Vinstrisinnuð borgaraleg óhlýðni


   Nú er komið á daginn að skrílslætin í Ráðhúsi Reykjavíkur í
gær voru meir og minna þaulskipulögð af Vinstri-grænum og
Samfylkingunni. Meir að segja gekk einn  borgarfulltrúi Sam-
fylkingarinnar svo langt í viðtali í RÚV í hádeginu í dag að
verja skrílslætin í bak og fyrir, taldi EKKERT athugavert við
það þótt fresta varð fundi borgarstjórnar í heilan klukkutíma
vegna ólátanna. Þá hefur einnig komið á daginn að hluti
uppvöðsluseggjanna var úr nágrannasveitarfélugunum.
Þetta minnir meiriháttar á mótmælaaðgerðir Saving-Iceland
í sumar, en meginþorri þeirra voru útlendingar.  

   Allir vita að innan Vinsri grænna eru margar vistarverur
fyrir hina ýmsu hópa róttæklinga og anarkista sem enga
virðingu bera fyrir lög og rétti. Hins vegar er það athyglis-
vert þegar fulltrúar Samfylkingarinnar verða uppvísir af
slíku,  sbr. áður  nefndur  borgarfulltrúi, svo og  formaður
ungliða flokksins sem hafði sig mest í frammi í hinum ólög-
legu aðgerðum í Ráðhúsinu í gær.

   Skrílslætin hafa verð harðlega fordæmd hvarvetna, enda
bein ögrun við lýðræðið í landinu.  Þess vegna er full ástæða
að spyrja á hvaða leið er Samfylkingin í dag?  
  

    

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Þóra Hjaltadóttir

Mér finnst þetta allt saman mjög sérkennilegt. Sérstaklega þí þetta plott sjálfstæðimanna, sem flestir hljóta að geta séð í gegn um.

Þetta mun kosta okkur borgarbúana glás af peningum.

Guðrún Þóra Hjaltadóttir, 25.1.2008 kl. 17:39

2 Smámynd: Ingólfur

Ótrúleg ósvífni er þetta af hluta mótmælendanna að skipuleggja mótmæli sín. Og hvaða rétt hefur fólk í nágrannasveitarfélögunum til að ofbjóða yfirgangurinn í Villa og Óla F?

Kínverjarnir hafa rétt fyrir sér. Ef fólk þarf að mótmæla þá á það að gera það þar sem enginn sér eða heyrir til þeirra, en helst ætti það bara að sætta sig við það að sumum pólitíkusum er alveg sama um hvað almenningur vill, það er í pólitík fyrir sjálfan sig, ekki eitthverja aðra. 

Ingólfur, 25.1.2008 kl. 17:41

3 Smámynd: Ingólfur

P.S. Reyndar rangt hjá mér þetta síðasta. Þeir eru víst í pólitík fyrir aðrir, þ.e.a.s. vini sína.

Ingólfur, 25.1.2008 kl. 17:48

4 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Er ekki sjálfstæðismaður. En er ekki aðalhlutverk allra sem eru í
pólitík að komast til valda og  áhrifa? Skil því ekki glæpinn með
myndun þessa meirihluta. Allt gerðist innan regla lýðræðisins. Eða
hvað mátti þá segja þegar fyrrverandi meirihluti var myndaður?
Var það enginn glæpur af því vinstrisinnar áttu í hlut? Hvers konar
bull er þetta? Skrílslæti örfárra vinstrisinnaðra róttæklingar er
ENGINN mælikvarði á vilja almennings. Þvert á móti! Sem betur fer
eru Reykvikingar lausir við hinn STAÐNAÐA AFTURHALDSSAMA
vinstrimeirihluta. OG BARA HÚRRA FYRIR ÞVÍ!!! Guð sé lof að
vera laus við Dadda og CO!!!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 25.1.2008 kl. 21:16

5 Smámynd: Ingólfur

"Glæpurinn" núna er sá að Sjálfstæðisflokkurinn beitti blekkingum til þess að koma frá meirihluta sem naut stuðnings borgarbúar til þess að mynda meirihluta sem aðeins fjórðundur borgarbúa styður og setja auk þess mann í brúnna sem nánast ekkert traust, og á eftir honum á at taka við borgarstjóri sem þegar er búinn að klúðra allt af mörgu í þeirri stöðu.

Í þokkabót vegur þessi meirihluti salt án varamanns og því þurfa borgarbúar að búa við nánast óstarfhæfan meirihluta. 

Þetta er vissulega allt löglegt, en um leið algjör vanvirðing við lýðræðið. 

Í haust hins vegar, þá var meirihlutinn myndaður til þess að koma í veg fyrir brunaútsölu Sjálfstæðisflokksins á REI og voru borgarbúar strax fylgjandi þeim meirihluta.

Í raun er ekkert líkt með þessum meirihlutamyndunum.

Ingólfur, 25.1.2008 kl. 23:17

6 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Var ekki Björn Ingi AÐAL gerandinn í REI-málinu, sat í stjórn REI
og OR? Sat báðum megin til borðs A-Ö. Tók þá ekki Björn Ingi
fullan þátt í ,,brunaútsölinni" sem þú nefnir, sem þið vinstrisinnar
tóku meiriháttar í sátt og gerðu að aðalhjólinu undir fyrrverandi
meirihluta? Tek fram að sjálfstæðismenn bera 100% ábyrgð á öllu
REI-klúðrinu ekki síður en Björn Ingi.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 26.1.2008 kl. 00:25

7 Smámynd: Ingólfur

Þó Björn Ingi hafi átt sinn part í REI málinu að þá tók hann ekki þátt í brunaútsölunni.

Sjálfstæðisflokkurinn klofnaði í afstöðu sinni og eftir ótal fundi án oddvitans, þar með talið einn með forsætisráðherra, var eina leiðin til þess að koma í veg fyrir flokkurinn splundraðist var að selja REI sem allra fyrst.  Þetta ákváðu þeir og tilkynntu opinberlega án samráðs við Björn Inga. Það var eftir þetta sem Björn Ingi kom til liðs við vinstri flokkana og koma þannig í veg fyrir þessa brunaútsölu.

Og fyrir skiptin fékk Björn Ingi ekki neitt, áhrif Framsóknar minkuðu, þó þau væru ennþá langt yfir kjörfylgi, og Björn Ingi þurfti að sætta sig við að allar REI ákvarðanirnar sem höfðu verið keyrðar í gegn af gamla meirihlutanum voru ógildaðar.

Ingólfur, 26.1.2008 kl. 02:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband