Evruumræðan endanlega úr sögunni


   Brussel hefur nú endanlega talað. Einhliða upptaka evru
ekki möguleiki án aðildar að Evrópusambandinu. Þetta kom
fram hjá  Geir H. Haarde forsætisráðherra með æðstu forystu-
mönnum Evrópusambandsins í dag. Undirstrikun á fyrri yfir-
lýsingum frá ESB, og sem í raun hefur alla tíð legið fyrir. 

  Þetta vonandi verður til þess að slá alla evru-umræðu endan-
lega í kútinn. Enda  veit hver heilvita  maður að upptaka á er-
lendum gjaldmiðli án þess að  Ísland  hafi nokkra  aðkomu  að
honum er gjörsamlega út í hött. Þeir stjórnmálamenn sem boða
slíkt eiga að leita sér að annari vinnu.

   Ísland á ótal tækifæri með sinn sjálfstæða gjaldmiðil í dag. T.d
er það alls ekki sjálfgefið að hafa hann ALGJÖRLEGA FLJÓTANDI
með tilskipun til Seðlabankans um óraunhæfar kvaðir um ákveðin
verðbólgumarkmið er kosta himinháa okurvexti. Skynsamlegast
væri að tengja krónuna við ákveðna myntkörfu eða annan gjald-
miðil með ákveðnum frávikum.

   Byrjum á því!
mbl.is Geir: Einhliða upptaka evru gæti þýtt pólitíska erfiðleika
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Ekki sakna ég hennar.

Sigurður Þórðarson, 27.2.2008 kl. 22:25

2 Smámynd: Villi Asgeirsson

Myntir evrulandanna voru samtengdar nokkrum árum fyrir upptöku hennar. Það eru mörg dæmi um að lönd hafi tengt sinn gjaldmiðil við dollarinn. Þetta væri alls ekkert nýtt.

Villi Asgeirsson, 28.2.2008 kl. 06:37

3 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Það að tengjast myntkörfu eða annari mynt með ákveðnum frávikum
yrði mun vitlegra en að taka upp erlenda mynt sem við hefðum ENGIN áhrif á. Skil ekki hvernig heilvita manni dettur slíkt í hug.
Alltaf er hægt að AFTENGJAST myntkörfunni og erlendu myntinni
ef svo ber undir. En eftir að hafa tekið upp hina erlendu mynt væri
ekki aftur snúið. Sætum í súpunni!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 28.2.2008 kl. 09:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband