Hver mun bera ábyrgð á Öryggisráðsruglinu ?


   Í viðtali á RÚV  í morgun við Hjálmar W. Hannesson sendiherra
hjá Sameinuðu þjóðunum kom fram, að á brattan væri að sækja
fyrir Ísland að komast í Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna. Hefur
það ekki legið ljóst   fyrir  frá upphafi? Hver meðal-hálfviti hefur
getað sagt sér það. Í raun hefur ALDREI verið  minnsti  möguleiki
á að Ísland kæmist í þetta  öryggisráð. Þar fyrir utan hefur Ísland
EKKERT þangað að gera. Gjörsamlega ekki nokkurn skapaðan hlut!

  Fyrir liggur að í þetta rugl er þegar búið að sólunda fleiri hundruð-
um milljónum. Og þegar upp verður staðið verur a.m.k heill milljarður
sem hefur farið í þennan hégóma ÖRFÁRRA misvitra stjórnmála-
manna. - Og eftir sitjum við, þjóðin og skattborgarar þessa lands,
í súpunni.

   Þar sem svo augljóst OFUR-RUGL er að ræða, (REI-mál nr.2)  sem
hefur verið hægt að stöðva frá upphafi,  hlýtur þjóðin að eiga kröfu
á að fá að vita hverjir ætla að axla póitíska ábyrgð á þessu pólitíska
hneyksli.

  Eða halda ráðamenn að  VIÐ, þjóðin,  séum algjör fifl ?

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þórir Kjartansson

Þetta byrjaði nú með því þegar Halldór Ásgrímsson fékk það á heilann að hann væri einn af stóru köllunum í alþjóðapólitíkinni.  Aðrir virðast vera haldnir álíka ranghugmyndum, þó vitað sé að jafnvel þó Ísland fengi þetta sæti, breytir það engu. Við vitum alveg hverjir ráða þarna ferðinni og ekki yrði hlustað á þennan íslending frekar en gelt í kjölturakka.

Þórir Kjartansson, 20.2.2008 kl. 13:47

2 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Nákvæmlega Þórir. Halldór Ásgrímsson var upphafsmaðurinn

af þessu rugli með samþykki Davíðs. Siðjan eru liðin nokkur

ár, og nú hafa aðrir tekið við ruglinu nánast með bundið

fyrir augun og leiða það áfram til enda. Einn milljarður.

Takk og veskú!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 20.2.2008 kl. 13:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband