenn eru byrjaðir að finna að Sam-
fylkingin getur orðið erfiðir samstarfsaðili  ".

  Eins og þetta hefði átt að koma að óvart. Samfylkingin
er saman sett úr mörgum ólíkum flokksbrotum og hefði
geyspað golunni í vor hefi hin nýja forystusveit Sjálfstæðis-
flokksins með varaformanninn í broddi fylkingar ekki komið
henni og Ingibjörgu Sólrúnu  til bjargar, og myndað með
henni nýja ríkisstjórn. Þarna gerði hin nýja forysta Sjálf-
stæðisflokksins mikil mistök, því hún átti kost á borgara-
legri ríkisstjórn með Framsókn og Frjálslyndum. Situr nú
uppi með bragðillan pólitískan kokteil, sem Staksteinar
kvarta svo sáran undan í dag.

   Því er  ekki að undra þótt Staksteinar klingji út með
því að segja.  ,,Geir H. Haarde verður að gæta að sér".


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Þorgerður Katrin var potturuinn og pannan bak við það að bjarga
Ingibjörgu vinkonu sinni og Samfylkingunni frá allsherjar upplausn
í vor. Afleiðingarnar eru þegar farnar að koma í ljós.......

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 31.8.2007 kl. 20:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband